fbpx
Mánudagur 07.júlí 2025
Fréttir

Tvær líkamsárásir í Kópavogi

Kristján Kristjánsson
Miðvikudaginn 16. september 2020 06:49

Mynd/Ernir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Klukkan 17.30 í gær var maður kærður fyrir hótanir og líkamsárás í Kópavogi. Hann hafði að sögn veitt árásarþola áverka á hendi og bringu. Hinn kærði var farinn af vettvangi þegar lögreglan kom. En málinu var ekki þar með lokið því klukkan 18.10 réðust fjórir menn á einn í Kópavogi og veittu honum áverka. Árásarþolinn í því máli er hinn meinti gerandi í fyrra málinu.

Klukkan 01.20 í nótt hafði lögreglan afskipti af ökumönnum tveggja bifreiða í hverfi 105. Þeir eru grunaðir um kaup/sölu fíkniefna. Hvorugur vildi kannast við að hafa verið að selja fíkniefni en báðir sögðust hafa verið að kaupa þau efni sem fundust í bifreið annars.

Á áttunda tímanum í gærkvöldi var tilkynnt um innbrot/þjófnað í bílageymslu í Kópavogi. Þar var verkfærum stolið úr skáp.

Fimm ökumenn voru handteknir í gærkvöldi og nótt, grunaðir um að vera undir áhrifum áfengis og/eða fíkniefna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ymur Art sakfelldur fyrir morð á móður sinni en honum ekki gerð refsing

Ymur Art sakfelldur fyrir morð á móður sinni en honum ekki gerð refsing
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ísraelar fagna eftir lokaðan fund Eurovision – Íslendingum og Slóvenum tókst ekki að reka þá úr keppninni

Ísraelar fagna eftir lokaðan fund Eurovision – Íslendingum og Slóvenum tókst ekki að reka þá úr keppninni
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Harmleikurinn á Edition-hótelinu – Gæsluvarðhald framlengt um fjórar vikur

Harmleikurinn á Edition-hótelinu – Gæsluvarðhald framlengt um fjórar vikur
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Hart tekist á um Fannborgarreitinn í Kópavogi – Bílastæði séu einhliða tekin af íbúum

Hart tekist á um Fannborgarreitinn í Kópavogi – Bílastæði séu einhliða tekin af íbúum