Fréttablaðið skýrir frá þessu í dag.
„Að öllum líkindum hefur hún komist yfir lykilorðið mitt á Íslyklinum og það dugði til þess að stofna reikning í mínu nafni inni á þessu greiðsluforriti. Síðan fæ ég bara fjóra greiðsluseðla inn á heimabanka minn upp á rúma eina milljón króna samtals og hef fjórtán daga til að borga.“
Hefur blaðið eftir Jónu Guðrúnu en hún hefur talað opinskátt um reynslu sína sem aðstandandi fíkils. Hún hefur lent í margskonar sambærilegum vandræðum vegna dóttur sinnar en segir að yfirleitt hafi fyrirtækin, sem hafi átt í hlut, tekið einhverja ábyrgð á sig. Um slíkt sé þó ekki að ræða í þessu máli þar sem Elko og Greiðslumiðlun, sem rekur Pei, vilji ekki taka neina ábyrgð.
„Viðmótið hjá báðum þessum fyrirtækjum er að ég eigi að sitja uppi með tjónið. Nafn dóttur minnar kemur fram sem kaupandi að raftækjunum hjá Elko en reikningurinn er sendur á mig. Það kvikna engar spurningar þó að kona í annarlegu ástandi kaupi raftæki fyrir rúmlega milljón í fjórum ferðum og á reikning annars aðila.“
Er haft eftir Jónu Guðrúnu sem hefur leitað til lögfræðings vegna málsins og hyggst kanna rétt sinn.
Bjarni Þór Óskarsson, lögmaður Greiðslumiðlunar, vill ekki tjá sig um einstök mál en staðfesti að nóg sé að komast yfir lykilorð á Íslykli og kennitölur til að geta skráð sig inn á greiðslulausnina.
„Það er raunveruleikinn í dag á þessum tímum rafrænna lausna. Það er mikilvægt að fólk passi upp á lykilorðin sín.“
Er haft eftir honum. Einnig sagði hann að fjársvik í gegnum Pei væru afar sjaldgæf en þó hafi nokkur tilvik komið upp.