fbpx
Laugardagur 18.maí 2024
Fréttir

Fríða hlaut Bjartsýnisverðlaunin 2021 og eina milljón í verðlaun

Ritstjórn DV
Sunnudaginn 2. janúar 2022 18:45

Rannveig Rist, Fríða Ísberg og Guðni Th. Jóhannesson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fríða Ísberg, ljóðskáld og rithöfundur, hlýtur Íslensku bjartsýnisverðlaunin 2021 sem afhent voru við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Forseti Íslands, hr. Guðni Th. Jóhannesson, afhenti verðlaunin, sem eru áletraður gripur úr áli frá ISAL í Straumsvík og ein milljón króna í verðlaunafé.

Bjartsýnisverðlaunin eru menningarverðlaun sem hafa verið afhent árlega frá árinu 1981. ISAL álverið í Straumsvík hefur verið bakhjarl verðlaunanna frá árinu 2000. Forseti Íslands hefur frá upphafi verið verndari verðlaunanna.

Fríða lauk meistaraprófi í ritlist frá Háskóla Íslands árið 2017 og BA prófi í heimspeki árið 2014 við sama skóla. Fríða hefur unnið við ritlist lengi þrátt fyrir ungan aldur og hlotið ýmsar viðurkenningar. Verk hennar eru ljóðabækurnar Ég er ekki að rétta upp hönd (2017), Silfurörin (2017), Hátíð (2018), Ég er fagnaðarsöngur (2018), Kláði (2018), Nú sker ég net mín (2019), Leðurjakkaveður (2019) og Merking (2021). Fyrir Kláða hlaut Fríða tilnefningu til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs árið 2020. Fyrir verkið Olía, sem Fríða skrifar ásamt fleirum undir merkjum Svikaskálds, hlaut hún tilnefningu til íslensku bókmenntaverðlaunanna. Þá hefur Fríða hlotið Bóksalaverðlaunin í flokki ljóða og þrisvar verið tilnefnd til Fjöruverðlaunanna. Hún hefur skrifað útvarpsleikrit, ljóðabálk fyrir norska ljóðahátíð, verið leiðbeinandi, ritstjóri og gagnrýnandi svo fátt eitt sé nefnt.

Verk Fríðu hafa verið þýdd eða eru væntanleg í þýðingu, á fjórtán tungumálum. Fyrsta skáldsaga hennar, Merking, kom út nú í haust og hefur hlotið verðskuldaða athygli. Íslensku bjartsýnisverðlaunin eru í senn hugsuð sem viðurkenning og hvatning fyrir íslenska listamenn. Í dómnefnd Íslensku bjartsýnisverðlaunanna eru Þórunn Sigurðardóttir, Magnús Geir Þórðarson, Sif Gunnarsdóttir og Rannveig Rist.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Þorgerður Katrín las Bjarna pistilinn: „Ég vil hvetja fólk til þess að skoða heimabankann hjá sér“

Þorgerður Katrín las Bjarna pistilinn: „Ég vil hvetja fólk til þess að skoða heimabankann hjá sér“
Fréttir
Í gær

Öryggisverðir fylgja Bjarna hvert fótmál

Öryggisverðir fylgja Bjarna hvert fótmál
Fréttir
Í gær

Par braut rúðu í fjölbýlishúsi

Par braut rúðu í fjölbýlishúsi
Fréttir
Í gær

Langveik ung kona fékk liðsauka í barningi sínum við Sjúkratryggingar – Sögð hafa þurft samþykki stofnunarinnar fyrir aðgerð sem læknir sagði nauðsynlega

Langveik ung kona fékk liðsauka í barningi sínum við Sjúkratryggingar – Sögð hafa þurft samþykki stofnunarinnar fyrir aðgerð sem læknir sagði nauðsynlega
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Tommi ómyrkur í máli: Þetta er fólkið sem sagði nei – Banvænt aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar

Tommi ómyrkur í máli: Þetta er fólkið sem sagði nei – Banvænt aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sigmundur segir skemmdarverk framið á íslenskri tungu og nefnir fjölmörg dæmi

Sigmundur segir skemmdarverk framið á íslenskri tungu og nefnir fjölmörg dæmi