Svona hefst tölvupóstur sem stjórnendur Álftamýrarskóla sendu foreldum og forráðamönnum nemenda skólans í gær. „Það ber á átökum og hótunum sem jafnvel hafa endað með ofbeldi. Stelpurnar eru að hóta hverri annarri barsmíðum og við höfum fengið upplýsingar um að einhver slagsmál hafi brotist út, þó ekki í skólanum eða á skólatíma,“ segir í póstinum auk þess sem það er sagt að þetta eigi alls ekki við um allan hópinn. Svona hegðun hafi þó mikil áhrif á líðan nemenda og skólabraginn almennt.
„Við verðum að hjálpast að við að uppræta þessa hegðun, þetta hefur skapað ólgu og spennu hér í skólanum. Við viljum að nemendur séu öruggir hjá okkur og vonum að þið ræðið við ykkar börn og farið yfir alvarleika málsins. Við munum fylgja málum vel eftir hér innan húss og hugmyndin er að fá til liðs við okkur utan að komandi ráðgjöf sem jafnvel myndi ræða við nemendur.“
Um klukkustund eftir að tölvupósturinn var sendur barst foreldrum og forráðamönnum annar tölvupóstur. Í þeim pósti kom fram að þrjár úlpur frá framleiðandanum 66°Norður hafi horfið af unglingagangi. Ein úlpan var hvít en hinar tvær voru svartar, allar voru með loðkraga. „Það er enginn að koma inn í skólann og því verðum við því miður að beina sjónum okkar að nemendum sem einir ganga um gangana í dag. Þið megið gjarnan hafa augu og eyru opin og láta okkur vita ef þið fáið einhverjar upplýsingar.“
Lögreglan kom í skólann í dag og þetta staðfestir Hanna Guðbjörg Birgisdóttir, skólastjóri Álftamýrarskóla, í samtali við DV, en vildi þó ekki segja hvers vegna lögreglan hefðu verið á staðnum. „Lögreglan kom bara hérna inn í skólann og svo fór hún. Lögreglan kom bara hingað til að aðstoða okkur með ákveðið mál,“ sagði Hanna í samtali við blaðamann.
DV hafði samband við Gunnar Rúnar Sveinbjörnsson, kynningarfulltrúa lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, sem neitaði fyrir það að lögreglan hafi verið við störf við skólann í dag. „Nei, lögreglan hefur ekki verið við Álftamýrarskóla í dag, en hins vegar við nokkra aðra skóla að sinna umferðareftirliti,“ sagði Gunnar í skriflegu svari. Þetta vekur athygli þar sem Hanna skólastjóri sagði sjálf að lögreglan hafi mætt í skólann í dag.