Filippus prins, eiginmaður Elísabetar drottingar, verður borinn til grafar í dag en hann lést þann 9. apríl síðastliðinn 99 ára að aldri. Filippus hefði orðið 100 ára í sumar.
Jarðarförin fer fram í kapellu St. Georgs við Windsorkastala. Karl Bretaprins og systkini hans, Andrés, Anna og Játvarður, fylgja föður sínum til grafar og bræðurnir Vilhjálmur og Harrý, synir Karls, verða með þeim. Harrý snéri aftur til Bretlands vegna jarðarfararinnar en eiginkona hans, Meghan Markle, var ekki með í för. Hjónin vöktu nýverið mikla athygli fyrir opinskátt viðtal sitt í Bandaríkjunum.
Hægt verður að fylgjast með jarðarförinni í beinni útsendingu í spilaranum hér fyrir neðan:
https://www.youtube.com/watch?v=LL55C3pgiEo