Anna Guðrún Sigurðardóttir, fyrrverandi starfsmaður Íþróttasambands fatlaðra, ákvað árið 2017 í kjölfar mikilvægrar endurhæfingar á Reykjalundi, að taka ábyrgð á eigin heilsu og sækja um styrk til kaupa á hjálpartæki sem gerði henni kleift að halda endurhæfingu áfram. Nú árið 2020 er mál hennar enn í ferli, bréf fara á milli staða fram og aftur og lokaniðurstaða óljós.
Þetta kemur fram í nýrri grein í Hvata, tímariti Íþróttasambands fatlaðra.
Fyrir fólk með hreyfihömlun er öll líkamsþjálfum afar mikilvæg en því miður virðist oft ganga mjög hægt og illa fyrir þetta fólk að fá styrk til kaupa á hjálpartækjum. Í greininni segir:
„Á Covid tímum þegar fólk hefur þurft að huga sérstaklega að andlegri og líkamlegri heilsu, hefur landlæknir ítrekað bent á mikilvægi hreyfingar, næringar og svefns. Fólk hefur upplifað nýja tíma, jafnvel innilokað á heimilum sínum og fundið hve erfitt það er að komast ekki í sund, líkamsrækt, útivist eða aðra reglulega hreyfingu. Andleg og líkamleg líðan er í húfi og allir fá hvatningu til að gera heimaæfingar eða ef hægt er, fara út í göngu eða hjólatúr.“
Ferlið við að sækja um styrk til kaupa á hjálpartækjum til endurhæfingar er langt og strangt og getur endað með höfnun:
„Í kjölfar þess að umsókn var hafnað, hefur málið verið í ferli þar sem umsækjandi óskar nánari skýringa. Bréf hafa farið á milli þar sem umboðsmenn umsækjenda vísa í atriði sem talið er að hafi átt að taka tillit til og geti haft áhrif á niðurstöðu. Bréf hafa frá 2017 farið milli umsækjanda, Sjúkratrygginga Íslands, hjálpartækjamiðstöðvar SÍ úrskurðarnefndar velferðarmála og umboðsmanns alþingis. Þar er vísað í lög og reglugerðir s.s. lög um Sjúkratryggingar Íslands, 26 gr , reglugerð um styrki vegna hjálpartækja 3. gr, Samning sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðra o.s.frv.
Upp úr stendur að málið er alls ekki í samræmi við brýn skilaboð landlæknisembættisins um mikilvægi hreyfingar og heilsueflandi samfélaga um gildi þess að bera ábyrgð á eigin heilsu.“
Tímaritið Hvati kemur núna út á netinu eingöngu, vegna kórónuveirufaraldursins, en um er að ræða ársrit sem hefur komið út í 30 ár. Þess má enn fremur geta að Íþróttasamband fatlaðra fagnaði 40 ára afmæli á síðasta ári en sambandið var stofnað 17. maí árið 1979.
Tímaritið er allt aðgengilegt á netinu og er stútfullt af fjölbreyttu og áhugaverðu efni.