fbpx
Sunnudagur 01.júní 2025
Fréttir

Segir að sakaskrá Sigga hakkara sé eins og tékklisti fyrir hegningarlögin

Ágúst Borgþór Sverrisson
Miðvikudaginn 6. janúar 2021 08:30

Kristinn Hrafnsson (t.v.), Siggi hakkari og Julian Assange.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kristinn Hrafnsson, ritstjóri Wikileaks, birti í gærkvöld pistil í tilefni fregna um að bandarísk stjórnvöld hafi árið 2011 fengið leyfi hjá íslenskum yfirvöldum til að búa til fölsuð trúnaðargögn í tengslum við rannsókn á Julian Assange, stofnanda Wikileaks. Þekktur hakkari er sagður hafa matað Assange með fölsuðum gögnum. (Sjá vef RÚV).

Bandarísk yfirvöld vilja fá Assange framseldan til Bandaríkjanna fyrir meint brot á njósnalögum vegna gagnaleka Wikileaks um framferði bandaríska hersins í Afganistan og víðar. Assange er sagður hafa notast við þjónustu Sigurðar Þórðarsonar, Sigga hakkara, við að komast yfir leynigögn, en hann ber vitni fyrir bandaríska dómsmálaráðuneytið.

Kristinn segir í grein sinni að ferill Sigga hakkara sé eins og tékklisti yfir hegningarlögin þar sem búið sé að haka við alls konar afbrot:

„Það er með ólíkindum og algerlega ólíðandi ef íslensk yfirvöld hafa tekið þátt í vitfirrtri eftirför Bandaríkjamanna gegn Julian Assange og WikiLeaks. Það er hins vegar skiljanlegt að þessi stjórnlausa maskína vestra hafi tekið í sína þjónustu Sigurð Inga Þórðarson, mann með sakaskrá sem er eins og tékklisti yfir hegningarlögin þar sem búið er að haka við fjölda ákvæða, samkvæmt fyrirliggjandi dómum. Lygar, þjófnaður, blekkingar, falsanir, kynferðisbrot gegn fjölda drengja undir lögaldri. Dómkvaddur sérfræðingur úrskurðaði að siðblinda hrjáði manninn. Sakhæfur engu að síður. Þetta er „stjörnuvitni“ bandaríska dómsmálaráðuneytisins í hælbitinu og hæfir skel kjafti.“
Kristinn segir að ákæruskjal bandaríska ákæruvaldsins gegn Assange sé samsuða af dylgjum og óhróðri en með ákærunni vilja Bandaríkjamenn sanna að Assange sé hakkari en ekki útgefandi. Kristinn ritar:
„Þegar leið að framhaldi dómsmeðferðar í framsalsmáli Julians í London síðasta sumar snaraði ameríska saksóknin fram uppfærslu á áður uppfærðu ákæruskjali. Það var algerlega breytt í allri framsetningu, engin ný ákæruatriði en ótrúleg samsuða af dylgjum og óhróðri sem áttu að sýna fram á að Julian væri ótíndur skaðamaður. Ein helsta heimildin var Sigurður Ingi (sem skv þjóðskrá hefur nú týnt millinafninu).
Svo mikil var breytingin á skjalinu að það varð að gefa út nýja framsalsbeiðni og þar með nýja handtökuskipun í Bretlandi. Í fangaklefa í London síðsumars var Julian leystur úr haldi og handtekinn strax aftur í súrealískri athöfn í þessari dauðakómedíu.“
Kristinn segir að í ákæruskjalinu sé dylgjað um að Assange hafi tekið þátt í að hlera síma þingmanna sem sé alvarlegt lögbrot. Engin slík símtöl hafi nokkurn tíma verið í fórum Wikileaks. Hins vegar hafi WikiLeaks birt sannanir fyrir því að símar Angelu Merkel og annarra þjóðaleiðtoga hafi verið hleraðir. Kristinn segir ennfremur um þetta:
„Til að hefja þetta yfir allan vafa fólum við Julian lögmanni á Íslandi að leita upplýsinga hjá opinberum embættum um hvort við hefðum á einhverjum tíma frá 2009 til dagsins í dag verið til rannsóknar eða haft réttarstöðu sakborninga eða grunaðra í einhverju sakamáli á Íslandi. Svar hefur nú borist frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og frá embætti Héraðssaksóknara (og forvera þess) þar sem staðfest er að svo sé ekki og hafi ekki verið.“
Breskur dómstóll hafnaði nýlega kröfu bandarískra yfirvalda um framsal Julian Assange til Bandaríkjanna á grundvelli slæms heilsufars hans.
Ítarlegan pistil Kristins Hrafnssonar má lesa í heild með því að smella á tengilinn hér að neðan.

https://www.facebook.com/kristinn.hrafnsson.9/posts/10158848942852964

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Snorri gagnrýnir Samtökin 78 – Vilja að Amtsbókasafnið slíti samstarfi við konu sem hefur gagnrýnt hefur transmálefni

Snorri gagnrýnir Samtökin 78 – Vilja að Amtsbókasafnið slíti samstarfi við konu sem hefur gagnrýnt hefur transmálefni
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kirkjurækinn fjölskyldufaðir ákærður fyrir að hafa ekið inn í mannfjölda í sigurgöngu Liverpool – Var í tilfinningalegu uppnámi í dómssal

Kirkjurækinn fjölskyldufaðir ákærður fyrir að hafa ekið inn í mannfjölda í sigurgöngu Liverpool – Var í tilfinningalegu uppnámi í dómssal