fbpx
Laugardagur 18.maí 2024
Fréttir

Pétur vill fækka bílum í Reykjavík – „Það er sú leið sem við verðum að fara“

Máni Snær Þorláksson
Fimmtudaginn 3. febrúar 2022 20:00

Pétur Marteinn Urbancic Tómasson vill fækka bílum í Reykjavík - Myndin er samsett

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Mig langar að biðja lesendur á höfuðborgarsvæðinu að líta út um gluggann. Það eru yfirgnæfandi líkur á að meirihluti þess svæðis sem þú horfir á fari undir einn samgöngumáta – bílinn.“

Svona hefst pistill sem Pétur Marteinn Urbancic Tómasson, lögfræðingur, forseti Hallveigar, ungra jafnaðarmanna í Reykjavík og frambjóðandi í flokksvali Samfylkingarinnar í Reykjavík þar sem hann sækist eftir 5.-6. sæti, skrifar en pistillinn birtist á Vísi í dag undir yfirskriftinni „Fækkum bílum“.

Líkt og yfirskrift pistilsins gefur til greina vill Pétur fækka bílum. „Það heyrist af og til í umræðunni að Íslendingar hafi valið bílinn. Að einhverju leyti er það rétt, stjórnmálamenn völdu hann með því að úthluta landi á þann hátt að einstaklingar höfðu voðalega lítið val. Ef þú ferð á hlaðborð þar sem það eina sem er í boði eru rófur muntu líklega enda á að borða rófur. Til að raunverulegt val sé til staðar í samgöngum þarf að skipta plássi og fjármunum jafnar á milli bíla, reiðhjóla, gangandi og almenningssamgangna. Eina leiðin til að gera það er að fækka bílum í umferð,“ segir hann.

Segir fjölgun akgreina vera skammgóðan vermi

Pétur segir að einkabílum á götum Reykjavíkur fari enn fjölgandi þrátt fyrir að reynt sé að sporna við fjölguninni með ýmsum verkefnuminnan borgarinnar. „Það leiðir eðlilega til þyngri umferðar. Margir vilja bregðast við þessu með því að fjölga akgreinum, en það er skammgóður vermir,“ segir hann.

„Meira pláss fyrir bíla leiðir til fleiri bíla, enda er tilgangurinn með því að fjölga akgreinum sá að akgreinarnar verði nýttar. Í öllum þeim greiningum sem fjalla um breikkun vega er tekið fram að um umferðaraukandi aðgerð sé að ræða til lengri tíma. Með því að breikka vegi og fjölga akgreinum er þannig verið að tryggja að það þurfi að gera slíkt hið sama aftur eftir nokkur ár.“

Hin leiðin

Pétur segir að það sé til önnur leið sem hægt er að fara til að minnka umferðina. „Hin leiðin sem stendur til boða er að fækka bílum í umferðinni. Það er sú leið sem við verðum að fara,“ segir hann.

„Færri bílar í umferðinni gagnast öllum, ekki síst þeim sem vilja eða þurfa að nota bíla í sínu daglega lífi, er nauðsynleg aðgerð til að ná loftslagsmarkmiðum Íslands og ýtir undir meira og skemmtilegra mannlíf í borginni okkar. Borgarlínan spilar risastóran þátt í þessari vegferð en meira þarf til.“

Þá segir Pétur að ýmsar borgir hafa farið þessa leið. „Amsterdam og Kaupmannahöfn voru bílaborgir fyrir 60 árum. Það var pólitísk ákvörðun að verða bílaborg og pólitísk ákvörðun að hætta því. London og París hafa verið í öflugum aðgerðum við að leggja áherslu á aðra samgöngumáta en bílinn. Það er yfirgnæfandi ánægja meðal íbúa um þessar aðgerðir. Ekkert bendir til þess að annað muni eiga við í Reykjavík,“ segir hann.

„Til þess þarf að byrja á að fækka bílum“

Pétur vill að tekin verði afgerandi skref til að fækka bílum. „Við þurfum að byggja fleiri íbúðir án bílastæða eða bílakjallara, auka nærþjónustu í öllum hverfum, búa til mannvæn græn svæði og torg, gera fleiri og stærri svæði bíllaus, passa að öll hönnun í borgarrými taki mið af fleiri ferðamátum en bara bílnum, fækka bílastæðum í borgarlandi og leggja gjaldskyldu á þau sem þó eru til staðar,“ segir hann.

„Mín framtíðarsýn er að hver einasti Reykvíkingur hafi raunverulegt val um hvernig hann ferðist, geti sótt sér nærþjónustu í sínu hverfi og njóti þess að ferðast um borgina, sama með hvaða hætti það er gert. En til þess þarf að byrja á að fækka bílum.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Umdeild hinsta ósk hennar verður uppfyllt – Fær að deyja innan fárra vikna

Umdeild hinsta ósk hennar verður uppfyllt – Fær að deyja innan fárra vikna
Fréttir
Í gær

Þorvaldur var í bátnum sem hvolfdi: „Þetta gerðist allt í einu“

Þorvaldur var í bátnum sem hvolfdi: „Þetta gerðist allt í einu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Líkamsræktarstöð hirti ekki um að skipta út 10 ára gömlum ströppum sem endaði með ósköpum

Líkamsræktarstöð hirti ekki um að skipta út 10 ára gömlum ströppum sem endaði með ósköpum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir gjaldskyldu vegna nagladekkja ekki í skoðun

Segir gjaldskyldu vegna nagladekkja ekki í skoðun