fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Fréttir

Fjölskyldu konunnar ofbauð að læknirinn starfi ennþá – Vilja að lögregla rannsaki meðferð móður þeirra sem manndráp

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 24. febrúar 2021 22:30

Eva Hauksdóttir. Skjáskot RÚV.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Börn konu sem lést eftir að læknir á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja fyrirskipaði lífslokameðferð á henni haustið 2019 hafa birt yfirlýsingu um málið. Læknirinn var sviptur lækningaleyfi eftir rannsókn Landlæknisembættisins á framgöngu hans í þessu máli og öðrum og vísaði Heilbrigðisstofnun Suðurnesja málinu til lögreglu. Börn konunnar hafa haft samband við lögreglu og farið fram á að rannsakað verði hvort tilvikið teljist manndráp.

Vísir.is og mbl.is hafa birt yfirlýsingu barna konunnar og yfirlýsingin birtist hér neðar í fréttinni.

Eitt barna konunnar er Eva Hauksdóttir, sem er þekktur þjóðfélagsrýnir, aktívisti og skáld. Eva segir í samtali við DV í kvöld að ástæða þess að þau systkinin hafi ákveðið að stíga fram sé sú að fréttir bárust af því í dag að læknirinn sem um ræðir væri við störf á Landspítalanum.

Móðir Evu var 73 ára er hún lést. Hún var sjúklingur en var ekki álitin ganga með lífshættulegan sjúkdóm, en hún lagðist inn til hvíldarmeðferðar á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Aldrei var gefin skýring á því hvers vegna hún var sett á lífslokameðferð, sem er lokastig líknarmeðferðar.

Slegin yfir að maðurinn sé enn við störf

Eva segir í samtali við DV að í raun séu læknarnir tveir sem þau hafa áhyggjur af að ekki hafi sinnt móður þeirra með faglegum hætti. Sá fyrrnefndi er, sem fyrr segir, við störf á Landspítalanum en hefur þó misst lækningaleyfi:

„Okkur finnst það mjög undarlegt að maðurinn sé við störf á meðan málið er enn í lögreglurannsókn og við erum slegin yfir því. Núna er fólk farið að hafa samband við okkur sem hefur reynslu af þessum tveimur læknum sem önnuðust hana, með sögur þess efnis að það hafi líka verið ósátt við þá.

Það voru tveir læknar sem við höfðum áhyggjur af að hefðu brugðist sínum starfsskyldum. En ég vil að það komi skýrt fram að hér er um grunsemdir að ræða. Það er ekki í okkar verkahring að skera úr um það hvort læknar eða annað heilbrigðisstarfsfólk hafi brotið af sér í starfi. Við erum ekki lögga. Við fórum þá leið að leita til Landlæknisembættisins sem er eftirlitsaðili. Það var ekki fyrr en eftir að álit Landlæknis kom sem við leituðum til lögreglu. Með því erum við ekki að kveða upp dóm heldur að fara fram á rannsókn en við hefðum vitaskuld ekki gert það nema vegna þess að okkur finnst álit Landlæknis gefa tilefni til þess,“ segir Eva.

Var ekki á neinum sterkum lyfjum

Í yfirlýsingu systkinanna kemur fram að móðir þeirra hafði við innlögn ekki verið grein með neinn lífsógnandi sjúkdóm og var ekki á neinum sterkum lyfjum. Hún var sett á lífslokameðferð samdægurs án þess að vera spurð álits á því né vera upplýst um það. Þau systkinin leituðu eftir skýringum á þessari ráðstöfun en fengu aldrei. Þau hafa komið þeim skilaboðum til lögreglu og þau telji eðlilegt að málið verði sannsakað sem manndráp.

Yfirlýsingin er eftirfarandi:

„Vegna frétta af rannsókn landlæknisembættsins á máli læknis sem til skamms tíma var starfandi á Heilbrigðisstofnun Suðunesja viljum við undirrituð koma eftirfarandi á framfæri:

Mál þetta hófst með kvörtun okkar vegna þeirrar þjónustu sem móðir okkar fékk í hvíldarinnlögn á legudeild HSS haustið 2019. Þáverandi yfirlæknir var ábyrgur fyrir meðferð hennar. Þegar hún lagðist inn var hún ekki greind með neinn lífsógnandi sjúkdóm og var ekki á neinum sterkum lyfjum. Hún var sett á lífslokameðferð samdægurs, án þess að vera spurð álits á því eða vera upplýst um það. 

Í áliti landlæknis eru athugasemdir gerðar við fjölda þátta í meðferð HSS á móður okkar. Þær alvarlegustu varða lífslokameðferð sem hún sætti án þess að nokkrar forsendur væru fyrir hendi sem réttlættu þá ráðstöfun. Lífslokameðferð er lokastig líknarmeðferðar og felur það í sér að ekkert er gert til að lengja líf sjúklings, sýkingar ekki meðhöndlaðar og næringu og vökva ekki haldið að sjúklingnum. Slíkri meðferð er aðeins beitt þegar sjúklingur er að dauða kominn og stendur hún venjulega aðeins í örfáa daga. 

Þrátt fyrir ítrekaðar spurningar fengum við engar skýringar á því hvaða sjúkdómar væru að draga móður okkar til dauða eða hversvegna hún væri á stórum skömmtum af slævandi lyfjum. Upplýsingar sem við fengum voru í mikilvægum atriðum rangar; bæði yfirlæknirin og annar læknir sem kom að meðferð hennar fóru með ósannindi sem voru til þess fallin að koma í veg fyrir björgunartilraunir aðstandenda.

Síðustu vikurnar voru móður okkar hreint kvalræði. Þar sem henni var haldið í lyfjamóki var ekki hægt að ná eðlilegu sambandi við hana. Þegar hún gerði tilraunir til að hafna meðferð, t.d. með því að losa sig við nálar og lyfjaplástra var litið á það sem hegðunarvandamál. Sýkingar voru ekki meðhöndlaðar. Þegar fór að draga svo af henni að hún hætti að bera sig eftir næringu og vökva var ekkert gert í því. Enda var hún á lífslokameðferð – án ástæðu.

Fram hefur komið í fréttum að mál læknisins sé á borði lögreglu. Hvað nákvæmlega það er sem lögreglu var falið að rannsaka er þó óljóst. Við systkinin höfum komið þeirri afstöðu á framfæri við lögregluna á Suðurnesjum að við teljum álit landlæknis gefa tilefni til þess að rannsaka málið sem manndráp. Vísum við í því sambandi til lokaorða í álitsgerðinni. Þar kemur fram að gögn málsins styðji ekki þær skýringar læknisins að lifslokameðferð hafi verið skráð fyrir mistök en að í raun hafi verið um einkennameðferð að ræða. Telur landlæknir að þvert á móti hafi meðferðin frá fyrsta degi verið samsvarandi lífslokameðferð að eðli og framkvæmd. Þá segir orðrétt í álitinu:

Þetta hafði þær afleiðingar að mati landlæknis að í ellefu vikna langri legu hrakaði DJ; hún var með legusár, næringarskort og sýkingar allt fram til andlátsins, sem verður að telja líklegt að hafi orðið fyrr en ella vegna þeirrar meðferðar sem hún hlaut.

Móðir okkar dó 73 ára að aldri. Læknirinn sem setti hana á tilefnislausa lífslokameðferð er nú við störf á bráðalyflækningadeild Landspítalans.

Eva Hauksdóttir
Hugljúf Dan Hauksdóttir
Borghildur Hauksdóttir
Guðbjörn Dan Gunnarsson“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Fréttir
Í gær

Segist enga tengingu hafa við heimalandið en verður samt að sitja í fangelsi þar

Segist enga tengingu hafa við heimalandið en verður samt að sitja í fangelsi þar
Fréttir
Í gær

Kíghósti greinist hjá nokkrum ótengdum einstaklingum á höfuðborgarsvæðinu

Kíghósti greinist hjá nokkrum ótengdum einstaklingum á höfuðborgarsvæðinu