fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Fréttir

Vafasöm flétta Eggerts Skúla

Erla Dóra Magnúsdóttir
Þriðjudaginn 13. ágúst 2019 20:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eggert Skúli Jóhannesson framkvæmdastjóri hefur ítrekað verið sakaður um misferli í viðskiptum. Á árinu 2016 hófst rannsókn á meintum svikum hans úr Ábyrgðarsjóði launa, hann stofnaði Hjálparsamtök bágstaddra barna sem sættu mikilli tortryggni og voru lögð niður eftir aðeins örfáa mánuði. Blaðamaður kafaði ofan í málið og fann þar möguleg tengsl hans við Fréttatímann, tengsl hans og sonar hans við fyrirtækið Ice X Investments ehf. og einnig hefur gefið sig fram heimildarmaður sem segir Eggert hafa falsað undirskrift hans á pappírum og komið því til leiða að hann er nú einn sakborninga í áðurnefndu sakamáli vegna meintra svika úr Ábyrgðarsjóði launa.

Ábyrgðarsjóður launa

Grunur leikur á að umtalsvert fé hafi verið fengið af Ábyrgðarsjóði launa með sviksamlegum hætti. Upphaflega var greint frá málinu á árinu 2016 í Fréttatímanum sem þá var undir ritstjórn Þóru Tómasdóttur og Gunnars Smára Egilssonar. Enn hefur ekki verið gefin út ákæra í málinu sem heimildir DV herma að sé enn til rannsóknar hjá ákærusviði Héraðssaksóknara.

Fréttatíminn greindi frá því í ágúst 2016, í frétt sem bar fyrirsögnina „Eggert Skúli víða sakaður um svik“, að launakröfur frá tveimur fyrirtækjum tengdum Eggerti Skúla Jóhannessyni framkvæmdastjóra hefðu borist í Ábyrgðarsjóð launa. Hlutverk Ábyrgðarsjóðs launa er að bera ábyrgð á launum starfsmanna fyrirtækja sem fara í þrot. Starfsmenn gera kröfur í þrotabú vinnuveitanda síns og geta þá fengið launin sín greidd úr ábyrgðarsjóði.

Meintir starfsmenn fyrirtækja sem tengjast Eggerti Skúla fóru fram á háar greiðslur úr Ábyrgðarsjóði launa og áttu sumir hverjir að hafa starfað launalaust fyrir fyrirtækin í ríflega hálft ár. Heimildir DV herma að málið varði þónokkur þrotabú sem virðast tengjast sömu aðilum og að launakröfurnar hafi jafnvel komið frá meintum starfsmönnum sem aldrei hafi unnið fyrir þessi fyrirtæki og kannist jafnvel sjálfir ekki við að hafa lagt fram kröfurnar, eins og nánar verður vikið að hér síðar.

Blaðamaður hafði samband við embætti Héraðssaksóknara en var greint frá því að ekki væri hægt að veita svör við fyrirspurnum sökum þagnarskyldu, en samkvæmt áreiðanlegum heimildum DV hefur málið dregist mikið á langinn sökum þess að illa hefur gengið að ná í einn sakborning og ekki vitað með vissu hvar hann heldur sig.

Heimildarmaður DV, sem ekki vill láta nafns síns getið, segist í samtali við blaðamann telja Eggert siðblindan og telur ámælisvert hvað rannsókn málsins hefur dregist á langinn: „Þetta er náttúrulega sameiginlegur sjóður landsmanna. Núna þurfti virkilega á þessum sjóð að halda og þá er nú allt í lagi að það séu inni einhverjir aurar í þessum sjóði, að það séu ekki menn eins og Eggert sem eru búnir að tæma þetta.“

Hjálparsamtök bágstaddra barna

Árið 2016 stofnaði Eggert Skúli, ásamt fleirum, Hjálparsamtök bágstaddra barna. Hjálparsamtökin vöktu mikla athygli þar sem upprunalega var ómögulegt að rekja hverjir stæðu að baki söfnunum sem samtökin stóðu fyrir. Á daginn kom að Eggert stóð að baki samtökunum ásamt Gunnari Bender veiðimanni sem nokkrum mánuðum fyrr hafði lagt fram háar kröfur í Ábyrgðarsjóð launa vegna meintra starfa sinna fyrir fyrirtæki Eggerts. Launakröfum Gunnars var hafnað eftir að grunsemdir vöknuðu um að þeir félagar væru í slagtogi að reyna að svíkja fé úr sjóðnum, en eins og áður hefur komið fram eru meint svik Eggerts enn til rannsóknar hjá Héraðssaksóknara. Söfnunin þótti það vafasöm að lögregla tók málið til rannsóknar, en ekki hafði verið aflað til hennar tilskilinna leyfa samkvæmt lögum.

Í kjölfar umfjöllunar Fréttatímans var samtökunum lokað. Á heimasíðu samtakanna var greint frá því að þeim hefði formlega verið slitið, reikningum lokað, reikningar greiddir og eftirstöðvum, 68.500 krónum hafi verið ráðstafað til Mæðrastyrksnefndar.

Jóhannes Gísli Eggertsson

Sonur Eggerts Skúla, Jóhannes Gísli Eggertsson, virðist tengjast mörgum af sömum fyrirtækjunum og faðir hans. Hann hefur ítrekað komist í kast við lögin og hlotið dóma fyrir fjársvik.

Í nóvember 2016 var Jóhannes Gísli Eggertsson dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir umfangsmikil fjársvik úr vefverslun ELKO. Í dómnum kemur fram að Jóhannes Gísli hafi í fjögur skipti, á tímabilinu 17.–21. febrúar pantað vörur, fyrir um eina milljón króna, meðal annars Samsung-snjallsjónvarp og iMac-fartölvu, og síðan sent falsaða greiðslukvittun í tölvupósti. Hann hafi síðan nálgast vörurnar í verslun ELKO daginn eftir. Í tvö skipti reyndi Jóhannes Gísli sama leik og freistaði þess að fá vörurnar sendar í pósti auk þess sem hann sendi annan einstakling til þess að sækja vörurnar. Þær tilraunir misheppnuðust.

Þetta var ekki fyrsta brot hans, hann hafði áður hlotið þrjá dóma fyrir auðgunarbrot.

Fréttatíminn

Fréttatíminn  var áður í eigu útgáfufélagsins Morgundags sem var tekið til gjaldþrotaskipta sumarið 2017.  Skömmu síðar birtist Fréttatíminn aftur á netinu í breyttri mynd, en mikil leynd hvíldi yfir því hver stæði þar að baki. DV greindi frá því í janúar 2018 að Jóhannes Gísli hefði fest kaup á léninu. Í kjölfar fyrirspurna DV var opinberað að Fréttatíminn væri í eigu Guðlaugar Hermannssonar fiskkaupanda sem þvertók fyrir aðkomu Jóhannesar að fjölmiðlinum.

Jóhannes hafði þó skrifað frétt á vef Fréttatímans þar sem hann birti myndband þar sem greina mátti rödd hans og þar sem hann titlaði sig sem blaðamann Fréttatímans. Guðlaugur hafði því sagt ósatt. Jóhannes sjálfur þvertók fyrir aðkomu sína að miðlinum í fyrstu en viðurkenndi síðan að starfa þar. Hann hefði óttast að verða dæmdur vegna fortíðar sinnar og kvaðst dreyma um að vera blaðamaður. Jóhannes Gísli neitar allri aðkomu sinni að Fréttatímanum í dag.

Á huldu er hverjir skrifa fréttir á vef miðilsins en við rannsókn blaðamanns kom í ljós áhugaverð tenging við Eggert Skúla.

Þegar leitað er eftir nafni Eggerts á netinu má sjá fjölda frétta af vef Fréttatímans þar sem neðst stendur Uppsetning: Eggert Skúli Jóhannesson. Þessi undirskrift er þó hulin og sést aðeins ef textinn er valinn sérstaklega.

 

Fréttatíminn hefur einnig bæði skrifað grein og birt auglýsingu fyrir Alheim vefsíðuhönnun en lénið alheimur.is er skráð á fyrirtækið Ice X Investments ehf. sem samkvæmt fyrirtækjaskrá er auglýsingastofa. Ice X Investments á fjöldann allan af lénum. Meðal þeirra léna er icelandicinfo.is. Tölvupóstfang tengiliðar er skr   áð sparmye@icetraveler.is en Sparmye AS er fyrirtæki Eggerts Skúla í Noregi sem hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta.

Frá því að Fréttatíminn fór aftur í loftið hefur einnig birst viðtal við Eggert Skúla og myndir af honum frá viðburðum Miðflokksins svo eitthvað sé nefnt.

Ice X Investments

Sonur Eggerts Skúla, Hörður, er einn í stjórn Ice X Investments í dag. En samkvæmt samþykkt félagsins frá mars 2018 var barnsmóðir Jóhannesar Gísla formaður stjórnar þar til nýlega. Athygli vekur að bæði barnsmóðirin og Hörður eru skráð með sama netfang á skjölunum, netfang sem tengist veiði, en Eggert Skúli er mikill veiðimaður.

Hvorki náðist í Hörð né barnsmóður Jóhannesar Gísla við vinnslu fréttarinnar.

Eggert Skúli virðist einnig eiga Pintrest-síðu þar sem hann má finna möppu sem heitir Ice X Investments.

 

Einnig vekur athygli að Ice X Investments, skráð sem auglýsingastofa í fyrirtækjaskrá, og eigandi lénsins alheimur.is, sem hefur auglýst vefsíðugerð, er ekki með eiginlega heimasíðu. Ef farið er inn á slóðina ixi.is birtist aðeins texti sem vísar gestum á að hafa samband með tölvupósti. Eins hefur alheimur.is enga vefsíðu. Ice X Investments hefur jafnframt leyfi til að starfa sem upplýsingamiðstöð samkvæmt lögum um Ferðamálastofu.

Undarlegir greiðsluseðlar

Nokkrir einstaklingar greindu frá því á Facebook-síðunni Bakland ferðaþjónustunnar að hafa fengið reikninga frá Ice X Investments inn á heimabanka sinn án þess að hafa átt í viðskiptum við fyrirtækið.

„Kannast forsvarsmenn fyrirtækja við hér inná að hafa fengið reikninga í heimabankann frá Ice X Investments ehf. án þess að fá nokkra skýringu fyrir hvað er ætlast til að sé greitt. Engin leið að ná heldur á þessa aðila svara engum síma og ekkert email ásamt því að skráður stjórnarformaður segist ekki vera stjórnarformaður. Veit einhver hvernig maður snýr sér í þessu þegar bankinn segist ekkert geta gert?“

Þónokkrir aðrir könnuðust við að hafa fengið slíka kröfu og áttu erfitt með að fá svör frá meintum fyrirsvarsmönnum fyrirtækisins. Samkvæmt skráningu þá var það barnsmóðir Jóhannesar Gísla sem var í forsvari, en einn einstaklingur greindi frá því á þræðinum að í samtali við hana kannaðist hún ekki við að vera í forsvari fyrir fyrirtækið. Eftir að hafa fengið samband við hana fékk viðkomandi þó símtal frá starfsmanni Ice X Investments sem greindi frá því að fyrirtækið hefði áður heitið Íslensk skráning og héti í dag Icelandicinfo. Lénið icelandicinfo.is er skráð á Ice X investments ehf.

Skjalafals

DV hefður verið í sambandi við einstakling sem hefur stöðu grunaðs manns í máli meintra fjársvika úr Ábyrgðarsjóði launa. Hann kýs að stíga fram í skjóli nafnleyndar. Hann segist ekki skilja með hvaða hætti hann hafi dregist inn í málið þar sem hann hafi enga kröfu gert í sjóðinn. Nafn hans kom þó fyrir skjölum nokkurra fyrirtækja tengdum Eggerti Skúla, bæði sem vitundavottur og meintur þátttakandi í fyrirtækjarekstrinum. Þessi maður kannast ekkert við aðkomu sína og segir kennitölu sína misnotaða og undirskrift falsaða.

Blaðamaður hefur undir höndum afrit af löggildum skilríkjum þessa einstaklings og getur vottað að undirskrift hans þar er gerólík þeirri undirskrift sem birtist í skjölum tengdum fyrirtækjum Eggerts. Hins vegar ef þessi meinta falsaða undirskrift er borin saman við rithönd Eggerts Skúla í sömu skjölum, má þar sjá þónokkur líkindi. Þessi einstaklingur hefur stöðu grunaðs manns í málinu og segir það aðeins vegna þess að Eggert Skúli hafi misnotað kennitölu hans. Hann segir það alveg með ólíkindum hversu auðvelt er á Íslandi að misnota kennitölu annarra.

„Þá var hann búinn að vera með eitthvert fyrirtæki skilst mér og sendi kröfu til Ábyrgðarsjóðs og gaf mig upp sem starfsmann hjá þeim. Ég vissi ekkert af þessu fyrr en um 2016. Þá fékk ég reikning frá skattinum um að ég skuldaði skatt.“

Þessi einstaklingur þekkti til Eggerts og þegar Eggert hafði samband og bað um aðstoð þá hafi hann grunlaus reitt fram hjálparhönd.

„Þá hafði hann samband og sagði mér að hann væri að fá eitthvert uppgjör varðandi eitthvert slys sem hann og fyrrverandi kona hans hefðu lenti í. Hann væri orðinn gjaldþrota og væri í einhverju veseni með konuna sína og spurði hvort það væri í lagi að peningurinn kæmi inn á reikning hjá mér. Og ég sagði við hann: Það er allt í lagi. Svo fæ ég greiðslu frá lögfræðiskrifstofu á Íslandi. Lögfræðingur 101 eða eitthvað. Ég var ekkert að pæla í þessu. Millifæri svo yfir á hann. Þá voru þetta aurarnir sem komu frá Vinnumálastofnun. Þetta voru ekki peningar út af neinu slysi. Síðan í framhaldinu fæ ég reikning frá RSK um að ég skuldi skatt vegna þessara greiðslna. Það stóð bara á yfirlitinu hjá bankanum – Uppgjör – ekkert annað. Stóð bara lögfræðiskrifstofa 101 eða eitthvað. Það var ekkert sem sagði mér að þetta kæmi frá einhverjum opinberum aðilum. Það stemmdi allt fyrir mér.“

Eftir að reikningurinn barst frá skattinum fór heimildarmaður DV að grafast fyrir um málið og komst að því að krafa hafi verið gerð í Ábyrgðarsjóð launa í hans nafni. Í kjölfarið segist hann hafa sett sig í samband við sjóðinn og þá hafi hjólin farið að rúlla og rannsókn á meintu misferli Eggerts hafist.

Hótanir

Eftir umfjöllun Fréttatímans árið 2016 um meint svik úr Ábyrgðarsjóði launa barst Þóru Tómasdóttur, þáverandi ritstjóra Fréttatímans, sem jafnframt skrifaði fréttina, eftirfarandi hótun frá gerviaðgangi á Facebook:

„Sæl, hlakka til að sjá þig í dag. Djöfull hlakkar mig til að leika mér að þér helvítis hóran þín og fokkings krökkunum þínum líka. Þykist búa á Þýskalandi en býrð í raun á [X]. Fokkings hóran þín ég sé þig á eftir ef eki þá mjög fljótlega og það sem ég geri við þig mun ekki boða gott fokkings tussan þín.“

Hótunin barst sama dag og umfjöllunin fór í loftið og taldi Þóra engan vafa leika á að hótunin tengdist umfjöllun hennar um Eggert Skúla.

DV birti brot úr þessari umfjöllun á dv.is á þriðjudaginn. Í kjölfarið barst blaðamanni hótun um ákæru fyrir meiðyrði frá Ólafi á Lögmannastofu Reykjavík. Ekki er neinum upplýsingum er fyrir að fara á netinu um þessa stofu og enginn af þeim lögmönnum sem bera fornafnið Ólafur starfar á stofu með þessu nafni samkvæmt upplýsingum úr félagatali Lögmannafélags Íslands.

Blaðamaður reyndi jafnframt að hafa samband við son Eggerts Skúla og tengdadóttur vegna málsins en fékk engin svör. Hins vegar virðist téður Ólafur hjá Lögmannastofu Reykjavík hafa fengið veður af fyrirspurnunum, því skömmu síðar sendi hann blaðamanni aftur tölvupóst.

„Vil vinsamlega biðja þig um að hætta að ofsækja fólk út í bæ sem að hefur ekkert við þig að tala og hefur enga aðild.“

Blaðamaður spurði þá hvort hún væri að ræða við Eggert sjálfan eða Jóhann, son hans, undir dulnefni, en „Ólafur“ vísaði því alfarið á bug. „Þú ert hvorki að ræða við Eggert eða Jóhannes og er undrandi á þeirri hugmynd þinni.“

Yfirlýsing vegna umfjöllunar

Þar sem „Ólafur“ virðist þó hafa einhverja tengingu við þá feðga bauð blaðamaður honum að koma yfirlýsingu fyrir þeirra hönd á framfæri. Í þeirri yfirlýsingu er minnst á nafngreindan mann og hann sagður heimildarmaður DV og er ráðist að persónu hans. Verður sá hluti yfirlýsingarinnar ekki birtur.

„Eins og fram hefur komið, þá er þessum röngu ásökunum vísað á bug og mun þér verða stefnt persónulega og ábyrgðarmönnum DV fyrir dómstólum vegna meiðyrða. Detti ykkur í hug að birta þetta þrátt fyrir að hafa verið leiðrétt.

Mér hefur verið tjáð hver standi að baki þessari aðför en það er áðurgreindur [maður er nafngreindur og vegið að persónuheiðri hans] eins og þú væntanlega veist sjálf og gott að það komi fram hér hversu óöruggar heimildir þínar eru. Það vegur þungt fyrir dómi. Við skipti á þessum tveimur hlutafélögum sem Eggert átti og fóru í þrot í hruninu, var ekkert saknæmt og lokuðu skiptastjórar þeim án þess að neitt væri við þau að athuga. Verið er að fjalla um eldgamla upplogna grein sem kóperuð er úr tímariti.is og er fyrnd og ekki einu sinni talað við viðkomandi aðila.

Að vera að bendla óviðkomandi aðilum, eins og fyrrverandi tengdadóttur sem er í einhverju félagi og son sem er varamaður er fáránlegt og ég trúi því ekki að þér detti í hug að birta það eftir að þú hefur verið leiðrétt.

Eggert er t.d. með hreina sakaskrá og stundaði heiðarleg viðskipti með kvóta og skip í um 15 farsæl ár og hefur verið í viðskiptum í yfir 30 ár án þess að hafa nokkurn tímann komist í kast við lögin. Jóhannes átti við fíknivanda að stríða sem unglingur  og hefur verið ofsóttur af DV í 10 ár vegna afleiðinga þess. En hann hefur verið edrú í um fimm ár en reglulegar ofsóknir DV hafa ekki gert honum það léttara fyrir. En á því verður tekið.

Ráðlegg þér að sleppa þessari birtingu á þessari „frétt“ því að það verða miklir eftirmálar af þessum meiðyrðum og vísvitandi rangri frásögn.“

Fjöldi fyrirtækja sem tengist fjölskyldunni

Rannsókn blaðamanns leiddi í ljós fjölda fyrirtækja sem virðast með einum eða öðrum hætti tengjast Eggerti Skúla. Yfirleitt er hann sjálfur ekki skráður beinn þátttakandi en finna má undirskriftir hans sem vitundarvott á nokkrum stöðum. Hins vegar eru fyrirtækin skráð á eiginkonu hans, syni, tengdadóttur, fyrrverandi maka hans, kunningja og aðra venslamenn. Fjöldi fyrirtækja kemur þar við sögu, áðurnefnd Ice X Investments ehf. Alexandra ehf., Is info ehf., Fisksalan ehf., H32 ehf., Íslensk skráning ehf. og Icelandic market and sales ehf. svo dæmi séu tekin. Jóhannes Gísli hefur ítrekað verið dæmdur fyrir fjármálamisferli og Eggert Skúli sætir nú rannsókn Héraðssaksóknara. Í kjölfar umfjöllunar Fréttatímans árið 2016 fékk ritstjórinn, Þóra Tómasdóttir, hótanir. Í kjölfar gjaldþrots Fréttatímans tóku nýir eigendur við en eins og rakið er hér í umfjölluninni virðast Eggert Skúli og Jóhannes einhverja tengingu hafa við miðilinn.

Skjáskot/ Fréttatíminn
Skjáskot/ Fréttatíminn
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Bubbi mærir Katrínu í Mogganum: „Við skulum tala íslensku“

Bubbi mærir Katrínu í Mogganum: „Við skulum tala íslensku“
Fréttir
Fyrir 9 klukkutímum

Úkraínskir hobbýdrónar gera rándýrum rússneskum skriðdrekum lífið leitt

Úkraínskir hobbýdrónar gera rándýrum rússneskum skriðdrekum lífið leitt
Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Hrikaleg líkamsárás í Síðumúla

Hrikaleg líkamsárás í Síðumúla
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Lamaðist fyrir neðan háls í alvarlegu slysi fyrir sjö árum en komst engu að síður á topp Hvannadalshnjúks

Lamaðist fyrir neðan háls í alvarlegu slysi fyrir sjö árum en komst engu að síður á topp Hvannadalshnjúks