fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Fréttir

„Konur af minni kynslóð hvísluðust á um einstaka menn“

Máni Snær Þorláksson
Föstudaginn 7. janúar 2022 15:00

Drífa Snædal. Myndir/Ernir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Drífa Snædal, forseti ASÍ, sendi fyrr í dag pistil á fjölmiðla þar sem hún ræðir um ofbeldi í samfélaginu. Hún skrifar pistilinn í kjölfar þess ofbeldis sem fjallað hefur verið um að undanförnu en hún dáist að þeim ungu konum sem hafa stigið fram og sagt frá því ofbeldi sem þær hafa orðið fyrir.

„Síðustu daga og vikur hef ég fylgst af aðdáun með ungum konum stíga fram og ræða af ótrúlegu hugrekki og hispursleysi um skipulagt ofbeldi karla gegn konum. Í stað þess að hengja sig í skilgreiningar greina þær frá málavöxtu, því sem gerðist og hvernig það átti sér stað. Þær taka sér svigrúm og rými sem konur af minni kynslóð hefðu aldrei gert nema vera með fullkomlega útpælda frásögn, helst með sönnunargögnum og eftir að hafa „unnið úr“ málunum í ár og jafnvel áratugi,“ segir hún í pistlinum.

Breyttir tímar

Það hvernig brugðist við ofbeldi í dag er að miklu leyti frábrugðið því hvernig það var gert hér á árum áður. Drífa ræðir um einmitt það í pistlinum. „Þessar konur hika ekki við að horfa í augun á valdamiklum mönnum og segja þeim til syndanna, krefja þá um að axla ábyrgð og gera það án þess að gera þær kröfur á sjálfar sig að vera hin „fullkomnu fórnarlömb“. Konur af minni kynslóð hvísluðust á um einstaka menn, við vöruðum hver aðra við og það var segin saga að þegar komið var inn á nýjan vettvang fékk kona að vita hvaða menn ætti að forðast í félagslegum samskiptum,“ segir hún.

„Ef við voguðum okkur út á hinn opinbera vettvang að krefjast úrbóta, án þess einu sinni að nefna nöfn, fengum við yfir okkur holskeflu af ofbeldis- og nauðgunarhótunum, auk þess sem efast var um allt sem fram kom. Þá stóð slagurinn um hvort svona ofbeldi væri yfirleitt til.“

Í dag er sagan önnur. Drífa bendir á að í dag fá konur mun meiri stuðning en áður fyrr, þrátt fyrir að mótlætið sé enn til staðar. „Þær konur sem nú stíga fram fá sannarlega mótbyr, en þær hafa um leið endurskilgreint umræðuna. Þær sýna hver annarri stuðning og í sameiningu afhjúpa þær hvað málflutningurinn gegn konum hefur verið veikburða. Stuðningurinn er meiri og við allar sterkari fyrir vikið.“

Valdamisvægi af ýmsum toga

Undir lokin á pistlinum talar Drífa um valdamisvægi annars staðar í samfélaginu en í kynferðisofbeldismálum. „Valdamisvægi í samfélaginu er af ýmsum toga. Það getur verið aldursbundið, kynbundið og tekjubundið. Það getur endurspeglast í ólíkum tengslum, að eiga rödd og hafa formleg völd gagnvart öðrum sem hafa það ekki.,“ segir hún.

„Valdamisvægið er líka á milli atvinnurekenda og launafólks, á milli leigusala og leigjenda, milli lánveitenda og þeirra sem þurfa að slá lán og svo framvegis.“

Drífa segir að þess vegna finnist henni dásamlegt að verða vitni að breytingum á valdahlutföllum. „Þar sem konur sem hafa verið beittar kúgun vegna aldurs, kyns og stéttar rísa upp gegn valdinu, breyta leikreglunum og neita að undirgangast þá gríðarlegu kúgun sem falist hefur í kynjakerfi samfélagsins. Áfram þið og áfram við. Þetta ár fer sannarlega vel af stað. Megi það vera árið þar sem við upprætum ofbeldi og köstum af okkur viðjum meðvirkninnar með valdinu!“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Fréttir
Í gær

Segist enga tengingu hafa við heimalandið en verður samt að sitja í fangelsi þar

Segist enga tengingu hafa við heimalandið en verður samt að sitja í fangelsi þar
Fréttir
Í gær

Kíghósti greinist hjá nokkrum ótengdum einstaklingum á höfuðborgarsvæðinu

Kíghósti greinist hjá nokkrum ótengdum einstaklingum á höfuðborgarsvæðinu