fbpx
Miðvikudagur 04.mars 2026
Fréttir

Syndir feðranna

Svarthöfði
Sunnudaginn 22. september 2019 13:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Svarthöfði varð var við þá umræðu sem skapaðist eftir viðtal Íslands í dag við þrjú uppkomin börn umdeildra þingmanna á hægri vængnum. Svarthöfði beið raunar spenntur eftir umfjölluninni þar sem hún vakti vissulega forvitni hans. Í stuttu máli það olli þessi viðtalsþáttur alls ekki vonbrigðum og finnst Svarthöfða gaman að sjá að Ísland í dag hefur fundið smá brodd á nýjan leik. Vonandi þýðir þetta endalok þáttarins eins og hann er búinn að vera sem líktist frekar ódýrri sjónvarpsmarkaðsauglýsingu fremur en þætti um líðandi stundar. Þegar Svarthöfði fór að taka Landann fram yfir Ísland í dag vissi hann að ástandið var orðið slæmt.

Eins og gefur að skilja vakti umfjöllun Íslands í dag misjöfn viðbrögð meðal almennings. Sumum fannst þetta hið besta sjónvarpsefni, að heyra niðurlút börn stjórnmálamanna tala um slæmt umtal um feður sína. Aðrir sökuðu sjónvarpsþáttinn að um ganga erinda elítunnar og veltu fyrir sér hvort viðtölin ættu að bera út þann boðskap að stjórnmálamenn væru yfir gagnrýni hafnir því þeir ættu börn, þó að þeir hefðu jafnvel drukkið sig í óminni og drullað yfir minnihlutahópa. Áhugaverð skoðanaskipti finnst Svarthöfða.

Svarthöfði er hins vegar á því að þetta útspil í Ísland í dag hafi verið allt í senn; klókt, rammpólitískt, áhugavert og drepfyndið. Börnin virðast líka vera efni í afbragðsspunameistara. Því hvað snertir fólk meira en sorgmædd börn sem þurfa að gjalda fyrir gjörðir feðra sinna? Þvílíkt sjónvarpsefni! Á svipstundu eru allar misgjörðir pabbanna gleymdar. Þeir verða mannlegir, eiga börn, gráta í kodda og barma sér yfir ómaklegri gagnrýni. Gagnrýni á gjörðir sem eru samt tvímælalaust á tíðum mjög gagnrýnisverðar.

Svarthöfði verður því að taka hjálminn ofan fyrir þessum börnum, feðrum þeirra og dagskrárgerðarfólki Íslands í dag. Það er afrek að ná með nokkrum mínútum í sjónvarpi að útmá hatur og reiði fólks út í fordómafulla og oft á tíðum brotlega hegðun nokkurra frammámanna. Það mætti segja að þarna hefðu pabbarnir sloppið eins og smjör á smokknum hjá Friðriki Ómari.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Knútur frá deCODE til Syndis

Knútur frá deCODE til Syndis
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Kona föst í víti frelsissviptinga, nauðgana og misþyrminga

Kona föst í víti frelsissviptinga, nauðgana og misþyrminga
Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Undarleg sjálfsvígsalda erlendra karla á Pattaya – „Borgin tyggur fólk og spýtir því út auralausu“

Undarleg sjálfsvígsalda erlendra karla á Pattaya – „Borgin tyggur fólk og spýtir því út auralausu“
Fréttir
Fyrir 16 klukkutímum

Von á hríðarveðri á suðvesturhorninu í dag

Von á hríðarveðri á suðvesturhorninu í dag
Fréttir
Í gær

Heitt í kolunum á Litla Hrauni – Kristleifur sló samfanga sinn í gólfið

Heitt í kolunum á Litla Hrauni – Kristleifur sló samfanga sinn í gólfið
Fréttir
Í gær

Bróðir Margrétar Löf rýfur þögnina – „Þú átt ekki að geta myrt einhvern og tekið svo arf eftir hann“

Bróðir Margrétar Löf rýfur þögnina – „Þú átt ekki að geta myrt einhvern og tekið svo arf eftir hann“
Fréttir
Í gær

Sérfræðingur hefur áhyggjur af innrásinni í Íran – „Útilokað að knýja fram stjórnarskipti með loftárásum“

Sérfræðingur hefur áhyggjur af innrásinni í Íran – „Útilokað að knýja fram stjórnarskipti með loftárásum“
Fréttir
Í gær

Margir minnast Davíðs – „Hann markaði djúp spor í íslenskt samfélag“

Margir minnast Davíðs – „Hann markaði djúp spor í íslenskt samfélag“