fbpx
Sunnudagur 25.maí 2025
Fréttir

Þroskahjálp undrast hvernig tekið var á ofbeldi gegn fötluðu barni

Ágúst Borgþór Sverrisson
Fimmtudaginn 14. maí 2020 16:13

Bryndís Snæbjörnsdóttir, formaður Þroskahjálpar

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Landssamtökin Þroskahjálp hafa sent frá sér yfirlýsingu vegna máls starfsmanns á leikskóla í Kópavogi sem sakfelldur var fyrir ofbeldi gegn fötluðu barni. Um er að ræða konu, þroskaþjálfa, sem dæmd var til að greiða barninu skaðabætur. Voru þetta tvö tilvik og taldist sannað að konan hefði í fyrra tilvikinu gripið harkalega um hendur barnsins og haldið því, en í því seinna slegið barnið utanundir. Konunni var ekki gerð refsing þar sem hún stríðir við andleg veikindi.

Yfirlýsing Þroskahjálpar vegna málsins er eftirfarandi:

„Landssamtökin Þroskahjálp lýsa yfir undrun og vonbrigðum hvernig tekið var á ofbeldisbroti gegn fötluðu barni hjá leikskóla Kópavogsbæjar.

Nýverið féll dómur í Héraðsdómi Reykjaness í máli þar sem þroskaþjálfi var dæmdur til að greiða skaðabætur fyrir að beita fatlað barn ofbeldi á leikskóla í Kópavogi. Í dómnum segir að tvö atvik hafi átt sér stað, og voru aðstandendur barnsins ekki látnir vita fyrr en eftir að ofbeldið hafði endurtekið sig.

Það er með öllu óviðunandi að fötluð börn og aðstandendur þeirra geti ekki treyst því að öryggi þeirra sé tryggt og að aðstandendum sé haldið utan við alvarleg atvik. Rannsóknir sýna að fatlað fólk er í sérstakri hættu að verða fyrir ofbeldi og það er skylda stjórnvalda og starfsmanna hins opinbera að verja þau og taka á slíkum brotum af festu. Glími starfsmenn við veikindi sem gætu orðið til þess að þeir missi stjórn á skapi sínu og geti ekki tekist á við hegðunaráskoranir nemenda, ber stjórnendum skylda til að taka á því og tryggja öryggi og velferð fatlaðra barna í hvívetna.“

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt