fbpx
Laugardagur 17.maí 2025
Fréttir

Lækna-Tómas ósáttur með ákvörðun Borgarleikhússins – „Hvaða skilaboð viljum við senda börnum okkar?“

Jón Þór Stefánsson
Mánudaginn 11. maí 2020 20:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Læknirinn Tómas Guðbjartsson, einnig þekktur sem Lækna-Tómas, birti í dag pistil á Vísi, þar sem hann tjáði sig um reykingarmyndina af Bubba Morthens. Myndin hefur verið áberandi í þjóðfélagsumræðunni undanfarna daga, en hún var notuð til að auglýsa leikhússýninguna Níu líf, sem fjallar einmitt um æfi Bubba.

„Klaufaleg ákvörðun“

Tómas segir að Borgarleikhúsið hefði getað tekist betur á við málið, en hann telur að betra hefði verið að skipta algjörlega um mynd, í stað þess að breyta henni.

„Sígarettumyndin af Bubba í auglýsingu Borgarleikhússins á söngleiknum Níu líf hefur fengið vægast sagt mikla athygli – en fyrirmyndin er gömul ljósmynd úr tímaritinu Samúel. Eins og búast mátti við bárust kvartanir frá aðilum eins og Krabbameinsfélaginu en þyngra vó þó ákvörðun Facebook að neita að birta auglýsinguna. Borgarleikhúsið brást við með því að fjarlægja sígarettuna en halda teikningunni að öðru leyti óbreyttri. Þetta var klaufaleg ákvörðun og hefði verið nær að fjarlægja myndina og koma með aðra betri í staðinn. “

Tómasi þykir sérstakt að umrædd mynd hafi orðið fyrir valinu. Hann telur að fleiri frábærar myndir hefðu verið í boði, enda séu reykingar dauðans alvara.

„Ég vil taka skýrt fram að ritskoðun er mér almennt ekki að skapi og ég trúi á frelsi listarinnar – sem á að vera ögrandi. Mér finnst Bubbi líka frábær listamaður. En það var smekklaust hjá auglýsingastofunni sem stýrði herferðinni að velja akkúrat þessa mynd til að auglýsa söngleik um ævi þessa konungs. Það eru til þúsundir af flottum myndum af Bubba og óþarfi að sýna hann reykjandi, enda löngu hættur að reykja og í dag tengja flestir tengja hann við heilbrigðan lífsstíl.

Borgarleikhúsið hefði heldur aldrei átt að samþykkja þessa mynd sem „andlit“ auglýsingaherferðarinnar. Reykingar eru dauðans alvara og taldar kosta íslenskt þjóðfélag allt að 80 milljörðum á ári. Annað algengasta krabbamein á Íslandi, lungnakrabbamein, er í allt að 90% tilfella rakið beint til reykinga. Úr því látast 140 Íslendingar á hverju ári, fleiri en úr nokkru öðru krabbameini og fleiri einstaklingar samanlagt en úr brjósta- blöðruháls- og ristilkrabbameini.“

Stolltur af heimsmetinu sem við deilum með svíum

Í starfi sínu hittir Tómas lungnakrabbameinssjúklinga á hverjum degi. Hann segir að ef að það sé eitthvað sem þeir sjái eftir, þá séu það einmitt reykingarnar.

„Lungnakrabbameinssjúklinga hitti ég á hverjum degi í starfi mínu sem skurðlæknir og engu sjá þeir jafn mikið eftir og að hafa byrjað að reykja. Tóbaksreykingar eiga einnig stóran þátt í fjölda annarra krabbameina og skýra allt að fjórðung allra hjartaáfalla – sem ásamt krabbameinum er algengasta dánarorsökin á Íslandi. Sem betur fer hafa tóbaksvarnir skilað frábærum árangri á Íslandi og í dag reykja aðeins 6% fullorðinna daglega og önnur 3% sjaldnar en daglega – sem er heimsmet sem við deilum með Svíum. Sem samfélag erum við þó enn að borga fyrir reykingar fyrri áratuga – og það enga smápeninga.

Enn mikilvægara er þó hversu marga Íslendinga reykingar leggja að velli – mannslíf sem ekki er hægt að meta til fjár. Góður árangur í tóbaksvörnum hérlendis hefði aldrei náðst án mikilla takmarkana á aðgengi og háu tóbaksverði. Sennilega hefur þó enn meira máli í þessari baráttu að „af-kúla“ reykingar sem fyrirbæri, ekki síst hjá yngri kynslóðinni. Það hefur m.a. verið gert með lögum frá 2001 sem banna að tóbak sé sýnt sem söluvara í auglýsingum og kynningarefni. Þessi lög eru ekki byggð á tilfinningu því stórar vísindarannsóknir, m.a frá Bandaríkjunum, hafa sýnt að aukinn sýnileiki tóbaksreykinga í kvikmyndum eykur áhuga ungs fólks að prófa reykingar . Því hafa mörg ríki heims eins og Bandaríkjamenn og Kínverjar sett enn strangari lög í þessum tilgangi – og það af illri nauðsyn því í sumum þessum löndum eru reykingar enn risastór heilbrigðisfaraldur.“

„Skrítin skilaboð“

Tómasi þykir auglýsingin hallærisleg og segir að að hún sendi ekki góð skilaboð til barna og unglinga. Þá setur Tómas einnig spurningarmerki við viðbrögð þeirra sem hafa sett myndir af sér reykjandi á samfélagsmiðla til að sína stuðning. Hann spyr sig þó hvort að auglýsingaherferðin hafi heppnast vel vegna þeirrar umræðu sem hefur myndast út af myndinni.

„Ég átta mig fyllilega á því að mörk á milli listar og auglýsinga geta verið óljós. Í þessu tilviki þykir mér þó augljóst að um auglýsingu og kynningarefni er að ræða og Bubbi, sem er fyrirmynd margra, er sýndur kúl og reykjandi. Sem samfélag verðum við að spyrja okkur hvaða skilaboð við viljum senda börnum okkar og unglingum? Ég ætla ekki að fullyrða að þessi auglýsing sé ólögleg en mér finnst hún hallærisleg, óþörf og sendir skrítin skilaboð inn í reykingavarnabaráttu sem gengið hefur vonum framar. Einnig vekur furðu mína að fjöldi mikilsvirts fólks skuli setja myndir af sér reykjandi inn á fésbókina – og það „Bubba til stuðnings“!

Á ekki bara að tagga börnin og barnabörnin líka? Sumir fjölmiðlar hafa dansað í kringum þennan gjörning sem mér þykir enn hallærislegri en auglýsingin sjálf. Sennilega hefur þó tilgangi auglýsingastofunnar verið náð – þ.e. að vekja athygli á söngleiknum og selja fleiri miða. Stöngin inn sem PR-strategía – eða? Dæmi hver fyrir sig.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

„Ef það hefði farið mikið hærra væri ég ekki endilega hér. Á hverjum degi þakka ég fyrir að vera á lífi“

„Ef það hefði farið mikið hærra væri ég ekki endilega hér. Á hverjum degi þakka ég fyrir að vera á lífi“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Írska lögreglan styðst við sýnir miðla í leitinni að Jóni Þresti

Írska lögreglan styðst við sýnir miðla í leitinni að Jóni Þresti
Fréttir
Í gær

Máttu reka framkvæmdastjóra sem notaði 12 tölvur fyrirtækisins til að grafa eftir rafmynt

Máttu reka framkvæmdastjóra sem notaði 12 tölvur fyrirtækisins til að grafa eftir rafmynt
Fréttir
Í gær

Óttast að ákvæðið verði notað til að hindra að fatlað fólk flytji í Hafnarfjörð – „Ætti að geta valið sér búsetu eins og aðrir í samfélaginu“

Óttast að ákvæðið verði notað til að hindra að fatlað fólk flytji í Hafnarfjörð – „Ætti að geta valið sér búsetu eins og aðrir í samfélaginu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Trump hegðar sér eins og útsendari guðs – Gæti endað sem „Trölli sem stal jólunum“

Trump hegðar sér eins og útsendari guðs – Gæti endað sem „Trölli sem stal jólunum“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fjölskylduhjálp Íslands fékk ekki styrk í ár því samtökin sóttu ekki um hann

Fjölskylduhjálp Íslands fékk ekki styrk í ár því samtökin sóttu ekki um hann