„Það kom svo sem ekkert á óvart að Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, skyldi tala eins og popúlisti í fyrirspurnatíma á Alþingi í gær. Samfylkingin leggur fátt gagnlegt til mála en þrífst helst á hvers kyns lýðskrumi.“
Þetta segir í leiðara Morgunblaðsins í dag þar sem formaður Samfylkingarinnar, Logi Einarsson, er gagnrýndur harðlega. Í fyrirspurnartíma á Alþingi í gær vakti Logi máls á stöðu kjarasamninga, en um 1.850 félagsmenn Eflingar hjá Reykjavíkurborg lögðu niður störf í gær. Þá lýsti Logi áhyggjum sínum á því að allt stefndi í víðtækar verkfallsaðgerðir allt að 20 þúsund opinberra starfsmanna BSRB.
„Við í Samfylkingunni höfum margoft bent ráðherrum á að enn á eftir að mæta stórum hópum sem ríkisstjórnin ber ábyrgð á, öldruðum, öryrkjum, námsmönnum og auðvitað fjölmennum kvennastéttum. Það vita allir hér inni að fólk dregur ekki eða á í besta falli erfitt með að draga fram lífið á lægstu laununum sem greidd eru á Íslandi,“ sagði Logi meðal annars.
Leiðarahöfundi Morgunblaðsins – ekki er ólíklegt að þar haldi Davíð Oddsson á penna – þykir ekki mikið til þessa málflutnings koma og segir að Logi hefði frekar átt að beina fyrirspurn sinni til Dags B. Eggertssonar, flokksbróður síns og borgarstjóra.
„Logi gekk á forsætisráðherra vegna kjaradeilna sem nú standa yfir og verkfalla sem hafa munu mikil áhrif. Auðvitað hefði formaður Samfylkingarinnar átt að beina fyrirspurninni til flokksbróður síns í ráðhúsinu, en það þjónaði ekki þeim tilgangi að slá sig til riddara á kostnað vitrænnar umræðu. Verulegt áhyggjuefni er, nú þegar svo erfiðlega horfir í efnahagsmálum og vinnudeilur auka á vandann, að þingmenn og jafnvel flokksleiðtogar skuli ekki sýna ábyrgð og reyna að stuðla að sátt og leita jákvæðrar niðurstöðu. Landsmenn þurfa ekki á því að halda nú að þingmenn reyni að ýta undir ófrið á vinnumarkaði til að lyfta sér upp í popúlísku orðaskaki.“