Fátt er vitað um einkalíf einræðisherrans í Norður Kóreu, Kim Jong-un, annað en hann er giftur fyrrverandi söngstjörnunni Ri Sol–ju.
Valdamenn Kim ættarinnar hafa ávallt gætt þess að láta ekkert uppi um fjölskyldumynstur sitt. Lítið sem ekkert var vitað um hjúskaparstöðu föður og afar einræðisherran né fjölda barna. Til að mynda var lengi vel ekki vitað af tilveru Kim Jong-un sem var vandlega falinn fram á fullorðinsár.
Er slíku haldið leyndu til að tryggja öryggi valdaættarinnar.
Einræðisherrann þéttvaxni rauf þó þá hefð með því að kynna eiginkonu sína til sögunnar árið 2012 og er það í fyrsta skipti sem Norður Kórea á opinberlega forsetafrú.
Körfuboltakappinn Dennis Rodman er vinur Kim Jong-un og eftir eina heimsókn sína til lokaðasta lands heims árið 2013 missti hann út úr sér að hafa hitt barnunga dóttur einræðisherrans.
Forsetafrúin hverfur reglulega úr þarlendum miðlum, hugsanlega þegar hún er ófrísk, og er talið að þau hjón eigi þrjú börn, tvær dætur og langþráðan son.
En á myndbandi sem tekið var upp á hátíðisdegi fyrr í mánuðum sést stúlka sem margir eru handvissir um að sé elsta dóttir einræðisherrans. Hún mun heita Kim Ju–ae og sést dansa og syngja fyrir þau hjón svo og aðra háttsetta flokksmeðlimi, meðal annars yngri systur Kim Jong-un, Kim Yo–jong. Sú þurrkar tár af barmi við söng barnanna og hefur það vakið athygli enda ekki talin tilfinningaríkur einstaklingur.
Þótt um hóp barna sé að ræða sker þessi ákveðna stúlka sig úr auk þess sem aldur hennar passar við frásögn Rodman.
Hún er sú eina sem ekki er með tagl í hári, hún er sú eina í hvítum sokkum og hún er eina barnið sem mynduð er í nærmynd. Kim hjónin virðast einnig fylgjast með henni af sérstökum áhuga og þegar að sýningin var endurtekin kvöldið eftir, þá án nærveru einræðisherrans, var stúlkan ekki með í hópi barnanna.
Einræðisherrann og frú hans horfa á hana þegar þau fara á svið að heilsa upp á börnin og leggur Ri Sol–jun hönd á öxl stúlkunnar. Telpan er einnig mun rólegri en hin börnin sem algjörlega missa sig við að hitta forseta sinn sem litið er á sem guð í landinu. Hún heldur sig til hlés á meðan þau hlaupa að honum og ýtir meira að segja einu barni frá leiðtoganum.
Jafnvel þótt ða Kim Jong-un hafi brotið blað með því að kynna eiginkonu til leiks er lítið vitað um hana. Aldur hennar er óþekktur og margir telja nafn hennar dulnefni.
Hér má sjá myndbandið