Um þrjúleitið í dag varð slys við spennustöð í Önundarfirði. Umrætt slys olli rafmagnsleysi í firðinum, þetta kemur fram í tilkynningu frá Orkubúi Vestfjarða, þar kemur einnig fram að verið sé að skoða aðstæður.
Elías Jónatansson, Orkubússtjóri, staðfesti slysið og sagði að maður væri á leið til Reykjavíkur með sjúkraflugi vegna þess. Hann gat ekki tjáð sig um líðan mannsins og eða tjáð sig frekar um málið.