fbpx
Sunnudagur 06.júlí 2025
Fréttir

Umfangsmestu drónaárásir á Kyiv frá upphafi stríðs – Hóta Írönunum afleiðingum fyrir að skaffa Rússum vopnin

Ritstjórn DV
Mánudaginn 29. maí 2023 09:11

Volodymyr Zelenskyy, Úkraínuforseti.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rússar eru sagðir hafa gert fjölmargar árásir á Kyiv, höfuðborg Úkraínu, í nótt með flugskeytum og drónum. Hershöfðinginn Valerii Zaluzhnyi, æðsti yfirmaður úkraínska hersins, fullyrti á samskiptamiðlinum Telegram að alls hefðu 37 flugskeyti, 29 Shahed drónar og eitt ómannað flygildi verið skotin niður af úkraínska varnarliðinu en sjö aðrar árásir Rússa hefðu náð í gegnum loftvarnarkerfi borgarinnar og eyðilagt einhverjar byggingar.

Nóttin var því löng fyrir íbúa höfuðborgarinnar sem þurftu að forða sér í öruggt skjól, eins og neðanjarðarbyrgi, á meðan loftvarnarflautur gullu. Þetta er önnur nóttin í röð sem Rússar gera slíkar árásir á Kyiv sem eru þær umfangsmestu síðan stríðið hófst.

Þá hafa borist fréttir af allnokkrum sprengingum í höfuðborginni í morgun og því standa árásir Rússa að öllum líkindum enn yfir. Í umfjöllun CNN kemur fram að markmið árásanna séu að öllum líkindum sálfræðilegur sem og að neyða Úkraínumenn til að eyða dýrmætum skotfærum fyrir loftvarnarkerfi sín. Sum þeirra eru frá tímum Sovétríkjanna og er hægara sagt en gert að afla skotfæra í þau.

Ljóst er að Úkraínumenn hugsa stjórnvöldum í Íran þegjandi þörfina en Rússar hafa keypt hundruði ódýrra Shahed-dróna frá þessari vinaþjóð sinni. Það hefur gert Rússum kleyft að senda árásarbylgjur af slíkum drónum á skotmörk í Úkraínu en drónarnir eru hræódýrir í samanburði við aðra dróna og flugskeyti.

Mykhailo Podolyak, ráðgjafi Volodymyr Zelensky, Úkraínuforseta, sagði í færslu á Twitter að Íran myndi finna fyrir afleiðingum gjörða sinna.

„Í dag langar mig til að minna stjórnvöld í Tehran á grundvallar lögmál lífsins, sérstaklega lögmál bjúgverpilsins. Ekki halda að landafræðilega fjarlægð og núverandi forgangsmál Úkraínu í dag muni einhverju máli skipta. Shahed-drónunum verður dag einn beitt á framleiðanda sinn,“ skrifaði Podolyak herskár.

 

 

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ymur Art sakfelldur fyrir morð á móður sinni en honum ekki gerð refsing

Ymur Art sakfelldur fyrir morð á móður sinni en honum ekki gerð refsing
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ísraelar fagna eftir lokaðan fund Eurovision – Íslendingum og Slóvenum tókst ekki að reka þá úr keppninni

Ísraelar fagna eftir lokaðan fund Eurovision – Íslendingum og Slóvenum tókst ekki að reka þá úr keppninni
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Harmleikurinn á Edition-hótelinu – Gæsluvarðhald framlengt um fjórar vikur

Harmleikurinn á Edition-hótelinu – Gæsluvarðhald framlengt um fjórar vikur
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Hart tekist á um Fannborgarreitinn í Kópavogi – Bílastæði séu einhliða tekin af íbúum

Hart tekist á um Fannborgarreitinn í Kópavogi – Bílastæði séu einhliða tekin af íbúum