fbpx
Laugardagur 18.maí 2024
Fréttir

Bilun hjá Veitum – Biðja íbúa á ákveðnum svæðum á Suðurlandi að spara heita vatnið

Ritstjórn DV
Sunnudaginn 2. janúar 2022 11:07

Ljósmynd: DV/Hanna

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í gær kom upp bilun í dælu í Rangárveitum sem sér Rangárþingi ytra, Rangarþingi eystra og Ásahreppi fyrir heitu vatni. Af þeim sökum er lægri þrýstingur á kerfinu á öllu veitusvæðinu.

Í tilkynningu frá Veitum kemur fram að búið sé að takmarka afhendingu á heitu vatni til stórnotenda en afar mikilvægt sé að allir viðskiptavinir Rangárveitna noti eins lítið heitt vatn og mögulegt er á meðan á viðgerð stendur. Takist að draga úr notkun getur það komið í veg fyrir að fara þurfi í kerfisbundnar lokanir á veitusvæðinu.

Líklegt er talið að bilunin tengist því að útleysing varð í aflvél í Búrfellsvirkjun sem olli útleysingu hjá álveri Rio Tinto í Straumsvík. Við það kom tíðnihögg á rafkerfið og dælan stöðvaðist og ekki var hægt að koma henni í gang aftur.

Undirbúningur viðgerðar hófst þegar í stað en útvega þurfti efni, mannskap og krana til að hífa dæluna upp úr holunni. Ekki var hægt að hífa í gær vegna veðurs. Varadæla er á staðnum og verður sett niður í stað þeirrar biluðu.

Áætlað er að verkið taki um tvo daga og gert er ráð fyrir að fullur þrýstingur verði kominn á kerfið á miðvikudagsmorgun.
Gripið hefur verið til ýmissa aðgerða til að auka magn heits vatns inn á kerfið svo áhrif bilunarinnar verði sem minnst á heimili á svæðinu. Búið er að tengja aðra heitavatnsholu í Laugalandi inn á kerfið, haft hefur verið samband við stórnotendur um að minnka notkun sem kostur er, stýringum kerfisins hefur verið breytt auk annarra aðgerða.

Veitur hvetja fólk til gæta þess að hafa glugga lokaða og útidyr ekki opnar lengur en nauðsyn krefur til að spara heita vatnið en um 90% allrar notkunar fer til húshitunar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Umdeild hinsta ósk hennar verður uppfyllt – Fær að deyja innan fárra vikna

Umdeild hinsta ósk hennar verður uppfyllt – Fær að deyja innan fárra vikna
Fréttir
Í gær

Þorvaldur var í bátnum sem hvolfdi: „Þetta gerðist allt í einu“

Þorvaldur var í bátnum sem hvolfdi: „Þetta gerðist allt í einu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Líkamsræktarstöð hirti ekki um að skipta út 10 ára gömlum ströppum sem endaði með ósköpum

Líkamsræktarstöð hirti ekki um að skipta út 10 ára gömlum ströppum sem endaði með ósköpum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir gjaldskyldu vegna nagladekkja ekki í skoðun

Segir gjaldskyldu vegna nagladekkja ekki í skoðun