fbpx
Laugardagur 18.maí 2024
Fréttir

Kári Stef vill afnema fjöldatakmarkanir – „Ómögulegt fyrir almenning að átta sig á því hvað er í gangi“

Máni Snær Þorláksson
Mánudaginn 6. september 2021 18:57

Kári Stefánsson. Mynd: Valli

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Fram að þessu hefur verið nokkuð einfalt fyrir okkur Íslendinga að átta okkur á því hvernig við ættum að haga okkur í farsóttinni. Sóttvarnaryfirvöld undir stjórn Þórólfs hafa verið skýrmælt; fyrirmæli þeirra hafa skilist, hljómað sannfærandi og reynst vel.“

Svona hefst pistill sem Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, skrifar en pistillinn birtist á Vísi. Kári segir að nú sé staðan önnur heldur en hún hefur verið.

„Nú er hins vegar svo komið málum að það er ómögulegt fyrir almenning að átta sig á því hvað er í gangi og ég er hræddur um að það sama eigi við um sóttvarnaryfirvöld. Þau eru farin að hljóma eins og þau séu ekki alveg vissum að fyrirmæli þeirra séu öll af hinu góða og um leið og þau hætta að trúa eigin orðum er hætta á því að aðrir geri það líka. Þegar fyrirmæli sem sóttvarnaryfirvöld eru að vandræðast með skerða lífsgæði okkar er kominn tími til þess að endurskoða.“

Þá segir Kári hver hans sýn á málinu er en hann vill afnema fjöldatakmarkanir. „Eins og málum er nú háttað ættum við að afnema fjöldatakmarkanir vegna þess að þær sem eru í gildi núna eru illverjanlegar; það er til dæmis erfitt að sýna fram á að smitandi einstaklingur myndi smita fleiri í 2000 manna samkomu en 200 manna,“ segir hann.

„Leyfum leikhúsum og tónleikasölum að nýta öll sín sæti með þeim skilyrðum að það yrði hleypt inn og út í hollum, engin hlé og gestir sætu með sóttvarnargrímur.“

Vill afnema fjöldatakmarkanir en er lítið fyrir hraðprófin

Kári segir að kannski felist einhver áhætta í að afnema allar fjöldatakmarkanir, erfitt sé að meta hversu mikil áhættan væri en hann er viss um að hún væri ekki mikil. „Með þessu væri hægt að endurvekja menningarlíf í landinu og bjarga sviðslistum frá útrýmingu,“ segir hann.

Þó er Kári ekki á því að opna eigi djammið að fullu. „Vínveitingastöðum yrði hins vegar enn um sinn lokað klukkan ellefu á kvöldin vegna þess að eins og bæði bylgja þrjú og fjögur sýndu okkur þá minnkar áfengisnotkun hömlur og breytir hegðun manna að því marki að það eykur til muna líkur á smitum,“ segir hann.

Að lokum segir Kári að honum finnist hugmyndin um að nota hraðpróf ekki vera góð. „Þau eru ónákvæm, villandi og í alla staði óþörf peningaeyðsla. Við höldum áfram að verja landamærin.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Umdeild hinsta ósk hennar verður uppfyllt – Fær að deyja innan fárra vikna

Umdeild hinsta ósk hennar verður uppfyllt – Fær að deyja innan fárra vikna
Fréttir
Í gær

Þorvaldur var í bátnum sem hvolfdi: „Þetta gerðist allt í einu“

Þorvaldur var í bátnum sem hvolfdi: „Þetta gerðist allt í einu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Líkamsræktarstöð hirti ekki um að skipta út 10 ára gömlum ströppum sem endaði með ósköpum

Líkamsræktarstöð hirti ekki um að skipta út 10 ára gömlum ströppum sem endaði með ósköpum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir gjaldskyldu vegna nagladekkja ekki í skoðun

Segir gjaldskyldu vegna nagladekkja ekki í skoðun