fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Fréttir

Tekist á um öryggi í framhaldsskólum eftir árás í Borgó

Heimir Hannesson
Föstudaginn 15. janúar 2021 10:40

Viðbúnaður lögreglu var mikill eftir árás í Borgarholtsskóla. mynd/Anton Brink

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Óhætt er að segja að blóðug og hættuleg árás sem átti sér stað í Borgarholtsskóla í vikunni hafi vakið mikinn óhug. Ljósmyndir og myndbandsupptökur sem DV birti af árásinni vöktu mikil og hörð viðbrögð og spurt var hvernig slíkt gæti átt sér stað innan veggja skóla hér á landi. Á myndbandinu sjást árásarmennirnir sveifla kylfu af miklum krafti og auðvelt er að álykta að hending ein hafi komið í veg fyrir stórslys, þó fjölmargir hafi vissulega slasast.

Lögreglan handtók á í gær þrjá menn í tengslum við árásina. Samkvæmt frásögn móður tveggja fórnarlamba árásarmannanna var um að ræða óuppgerðar sakir frá því síðasta haust. Árásarmennirnir höfðu reynt að ginna fórnarlömb sín upp í Spöngina, verslunarkjarna í Grafarvogi, en þegar það tókst ekki lögðu þeir leið sína í Borgarholtsskóla. Sex voru fluttir á slysadeild.

Vill rafræna aðgangsstýringu að Borgó

Ársæll Guðmundsson, skólameistari Borgarholtsskóla, sagði í viðtali strax sama dag og árásin átti sér stað að árásin yrði til þess að breyta ýmsu í íslensku samfélagi og á skólakerfinu.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Ársæll viðrar hugmyndir að breytingum á umhverfi íslenskra skóla. Í samtali við DV segir Ársæll að hann hafi reyndar rætt þetta í mörg ár. Breytt umhverfi og atburði sem hafi verið að gerast, m.a. í nágrannalöndum okkar, segir Ársæll meðal ástæðna fyrir þessum hugmyndum sínum.

„Ég hef verið að tala um þetta, já, og hvað aðgengi að þessum stofnunum er í raun og veru óheft fyrir utanaðkomandi aðila. Við getum ekki fylgst með öllum þessum inngöngum í þessi hús,“ útskýrir Ársæll. „Oft á tíðum eru skrifstofur skólanna á annarri hæð húsanna en ekki við innganga. Ég veit ekki hvers vegna, kannski vegna einhverrar tísku hjá arkitektum, en það er oft þannig.“ Því sé oft nokkur umgangur um ganga skólanna.

Ársæll segir að hann og aðrir stjórnendur í Borgarholtsskóla hafi lagt það til að gömlu hefðbundnu læsingunum yrðu skipt út og rafrænni aðgangsstýringu komið fyrir í staðinn.

Ríkiseignir neita að borga

Ríkiseignir eiga fasteignirnar sem hýsa framhaldsskóla, en Ársæll segir þær ekki vilja taka neinn þátt í kostnaðinum. „Þeir vilja að þetta komi úr rekstrarfé skólanna, en það er bara ekki hægt,“ útskýrir hann. „Nú fer þessi umræða væntanlega aftur af stað eftir þennan atburð. Ég hefði þá helst viljað taka sérstaka umræðu um hvernig aðgengi að skólastofnunum eigi að vera eftir þetta.“

Kostnaðurinn við uppsetningu á rafrænni aðgangsstýringu er á annan tug milljóna króna, segir Ársæll. „Þetta er dýrt kerfi því það þarf að leggja að þessu rafmagnslagnir og koma fyrir tölvustýringum og forrita tölvukerfin. Við höfum verið að skoða þetta fyrir þennan atburð og fyrir COVID.“

Stjórnendur í Borgarholtsskóla höfðu fyrir COVID lokað inngöngum og reynt að stýra flæði nemenda um fáa innganga, en það gekk auðvitað ekki á COVID-tímum.

Öryggismyndavélar mynda bara glæpinn

„Við erum með öryggismyndavélar hérna í skólanum, en þær mynda bara atburðinn en koma ekki í veg fyrir þá. Þegar brjálæðið er orðið eins og það var í gær þá skipta líka öryggismyndavélar ekki neinu máli,“ segir Ársæll.

Hann segist jafnframt ætla að halda umræðunni um þetta á lífi. „Ég veit að fleiri skólar eru á þessu og eru að skoða þetta með rafræna aðgengið. Við höfum jafnframt rætt við ríkislögreglustjóra og menntamálaráðuneytið og skólameistarafélagið hefur fjallað um þetta mál á sínum vettvangi. Auðvitað viljum við hafa þetta frelsi á Íslandi og allt opið, en við vitum að það eru einstaklingar í samfélaginu sem geta ekki farið eftir reglum eða eru á þannig stað í lífinu að þeir eru bara hættulegir,“ segir hann að lokum.

Skiptar skoðanir um hugmyndir Ársæls

Kristinn Þorsteinsson, formaður Skólameistarafélagsins og skólameistari í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ, segir skólastjórnendur þar ekki hafa tekið sérstaka afstöðu til frekari aðgangsstýringar en tekur undir með Ársæli að frelsið hér á Íslandi sé dýrmætt og ljóst að það þurfi að verja. „Það er nú verið að vinna að viðbragðsáætlun framhaldsskólanna, sem verður þá leiðbeiningarskjal fyrir framhaldsskóla í neyðartilfellum.“

Skýrslan er unnin í samráði við meðal annars almannavarnadeild ríkislögreglustjóra að frumkvæði Skólameistarafélagsins. Kristinn segist ekki hafa séð lokaútgáfu skýrslunnar en að von sé á henni á næstunni. Segist Kristinn búast við að litið verði til hennar í sambandi við næstu skref.

Aðrir skólastjórnendur sem DV ræddi við, bæði í borginni og utan hennar, en vildu ekki koma fram undir nafni sögðust allir uggandi yfir atburðum vikunnar í Borgarholtsskóla og að vissulega væri tilefni til þess að skoða hvort hægt hefði verið að koma í veg fyrir þá. Aðgangsstýring og aukið eftirlit hefði ekki endilega gert það. „Það er alveg ljóst að öryggismyndavélar komu ekki á neinn hátt í veg fyrir árásina í Borgó, þessum mönnum var alveg sama þó þeir næðust á mynd,“ sagði einn. Annar sagðist ekki endilega sjá lausn í aðgangsstýringu. „Í flestum framhaldsskólum, þá sérstaklega utan höfuðborgarinnar, er byggingum hreinlega læst á kvöldin og þær eru galopnar á daginn. Ég á mjög erfitt með að sjá það breytast á næstunni.“

Lilja Alfreðsdóttir menntamálaráðherra sagði í gær, fimmtudag, við Fréttablaðið að öryggismál í framhaldsskólum yrðu skoðuð og rædd á fundi hennar með skólameisturum og rektorum framhaldsskóla. „Þar förum við yfir ofbeldið sem átti sér stað í gær og stöðuna,“ var haft eftir menntamálaráðherra í blaðinu.

Ekki náðist í fulltrúa Ríkiseigna við vinnslu fréttarinnar en Ríkiseignir eiga og reka húsnæði íslenskra framhaldskóla.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Stefnir í miklar úrbætur á stöðu leigjenda á Íslandi – Þetta eru helstu skyldurnar sem munu falla á herðar leigusala

Stefnir í miklar úrbætur á stöðu leigjenda á Íslandi – Þetta eru helstu skyldurnar sem munu falla á herðar leigusala
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

„Grípa margir til þeirra örþrifaráða að flýta fyrir eigin dauða“

„Grípa margir til þeirra örþrifaráða að flýta fyrir eigin dauða“
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Forsetaframbjóðandi greiddi fyrir viðtalið í NBC – Segir verðið trúnaðarmál – „I´m Gonna Win, There You Go“

Forsetaframbjóðandi greiddi fyrir viðtalið í NBC – Segir verðið trúnaðarmál – „I´m Gonna Win, There You Go“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Halla tjáir sig um ferilskrána: „Ég hef enga ástæðu til að ýkja eitt eða neitt í mínum bakgrunni“

Halla tjáir sig um ferilskrána: „Ég hef enga ástæðu til að ýkja eitt eða neitt í mínum bakgrunni“