Baráttukonan og femínistinn Hildur Lilliendahl vakti töluverða athygli á dögunum fyrir færslu sína á Twitter þar sem hún birti myndir af níu fyrrverandi ráðherrum með spurningunni: „Ríða, drepa, giftast?“ Þótti sumum hún ganga of langt með þessari færslu og gagnrýndu það að verkefnastjóri hjá Reykjavíkurborg tjái sig opinberlega með þessum hætti.
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur, sagði í Bítinu á Bylgjunni í morgun að líklega hefði verið um misheppnaðan brandara að ræða, en vildi þó ekki tjá sig frekar um málið.
„Ég ætla ekki að fara að tjá mig um fésbókarfærslu einstaka starfsmanna borgarstarfsmanna.“
Þáttastjórnendur ætluðu þó ekki að leyfa Degi að hlaupast undan spurningunni og bættu því við hvernig þessi færsla hefði horft við almenningi ef kynjunum væri snúið við. Það er ef þarna hefði verið karlkyns borgarstarfsmaður, að birta myndir af fyrrverandi kvenkyns ráðherrum, með spurningunni: „Ríða, drepa, giftast?
„Það gildir það sama um konur og karla. Ég fer ekki að tjá mig um fésbókarfærslu einstakra starfsmanna sem ég hef ekki lesið, svaraði Dagur þá og bætti við: „Þetta er væntanlega einhver misheppnaður brandari.“
Það væri ekki hlutverk borgarstjóra að ræða mál einstaka starfsmanna í útvarpsþætti. „Ef eitthvað kemur upp getur það verið hlutverk yfirmanna þeirra, en ég get ekki tjáð mig um þetta tiltekna tilvik.“
„Það er hugsanlega hlutverk mannréttindaskrifstofu ef það eru meiðandi eða rasísk ummæli eða slíkt, en þá fer það bara eftir slíkum reglum. Það gerist ekki að borgarstjóri mæti í beina útsendingu og tjái sig um það.“
DV greindi frá því á þriðjudaginn að Vigdísi Hauksdóttur, borgarfulltrúa, hafi misboðið Twitter-færsla Hildar. Ekki var hún hrifnari af ummælum Dags um hátternið.
„Karlmenn hafa verið reknir frá hinu opinbera af miklu minna tilefni/ummælum – ekki furða að Heimi og Kolbrúnu sé misboðið. #hatursorðræðafyrirsuma.“
Vísar Vigdís þar til annars þáttastjórnanda Bítisins, Heimis Karlsonar, og blaðakonunnar Kolbrúnar Bergþórsdóttur, en hún sagði í leiðara sínum í Fréttablaðinu:
„Enginn þarf að efast um að ef karlmaður hefði birt myndir af þekktum konum með þessari sömu yfirskrift hefði hann kallað yfir sig almenna fordæmingu og verið stimplaður sem kvenhatari af verstu sort. En þegar kona opinberar fyrirlitningu sína á karlkyninu vekur það ekki mikla athygli, sumum þykir gjörð hennar jafnvel sniðug.“
Sjá einnig:
Kolbrún segir Hildi Lillendahl vera dólgafemínista
Vigdís hneyksluð á Hildi: Ríða drepa giftast?