fbpx
Sunnudagur 06.júlí 2025
Fréttir

Landssamtök lögreglumanna fagna fyrirhugaðri stjórnsýsluúttekt á embætti ríkislögreglustjóra: „Löngu tímabært“

Erla Dóra Magnúsdóttir
Laugardaginn 7. september 2019 22:01

.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Stjórn Landssambands lögreglumanna telur ákvörðun dómsmálaráðuneytis um að fara fram á alhliða stjórnsýsluúttekt á embætti ríkislögreglustjóra löngu tímabæra“, segir í ályktun Landssambands lögreglumanna sem var send til fjölmiðla rétt í þessu.

Sambandið segir mikla óánægju hafa ríkt um langt skeið um störf yfirstjórnar embættis ríkislögreglustjóra.

„Óánægja þessi er m.a. til komin vegna fatamála lögreglumanna sem hafa verið í ólestri en einnig vegna annarra mála s.s bílamála. .Ljóst er að lögregluembætti hafa þurft að greiða háar fjárhæðir til bílamiðstöðvar ríkislögreglustjóra vegna ökutækja lögreglu, þrátt fyrir að þau séu jafnvel úr sér gengin, sbr. fréttir undanfarna daga. Einnig hafa málefni sérsveitar ríkislögreglustjóra verið til umfjöllunar og styður stjórn Landssambands lögreglumanna erindi þeirra sérsveitarmanna sem sent var dómsmálaráðuneyti til umfjöllunar.“

Jafnframt óskar stjórn Landssambands lögreglumanna þess að málið fái skjóta úrlausn, því annað gæti rýrt traust almennings á lögreglu.

„Stjórn Landssambands lögreglumanna telur að fái sá ágreiningur og sú gagnrýni sem beinst hefur að embætti ríkislögreglustjóra ekki skjóta úrlausn, muni það bitna á þjónustu við borgarana, öryggi þeirra og öryggi lögreglumanna á landsvísu. Slíkt ástand er til þess fallið að rýra traust almennings til lögreglu, sem lengi hefur haldist gott og dapurt væri að glata“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ymur Art sakfelldur fyrir morð á móður sinni en honum ekki gerð refsing

Ymur Art sakfelldur fyrir morð á móður sinni en honum ekki gerð refsing
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ísraelar fagna eftir lokaðan fund Eurovision – Íslendingum og Slóvenum tókst ekki að reka þá úr keppninni

Ísraelar fagna eftir lokaðan fund Eurovision – Íslendingum og Slóvenum tókst ekki að reka þá úr keppninni
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Harmleikurinn á Edition-hótelinu – Gæsluvarðhald framlengt um fjórar vikur

Harmleikurinn á Edition-hótelinu – Gæsluvarðhald framlengt um fjórar vikur
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Hart tekist á um Fannborgarreitinn í Kópavogi – Bílastæði séu einhliða tekin af íbúum

Hart tekist á um Fannborgarreitinn í Kópavogi – Bílastæði séu einhliða tekin af íbúum