fbpx
Mánudagur 07.júlí 2025
Fréttir

Magga Frikka við það að loka út af erfiðum rekstri –  „Verst að hugsa til þess að brjálaða woke réttrúnaðarliðið myndi þá vinna“

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 14. nóvember 2023 10:30

Margrét Friðriksdóttir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Margrét Friðriksdóttir, ritstjóri og eigandi Fréttin.is, segist vera alvarlega að spá í að hætta rekstri miðilsins. Segir hún í færslu á Facebook-síðu sinni að reksturinn gangi erfiðlega því að fáir séu tilbúnir til þess að kaupa auglýsingar og styðja þannig við miðilinn. Telur Margrét að það sé afleiðing útskúfunarmenningarinnar hérlendis sem sé að hennar mati svartur blettur á íslensku samfélagi.

„Fólk á Íslandi veigrar sér ekki við grófar árásir gegn þeim sem þora að viðra aðrar skoðanir og sýna fleiri hliðar sem ætti að vera sjálfgefið í lýðræðislegu samfélagi, þar sem skoðana og tjáningafrelsið á að vera hornsteinninn.
Það er sárt að þurfa hætta á fullri ferð og í ljósi þess að Fréttin er með miklar heimsóknir á hverjum degi. Í síðasta mánuði fórum við í 1.3 milljónir heimsókna og erum með margfalt fleiri heimsóknir en margir sambærilegir miðlar og erum næstum á pari við Viðskipablaðið og Keldan er með helmingi færri heimsóknir en Fréttin,“ bendir Margrét á.

Segist hún óska eftir öllum hugmyndum frá lesendum sínum og velunnurum um hvernig væri hægt að bjarga miðlinum enda megi hún ekki til þess hugsa að henda inn hvíta handklæðinu. „Verst að hugsa til þess að brjálaða woke réttrúnaðarliðið myndi þá vinna og sennilega hlakka í mörgum. En ég eins og aðrir þarf að eiga fyrir salti í grautinn og ekki hægt að halda áfram á þessari braut á meðan stuðningurinn er svona slakur, meira segja þeir sem að styðja Fréttina hafa veigrað sér við að birta greinar af miðlinum af hræðslu við árásir, það er sorglegast að horfa upp á,“ segir Margrét og lætur fylgja með tölfræði yfir heimsóknir á vefinn.

Margrét boðaði stofnun síðunnar í október 2020 en rúmu ári síðar, í desember 2021, fékk hún síðuna skráða sem fjölmiðil hjá Fjölmiðlanefnd. Það vakti talsvert umtal og sagði Sigríður Dögg Auðunsdóttir, formaður Blaðamannafélags Íslands, meðal annars að miðilinn væri„bloggsíða sem vill láta líta á sig sem fjölmiðil“  og að þar væru settar fram fréttir„í ákveðnum tilgangi.“ Miðill Margrétar starfaði því ekki samkvæmt grundvallarreglum blaðamennsku.

Færsla Margrétar:

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ymur Art sakfelldur fyrir morð á móður sinni en honum ekki gerð refsing

Ymur Art sakfelldur fyrir morð á móður sinni en honum ekki gerð refsing
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ísraelar fagna eftir lokaðan fund Eurovision – Íslendingum og Slóvenum tókst ekki að reka þá úr keppninni

Ísraelar fagna eftir lokaðan fund Eurovision – Íslendingum og Slóvenum tókst ekki að reka þá úr keppninni
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Harmleikurinn á Edition-hótelinu – Gæsluvarðhald framlengt um fjórar vikur

Harmleikurinn á Edition-hótelinu – Gæsluvarðhald framlengt um fjórar vikur
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Hart tekist á um Fannborgarreitinn í Kópavogi – Bílastæði séu einhliða tekin af íbúum

Hart tekist á um Fannborgarreitinn í Kópavogi – Bílastæði séu einhliða tekin af íbúum