Skömmu fyrir klukkan tvö í nótt datt kona af hlaupahjóli í Hlíðahverfi. Hún meiddist í andliti, framtönn brotnaði. Hún var flutt á Bráðamóttöku. Hún er grunuð um að hafa verið undir áhrifum áfengis þegar hún stýrði hlaupahjólinu og vor því tekin blóðsýni úr henni í þágu rannsóknar málsins.
Fimm ökumenn voru handteknir í gærkvöldi og nótt grunaðir um að vera undir áhrifum áfengis og eða fíkniefna. Einn þeirra reyndist ekki vera með gild ökuréttindi og einn var með meint fíkniefni í fórum sínum.
Einn ökumaður var kærður fyrir að aka sviptur ökuréttindum.