Bráðefnilegu körfuboltaliði 10 ára drengja var meinuð þátttaka á Íslandsmótinu um síðustu helgi. Uppgefin ástæða er sú að skráning liðsins í mótið barst degi of seint en aðstandendur liðsins og foreldrar hinna ungu leikmanna kenna um valdabrölti innan KKÍ og andúð í garð þjálfarans Brynjars Karls Sigurðssonar. Hann er elskaður og dáður af mörgum en einnig umdeildur vegna nýstárlegra þjálfunaraðferða sinna. Var Brynjar rekinn frá ÍR eftir að stúlknalið sem hann þjálfaði neitaði að taka við verðlaunum vegna þess að liðið hefði ekki fengið að keppa við drengjalið.
Fjallað er um þetta mál í fréttaskýringu á vef Fréttablaðsins en drengirnir eru sagðir eyðilagðir vegna þess að þeim var meinuð þátttaka í mótinu.
Liðið sem lenti í þessum hremmingum heitir Aþena og keppir undir merkjum UMFK. Á Facebook-síðu félagsins segir meðal annars:
„Aþena er íþróttaakademía stofnuð í kringum nokkur samfélagsverkefni þar sem markmiðið er að valdefla ungt fólk í gegnum íþróttir. Aþena er opin fyrir allt ungt fólk en sérstök áhersla er lögð á að koma til móts við þarfir stúlkna og ungra Íslendinga af erlendum uppruna til þess að hjálpa þeim sjálfum að jafna leikinn í íþróttum. Aþenu er einnig ætlað hafa áhrif á ríkjandi viðmið og gildi í þjálfun ungs fólks sérstaklega þegar kemur að tilfinningaþroska þeirra og réttindum.“
Þjálfarinn Brynjar hefur vakið athygli fyrir þá hugsjón sína að vilja valdefla stúlkur í gegnum íþróttaiðkun. Aðferðir hans eru hins vegar ekki öllum að skapi og hann er sagður vera í ónáð hjá forystu KKÍ.
Í frétt Fréttablaðsins segir að starfsmanni Aþenu hafi láðst að tilkynna liðið til þátttöku á réttum degi en haft samband símleiðis vegna málsins. KKÍ hafi brugðist við með því að meina liðinu þátttöku og dæma það auk þess niður í neðsta riðil aldursflokksins en liðið var í næstefsta riðli. Benda talsmenn Aþenu á að oft hafi áður láðst að tilkynna lið til leiks á réttum tíma en ávallt verið brugðist við með sveigjanleika enda erfitt að láta eftirvæntingarfull börn gjalda fyrir mistök fullorðinna. Fréttablaðið spyr Hannes Jónsson formann KKÍ út í þetta og segir í fréttinni:
„Kom aldrei til greina að veita liðinu undanþágu, svo krakkarnir gætu tekið þátt?
„Það var örugglega rætt,“ svarar Hannes og bætir við: „Málið er það að körfuboltinn hefur stækkað mjög mikið. Það hefur ekki verið hringt í félög í vetur. Á þinginu okkar í vor var þetta rætt og ákveðið að fara alveg eftir reglugerðum hvað þetta varðar og ákveði að taka hart á þessu og fara eftir reglugerðum. Við erum að segja nei við félög á hverjum einasta degi og ég verð að segja alveg eins og er, að ég undrast áhuga þinn varðandi þetta. Það er margt annað sem væri hægt að ræða.“
Aðspurður hvort Hannesi fyndist ekki of langt gengið að neita börnunum, sem höfðu beðið spennt, um þátttöku þar sem skráning hafi borist degi of seint svarar Hannes að öll félög hafi skráð sig og með þessu hefði þurft að teikna mótið upp á nýtt. Forsvarsmenn UMFK/Aþenu telja að leikjaröðun hafi ekki verið komin langt á veg þegar þetta var. Nú blasi við að liðið verði dæmt niður í neðstu deild.“
Svavar Þór Guðmundsson á son í liðinu og segir hann við Fréttablaðið að hann telji KKÍ hafa horn í síðu þjálfarans Brynjars. Segir hann að mótstjórinn hafi áður fordæmt Brynjar opinberlega. Svavar segir við Fréttablaðið:
„Einu fórnarlömbin í þessu öllu saman eru krakkarnir, sonur minn er heima grátandi…
…Krökkunum eru kenndir mannasiðir og þú þarft ekki að vera bestur eða góður. Það sem farið er fram á að þú sýnir framfarir og þeim líði vel. Þjálfunin er í heimsklassa og að menn í einhverjum bakherbergjum séu að taka gleðina af 10 ára barni. Það er bara klikkun í mínum augum.“