fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fréttir

„Það vill greinilega enginn hafa 61 árs kerlingu í vinnu, það er bara málið“

Erla Dóra Magnúsdóttir
Laugardaginn 9. nóvember 2019 12:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Atvinnulausar konur sem komnar eru yfir fimmtugt eiga erfitt um vik í atvinnuleit. Þetta kemur fram í meistararitgerð Önnu Moniku Arnórsdóttur til MA-gráðu í náms- og starfsráðgjöf.  Í ritgerð sinni ræðir hún við sex konur sem allar eru komnar yfir fimmtugt og hafa reynslu af atvinnumissi og atvinnuleit á miðjum aldri. Allar telja þær sig hafa orðið fyrir miklum aldursfordómum í atvinnuleitinni og að reynsla þeirra og þekking hafi mátt síns lítils gegn „handónýtri kennitölu“.

Íslendingar eldast

Í ritgerðinni rekur Anna það að alþjóðlegar samanburðarkannanir hafi sýnt að fólk er meira virkt og lengur á íslenskum vinnumarkaði en annars staðar í Evrópu.

„Á árunum 2014 og 2015 voru tæplega 85% Íslendinga á aldrinum 55 til 64 ára starfandi á viðmiðunartímanum. Á sama tíma voru að meðaltali 52,5% einstaklinga á sama aldursbili starfandi í aðildarlöndum Evrópusambandsins (ESB).“

Hins vegar séu miðaldra og eldri Íslendingar stærsti hópur þeirra sem glímir við langvarandi atvinnuleysi, þá einkum konur yfir 50 ára að aldri.

Mannfjöldaspár reikna nú með því að meðalaldur Íslendinga muni hækka næstu áratugi. Í ritgerðinni segir Anna: „Þjóðin er að eldast samhliða bættum lífskjörum, einstaklingar lifa lengur og eru almennt við betri heilsu en áður. Að því gefnu er talið að vinnufæru fólki muni fjölga ört á komandi árum, þar sem aukin geta og vilji er til virkrar þátttöku í atvinnulífinu meðal þeirra sem komnir eru á seinni stig starfsferilsins.“

Fórnfýsi kvenna

Konurnar sex sem tóku þátt í rannsókn Önnu greindu allar frá því að hafa með einum eða öðrum hætti fært fórnir á vinnumarkaði til að greiða um fyrir fjölskyldulífi sínu eða frama maka.

„Allar konurnar töluðu um að hafa aðlagað náms- og starfsferil sinn að fjölskylduaðstæðum og voru slíkar ákvarðanir ýmist teknar meðvitað eða ómeðvitað. Hér kom fram eitt meginþema, en konunum bar saman um að fórnfýsi, fjölskylduábyrgð og kvenlæg hlutverk hafa haft áhrif á náms- og starfsferil þeirra.“

Sáu sumar kvennanna eftir þeim fórnum sem þær höfðu fært, á meðan aðrar voru þakklátar því að hafa fengið tækifæri til að vera heimavinnandi.

Það er bara eins og maður sé dauður 

Aðspurðar voru konurnar sex sammála um að atvinnuleit, eftir atvinnumissi á miðjum aldri, hefði gengið illa og upplifðu þær mikla höfnun. Sérstaklega þótti þeim vont að fá seint eða aldrei svör frá atvinnurekendum.

„þetta lætur manni finnast svolítið eins og maður hafi lagt þetta allt á sig fyrir ekki neitt, fyrst að enginn annar vill viðurkenna það og ég veit innra með mér hvað ég kann. Ég bara neita að láta segja mér að ég kunni þetta ekki. Það tekur enginn frá mér það sem ég kann […] ég ætla bara að halda áfram og láta eins og aðstæður séu öðruvísi,“ sagði ein kvennanna. „Það vill greinilega enginn hafa 61 árs kerlingu í vinnu, það er bara málið,“ sagði önnur.

„Alveg sama hvað ég sæki um, það koma engin svör, þetta er aldurinn,það er ekki spurning. Ég sé þetta fyrir mér, þeir sjá ferilskrána og aldurinn og hugsa með sér – ha, sextug kerling, hvað eigum við að gera við sextuga kerlingu? […] Það er bara eins og maður sé dauður þegar maður er kominn á ákveðinn aldur … ég meina, maður gæti orðið 100 ára og enn í fullu fjöri.“

Séríslenskt fyrirbæri

Tvær kvennanna hafa verið í atvinnuleit erlendis á einum eða öðrum tíma og þar tíðkist ekki að senda mynd og kennitölu með atvinnuumsókn. Telja þær fyrirbærið vera séríslenskt og ýta undir aldursfordóma. Fordómar sem þessir geti jafnframt komið í veg fyrir að fólk sem er komið yfir vissan aldur treysti sér til að skipta um vinnu ef það vill breyta til. „Fólk er bara fast og með hendurnar bundnar og verður þess vegna að vera á sama stað þar til það fer á eftirlaun.“

Ein kvennanna hefur starfað áratugum saman í tæknigeiranum en hún segir þann bransa afar karllægan og æskudýrkun þar mikil.

„Við konurnar sem erum komnar yfir fimmtugt höfum misjafna reynslu, en margar hafa afrekað mikið og hafa yfirfullan reynslubanka sem gæti nýst í starfi … en það er bara skellt á og lokað fyrir, við fáum engin tækifæri.“

Ein kvennanna lenti jafnframt í því að starfsmaður Vinnumálastofnunar tilkynnti henni:„Þú gerir þér grein fyrir því að þú ert með handónýta kennitölu.“

Mögulega þörf á lagasetningu

Anna Monika segir í niðurlagi ritgerðar sinnar að nauðsynlegt sé að veita atvinnumálum eldra fólks meiri athygli.

„Einnig væri gagnlegt að fá samanburð erlendis frá og kanna hvort þörf sé á löggjöf um mismunun vegna aldurs á vinnumarkaði. Auk þess gætu stjórnvöld tekið virkari þátt í stefnumótun í náms- og starfsráðgjöf og stuðlað að því að þeir, sem komnir eru á seinna stig starfsferils, fái aukin tækifæri til að nýta starfsgetu sína betur en nú er gert.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka
Fréttir
Í gær

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi