Nú á fjórða tímanum var mikill viðbúnaður hjá lögreglu og slökkviliði eftir að sást til karlmanns hanga fram af brúnni yfir Miklubraut í nágrenni við Kringluna. DV hefur undir höndum myndband en þar má sjá manninn á brún brúarinnar sem og fjölda lögreglumanna og sjúkraflutningamanna. Þar var manni komið til bjargar.
Umferð var um tíma lokuð í austurátt. Myndband af atvikinu má sjá hér fyrir neðan en málið er sagt viðkvæmt af lögreglu en maðurinn hafði hótað að stökkva fram af brúnni.
Í myndskeiðinu má sjá fagmannleg viðbrögð lögreglu og sjúkraflutningamanna sem komu til bjargar áður enn illa fór. Maðurinn vildi ekki koma af brúnni og þurfti lögregla að beita afli til að ná manninum líkt og sjá má í lokin á myndskeiðinu. Í tilkynningu frá lögreglu segir:
Á fjórða tímanum í dag barst lögreglu tilkynning um vegfaranda í ójafnvægi á göngubrú á Miklubraut, á móts við Kringluna, en óttast var að viðkomandi kynni að fara sér að voða. Brugðist var fljótt við og tókst að afstýra því að illa færi, en vegfarandum var síðan komið í hendur viðeiganda aðila. Eilítil röskun varð á umferð vegna þessa, en loka varð fyrir umferð í stutta stund á meðan aðgerðum á vettvangi stóð.