fbpx
Föstudagur 26.júlí 2024
Fréttir

23 ára hælisleitandi sakfelldur fyrir kynferðisbrot gegn 13 ára barni

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 6. desember 2023 16:23

Mynd: Hari

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Héraðsdómur Reykjaness sakfelldi í dag 23 ára mann fyrir kynferðisbrot gegn 13 ára barni. Braut hann gegn stúlkunni á heimili sínu í Reykjavík í febrúar á síðasta ári. Er þetta orðað svo í ákæru:

„Fyrir nauðgun og kynferðisbrot gegn barni, með því að hafa þriðjudaginn 1. febrúar 2022, á þáverandi heimili sínu að […], Reykjavík, án samþykkis og með því að
beita ólögmætri nauðung, haft samræði og önnur kynferðismök við A, kt. […], sem þá var 13 ára, en ákærði lét stúlkuna hafa við sig munnmök og hafði við hana samræði.“

Hann var einnig sakaður um grófa og ítrekaða kynferðislega áreitni við aðra stúlku á nokkurra mánaða tímabili. Er því lýst svo í ákæru:

„Fyrir kynferðislega áreitni, með því að hafa í nokkur skipti á tímabilinu frá janúar til júní 2022, á heimili B, kt. […] og í bifreið sinni, áreitt B kynferðislega, en ákærði
þuklaði að minnsta kosti fjórum sinnum á brjóstum stúlkunnar innanklæða og reyndi tvisvar sinnum að færa hönd að kynfærum hennar og í eitt skipti rassskellti hann stúlkuna og sagði henni að hún væri með flottan rass.“

Í dómnum kemur fram að maðurinn er 23 ára gamalli hælisleitandi og hefur búið á Íslandi í þrjú ár. Málið kom upp í febrúar árið 2022 en þá bjó hann einn í innréttuðum bílskúr í Reykjavík en hann kynntist ungu stúlkunni á samfélagsmiðlinum Snapchat. Átti hann kærustu á sama tíma og hann braut gegn barninu.

Ákærði neitaði sök í báðum ákæruliðum. Hins vegar þótti framburður brotaþola mjög trúverðugur og stöðugur auk þess sem gögn um samskipti á samskiptaforritum ýttu undir sekt mannsins. Ljóst er að samræðið var með vilja stúlkunnar en hinn ákærði hélt því fram að hann hefði ekki vitað um réttan aldur hennar. Sá framburður hans var hins vegar reikull og ekki í samræmi við samskiptagögnin.

Það var engu að síður niðurstaða dómsins að hann væri ekki sekur um nauðgun í skilningi laganna og er þetta orðað svo í texta dómsins:

„Stendur þá eftir það álitaefni hvort samræði fullorðins einstaklings við 13 ára barn teljist ávallt nauðgun í skilningi verknaðarlýsingar 1. mgr. 194. gr. hegningarlaganna án tillits til yfirlýsts vilja og/eða samþykkis barnsins, þ.e. að 13 ára barn geti undir engum kringumstæðum fallist á samræði við fullorðinn einstakling svo gilt sé. Af frumvarpi til áðurnefndra breytingarlaga nr. 16/2018, sem og eldra frumvarpi til breytinga á 1. mgr. 194. gr., sbr. lög nr. 61/2007, verður ekki annað ráðið en að ávallt þurfi til að koma einhver sú ólögmæta nauðung í skilningi 1. mgr. 194. gr. að gerandi í það minnsta notfæri sér yfirburðaaðstöðu gagnvart þolanda til að koma fram kynferðislegum vilja sínum og að þolandi sé varnarlaus gagnvart þeim vilja. Er ekkert slíkt fram komið í þessu máli, svo haldbært sé. Að því gættu og með vísan til 108. og 109. gr. laganna um meðferð sakamála ber að sýkna ákærða af nauðgun samkvæmt 1. mgr. 194. gr. almennra hegningarlaga.“

Braut gegn stjúpdóttur sinni

Maðurinn neitaði jafnframt ákæru um að hafa beitt aðra stúlku margsinnis kynferðislegri áreitni á nokkurra mánaða tímabili. Sú stúlka glímir við þroskahömlun en ákærði átti í ástarsambandi við móður hennar. Stúlkan leit á hann sem stjúpföður sinn um 8-9 mánaða skeið. Á grundvelli framburðar brotaþola og sérhæfðra vitna þótti sök hans sönnuð, en þetta er orðað svo í dómnum:

„Það er álit dómsins að framburður brotaþola sé stöðugur og trúverðugur um sakarefni máls og að hún hafi fyrir dómi greint á einlægan og hófstilltan hátt frá því sem
hún varð fyrir í samskiptum við ákærða. Framburður brotaþola er studdur endursögn Q, U og R dóttur hennar, sem og vætti T móðurömmu brotaþola og vætti V félagsráðgjafa sem ræddi við brotaþola strax eftir heimkomu frá Spáni og þekkir betur en margir til brotaþola. Þegar við þetta bætist að ekkert haldbært er fram komið í málinu sem skýrt gæti af hverju brotaþoli bæri rangar og upplognar sakir á ákærða og hefði til þess þá greind að geta haldið stöðugum en röngum framburði þykir sannað, svo hafið sé yfir skynsamlegan vafa og óháð neitun ákærða, að hann hafi gerst sekur um þá háttsemi sem lýst er í II. kafla ákæru og þar þykir rétt heimfærð til refsiákvæða.“

Niðurstaðan var að maðurinn var dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn tveimur stúlkum. Hann er jafnframt dæmdur til að greiða 13 ára stúlkunni 1,5 milljónir króna í miskabætur og þroskahömluðu stúlkunni 1 milljón króna.

Athugasemd: Fréttinni hefur verið breytt með þeim hætti að nafn sakbornings hefur verið tekið út úr henni að beiðni aðstandenda þolenda mannsins.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Bjórinn í Reykjavík dýrastur í Evrópu – Fjórði dýrasti í heiminum samkvæmt bjórkorti

Bjórinn í Reykjavík dýrastur í Evrópu – Fjórði dýrasti í heiminum samkvæmt bjórkorti
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Eigendur lúxusíbúða skoruðu sigur gegn vinsælum pílustað – Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fær á baukinn

Eigendur lúxusíbúða skoruðu sigur gegn vinsælum pílustað – Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fær á baukinn
Fréttir
Í gær

Bræður ráku pabba sinn úr fjölskyldufyrirtækinu í Grindavík – Ásakanir á víxl um tug milljóna fjárdrátt

Bræður ráku pabba sinn úr fjölskyldufyrirtækinu í Grindavík – Ásakanir á víxl um tug milljóna fjárdrátt
Fréttir
Í gær

Húseigandi í miðbænum grunlaus um heimild fyrir byggingu íbúðarhúss á lóð hans – Reyndi að kæra en var of seinn

Húseigandi í miðbænum grunlaus um heimild fyrir byggingu íbúðarhúss á lóð hans – Reyndi að kæra en var of seinn
Fréttir
Í gær

Siggi stormur furðulostinn yfir athæfi ferðamanna

Siggi stormur furðulostinn yfir athæfi ferðamanna
Fréttir
Í gær

Guðmunda hefur aldrei gleymt ungu stúlkunni sem sagði henni leyndarmál – „Oft fellt tár hennar vegna“

Guðmunda hefur aldrei gleymt ungu stúlkunni sem sagði henni leyndarmál – „Oft fellt tár hennar vegna“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Tveir ókunnugir menn voru skráðir á heimili hennar – Ekki þarf að fá samþykki eiganda eignarinnar

Tveir ókunnugir menn voru skráðir á heimili hennar – Ekki þarf að fá samþykki eiganda eignarinnar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Rússar bjóða íbúum Moskvu milljónir í vasann fyrir að skrá sig í herinn

Rússar bjóða íbúum Moskvu milljónir í vasann fyrir að skrá sig í herinn