fbpx
Laugardagur 15.nóvember 2025
Fréttir

Hrafnistuforstjóri tekur við Reykjalundi

Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 12. maí 2020 13:52

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Pétur Magnússon hefur verið ráðinn forstjóri Reykjalundar endurhæfingarmiðstöðvar SÍBS frá og með 1. júní n.k.

Pétur er lyfjafræðingur að mennt og  með MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík með áherslu á mannauðsstjórnun.

Samkvæmt fréttatilkynningu hefur Pétur farsæla reynslu af stjórnun og rekstri í heilbrigðisþjónustu, en hann hefur stýrt Hrafnistuheimilunum síðastliðin 12 ár. „Á þeim árum hefur hann verið í fararbroddi í öldrunarþjónustu á landsvísu og leitt umfangsmikla uppbyggingu Hrafnistuheimilanna og átt frumkvæði að nýjungum og breytingum í þjónustu við aldraða. Hann hefur víðtæka reynslu af samskiptum við stjórnvöld og félagasamtök sem mun reynast mikilvægt fyrir framtíðarþróun endurhæfingarstarfsemi á Reykjalundi,“ segir í fréttatilkynningu, og ennfremur þetta:

„Reykjalundur er heilbrigðisstofnun í eigu Sambands íslenskra berkla- og brjóstholssjúklinga (SÍBS) og vinnur samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu á Íslandi. Um þjónustuna gildir þjónustusamningur milli Sjúkratrygginga Íslands og Reykjalundar og þar fer fram alhliða endurhæfing sem miðar að því að bæta lífsgæði, færni og sjálfsbjargargetu þeirra sem þangað leita.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Segir ekki flókna ástæðu valda því að fólk drepi aðra sér til skemmtunar

Segir ekki flókna ástæðu valda því að fólk drepi aðra sér til skemmtunar
Fréttir
Í gær

Stjórnarmaður RÚV segir pólitíska slagsíðu hafa áhrif á fréttaflutning miðilsins – „Fáránleikinn náði hápunkti hér um árið“

Stjórnarmaður RÚV segir pólitíska slagsíðu hafa áhrif á fréttaflutning miðilsins – „Fáránleikinn náði hápunkti hér um árið“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sérstaklega hættuleg líkamsárás í gistiskýlinu

Sérstaklega hættuleg líkamsárás í gistiskýlinu
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Múlaborgarmálið: Braut Hannes gegn fleiri börnum?

Múlaborgarmálið: Braut Hannes gegn fleiri börnum?