fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Fréttir

„Algjör tímaskekkja“ segir Arnar – „Fela sig á bak við ömurleg vinnubrögð“

Máni Snær Þorláksson
Fimmtudaginn 28. janúar 2021 12:02

Mynd/Samsett

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Að stofna Aðgengissjóð Reykjavíkurborgar er algjör tímaskekkja og mun því miður halda áfram að draga okkur aftar og aftar í aðgengismálum í Reykjavík.“

Þetta segir Arnar Helgi Lárusson, formaður SEM samtakanna, í pistli sem birtist í morgun á Vísi. SEM samtökin eru samtök endurhæfðra mænuskaddaðra. „Þar sem nánast allir félagsmenn nota hjólastól til þess að komast á milli staða og aðgengi er okkar hjartans mál og höfum barist fyrir því í áratugi,“ segir Arnar um samtökin í pistlinum sem fjallar um Aðgengissjóð Reykjavíkurborgar sem verður formlega stofnaður um mánaðarmótin.

„Samkvæmt öllum þeim byggingarreglugerðum síðan 1979 þá á enginn opinber staður sem sagt sjoppa, bensínstöð, bíó, veitingastaðir, kaffihús, verkstæði, fataverslun, læknisþjónusta og öll önnur þjónusta sem til er á Íslandi að vera óaðgengileg og það eru ekki margir staðir á Íslandi sem hafa verið opnir lengur en það,“ segir Arnar.

Arnar segir að hugsunin á bakvið stofnun sjóðsins sé góð og að hann sé ekki að setja út á hana. „En hér koma mín rök,“ segir hann svo. „Aðgengi hefur aldrei snúist um pening nema þegar það á að grípa í taumana allt of seint. Það kostar ekkert að skila góðri hönnun þegar það er verið að hanna eitthvað, það kostar ekkert meira að fara eftir góðri hönnun frekar en lélegri hönnun.“

„Fela sig á bak við ömurleg vinnubrögð“

Samkvæmt Arnari þá er skortur á því að starfsmenn Reykjavíkurborgar og byggingarfulltrúar vinni vinnuna sína og fari yfir þær framkvæmdir sem verið er að framkvæma. „Hvaða vissa er fyrir því að þeir byrji að sinna sinni vinnu þó það sé kominn sjóður til þess að taka til eftir þá. Er kannski hugmyndin að leggja starf byggingarfulltrúa niður og hvað gerist þegar sjóðurinn verður tómur og þeir sem fá ekki út úthlutað úr honum, setja bara þröskuld því þeir fengu ekkert úr sjóðnum. Er kannski kominn annar sjóður til þess að styrkja fyrirtæki til þess að fara eftir eldvarnarlögum eða heilbrigðis lögum?“ spyr hann.

„Nei ég held ekki, þetta er bara eitt enn flækjustig til þess að fela sig á bak við ömurleg vinnubrögð. Reykjavíkurborg ætti að nota þessar 5 milljónir til þess borga fyrir eftirlit með byggingarfulltrúa og setja pressu á hann til þess að sinna sínu starfi. Því nokkrar milljónir hafa ekkert að segja á móti þeim fjölda breytinga sem eiga sér stað í borginni og það mun ekki kosta borgina krónu hvað þá einhverja fjársterka aðila, fyrirtæki og félagasamtök ef borgin færi bara eftir lögum og reglum.“

Þá segir Arnar að það sé orðinn vani að þessu eftirliti sé ekki sinnt. „Rót vandans er kannski sú að borgin eins og sveitarfélög sinna eigin eftirliti og það er kannski sú breyting sem þarf að eiga sér stað,“ segir hann. „Ég segi nei takk við aðgengissjóði Reykjavíkurborgar, nema þá til að nota hann í eftirlit þar sem það er það sem vantar.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Sigmar harðorður um stöðuna hér á landi – „Þetta er hálf­gerð sturlun“

Sigmar harðorður um stöðuna hér á landi – „Þetta er hálf­gerð sturlun“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki
Fréttir
Í gær

Þingmaður bendir á athyglisverða staðreynd – „Með brotabroti af útgjöldum okkar til hersins höfum við náð þessum árangri gegn Rússlandi“

Þingmaður bendir á athyglisverða staðreynd – „Með brotabroti af útgjöldum okkar til hersins höfum við náð þessum árangri gegn Rússlandi“
Fréttir
Í gær

Lögreglan sleppir tveimur í morðmálinu á Suðurlandi

Lögreglan sleppir tveimur í morðmálinu á Suðurlandi
Fréttir
Í gær

Fjallar um fordóma gegn Baldri – „Hafa litlu mennirnir fengið háværari rödd?“

Fjallar um fordóma gegn Baldri – „Hafa litlu mennirnir fengið háværari rödd?“
Fréttir
Í gær

Yfirmaður á hjúkrunarheimili snýr til baka úr leyfi í skugga ásakana um áreitni við ungt starfsfólk

Yfirmaður á hjúkrunarheimili snýr til baka úr leyfi í skugga ásakana um áreitni við ungt starfsfólk