fbpx
Mánudagur 16.júní 2025
Fréttir

Aukist mjög að fyrirtæki gefi starfsmönnum sumargjafir

Bjarki Sigurðsson
Miðvikudaginn 28. apríl 2021 10:28

Ari Steinarsson og Ragnar Árnason í YAY

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fjártæknifyrirtækið YAY flutti á dögunum skrifstofur sínar í Grósku, hús hugmynda og nýsköpunar í Vatnsmýrinni. YAY er markaðstorg fyr­ir ra­f­ræn gjafa­bréf frá fjölda fyr­ir­tækja í gegn­um smáforrit sem nefn­ist YAY.

„Við erum afar ánægð að vera flutt í Grósku í Vatnsmýrinni sem hýsir kraftmikið samfélag sköpunar og frumkvöðlastarfs,“ segir Ari Steinarsson framkvæmdastjóri YAY. „Það er mikið í gangi hjá okkur og það skemmtilega núna er að það hefur aukist mjög mikið að fyrirtæki eru að gleðja starfsmenn sína með skemmtilegum sumargjöfum með tilkomu stafrænnar dreifingar á YAY gjafabréfunum. Fyrirtækin eru að gefa allt frá ís, út að borða, kaffi, bakarí að ónefndum gjafabréfum með gourme mat til að skella á grillið. Óhætt að segja að þetta kemur okkur sannarlega í sumarskap,“ segir Ari ennfremur.

YAY hefur meðal annars séð um Ferðagjöfina fyrir íslenska ríkið sem Íslendingar hafa nýtt sér vel á ferðalögum innanlands frá því síðastliðið sumar og gengið framar vonum. Fyrirtækið hefur vaxið mjög á stuttum tíma og selur nú gjafabréf frá yfir 140 fyrirtækjum. Mastercard valdi nýverið YAY, fyrst íslenskra fyrirtækja, til að taka þátt í sérstöku verkefni sem heitir Mastercard Lighthouse.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Tveir látnir á Edition hótelinu – Þriðji með áverka

Tveir látnir á Edition hótelinu – Þriðji með áverka
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Rannsaka hvort vefsíða hýst á Íslandi hafi verið notuð til að hafa áhrif á pólsku forsetakosningarnar

Rannsaka hvort vefsíða hýst á Íslandi hafi verið notuð til að hafa áhrif á pólsku forsetakosningarnar
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Umsáturseinelti og braut gegn nálgunarbanni á Vesturlandi – Hnýstist í samfélagsmiðla og átti samskipti í annars nafni á Smitten

Umsáturseinelti og braut gegn nálgunarbanni á Vesturlandi – Hnýstist í samfélagsmiðla og átti samskipti í annars nafni á Smitten
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Oddný Eir tekur við Gunnarsstofnun á Skriðuklaustri

Oddný Eir tekur við Gunnarsstofnun á Skriðuklaustri
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Læknahjónin ætluðu að hefja nýtt líf – Tóku þessa mynd skömmu fyrir flugtak

Læknahjónin ætluðu að hefja nýtt líf – Tóku þessa mynd skömmu fyrir flugtak
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Sat í sæti 11A og var sá eini sem komst lífs af – Bróðir hans í sæti 11 J hvarf í eldhafið

Sat í sæti 11A og var sá eini sem komst lífs af – Bróðir hans í sæti 11 J hvarf í eldhafið