Uppfært klukkan 09.49
AFP segir að einn sé látinn og minnst 8 slasaðir. Ökumaðurinn, sem ók á fólkið, hefur verið handtekinn.
Ekki er rétt sem kom fram fyrr í morgun í fjölmiðlum að lögreglan hafi sagt að líklega sé ekki um hryðjuverk að ræða. Á þessari stundu er ekki vitað hvort um slys eða hryðjuverk var að ræða.
Bild segir fólksbíl hafi verið ekið á fólkið. Blaðið segir að fjöldi sjúkraþyrla sveimi yfir slysstað og bíði eftir að geta lent, einhverjar eru lentar. Um 60 sjúkrabílar og slökkvibílar eru að sögn á vettvangi og mikill fjöldi þungvopnaðra lögreglumanna.
Ekki er vitað hvort um óhapp eða viljaverk var að ræða.
Þýska fréttastofan DPA segir hugsanlegt að flutningabíl hafi verið ekið á fólkið.
Lögreglan segir að líklega sé ekki um hryðjuverk að ræða.