fbpx
Föstudagur 01.desember 2023
Fréttir

Atli skrifar háðsádeilu um Katrínu: „Takk fyrir að leyfa efstu tíundinni að auðgast æ meir ár frá ári“

Einar Þór Sigurðsson
Þriðjudaginn 21. nóvember 2023 11:40

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Atli Bollason, listamaður og fyrrverandi  félagi í VG, skrifar háðsádeilu um Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra í tilefni þess að um mánaðamótin verða sex ár liðin frá því að ríkisstjórn hennar tók við völdum.

„Ég vil nota tækifærið og fá að þakka þér, Katrín, fyrir styrka stjórn á forsætisráðherrastóli þessi umbrotaár. Ráðherrarnir hafa verið alls konar en óhvikandi stuðningur þinn við allar aðgerðir ríkisstjórnarinnar hefur sýnt okkur hver stendur í brúnni. Eins og þú hefur svo oft sagt sjálf þá skiptir máli hver stjórnar,“ segir Atli í aðsendri grein á vef Vísis í morgun og telur svo upp fjölda atriða sem hann er „þakklátur“ fyrir.

Hér að neðan má sjá brot úr skrifum hans.

„Takk fyrir að hafa staðið vörð um fyrirtækin okkar í heimsfaraldrinum. Fyrir að hafa styrkt, um hundruð milljóna, aðila í ferðaþjónustu á borð við Icelandair og Bláa lónið sem höfðu sýnt ráðdeild og ekki greitt eigendum sínum nema um ellefu milljarða í arð árin áður en kófið skall á.“

„Takk fyrir að hafa búið svo um hnútana að fiskeldisfyrirtækin þurfi ekkert að borga fyrir afnot sín af landi og sjó, ekki nema í allra mesta lagi til að standa undir kostnaði ríkisins af eftirliti. Takk fyrir að hlusta ekki á náttúruverndarsamtök og þeirra svörtu spár um áhrif eldisins á umhverfið og lífríkið undanfarin ár. Það var auðvitað miklu betra að bíða þar til þær raungerðust.“

„Takk fyrir að hafa fjölgað ráðuneytunum. Breytingarnar munu kosta um tvo milljarða á þessu kjörtímabili en það er vissulegra skemmtilegra á fundum ef fleiri eiga sæti við ríkisstjórnarborðið.“

„Takk fyrir aðgerðaleysið í húsnæðismálum. Það muna koma sér vel í ljósi atburðanna í Grindavík. Takk fyrir að setja ekki á leiguþak. Takk fyrir að undirrita húsnæðissáttmála en karpa svo við borgina um hvar megi og eigi að byggja svo það komist örugglega ekkert af stað. Takk fyrir að hlífa öðrum sveitarfélögum við uppbyggingu.“

„Takk fyrir að halda fjármagnstekjuskattinum lágum en virðisaukaskattinum háum. Takk fyrir lágar bætur en há gjöld í heilbrigðis- og menntakerfinu. Takk fyrir að leyfa efstu tíundinni að auðgast æ meir ár frá ári meðan venjulegt fólk neyðist til að spara við sig í mat og mörg okkar horfa upp á vanskil í gölnu vaxtaumhverfi.“

„Takk fyrir að standa við bakið á Bjarna í bankasölumálinu. Takk fyrir að sýna okkur að vanhæfir ráðherrar þurfa bara að skipta um sæti við sessunaut sinn til að teljast hafa axlað ábyrgð. Setur mjög gott fordæmi.“

Atli telur upp mun fleiri atriði sem hann kveðst vera þakklátur fyrir og má lesa alla greinina á vef Vísis.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

„Það er svo margt rangt við þessa framkvæmd alla að mig skortir orð til að lýsa hvað ég er gáttuð“

„Það er svo margt rangt við þessa framkvæmd alla að mig skortir orð til að lýsa hvað ég er gáttuð“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Bróðir Eddu Bjarkar segir hana verða framselda til Noregs

Bróðir Eddu Bjarkar segir hana verða framselda til Noregs