fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fréttir

Skiptast á skin og skúrir

Ágúst Borgþór Sverrisson
Sunnudaginn 21. júlí 2019 17:29

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mikið blíðviðri hefur verið sunnan og vestan lands um helgina en víða kaldara og rigning annars staðar á landinu. Á morgun má búast við sólarlausum hlýindum í Reykjavík, hægviðri og allt að 15 stiga hita. Sólskin verður hins vegar á Vestfjörðum og Vesturlandi en töluverð væta fyrir austan. Á Norðurlandi verður hægviðri og hiti eitthvað yfir 10 stigum. Samkvæmt veðurvef DV er núna 15 stiga hiti í Reykjavík, sólskin og hægviðri. Sömu tölur gilda fyrir Ólafsvík og er það mesti hiti á landinu í augnablikinu.

Á þriðjudag ætti að vera komið glampandi sólskin aftur í höfuðborgina.

Veðurhorfur næsta sólahring samkvæmt Veðurstofunni eru eftirfarandi:

Norðaustan 3-10 m/s og súld eða rigning austantil. Skúrir annarsstaðar fram eftir kvöldi, en þurrt og bjart veður á Breiðafirði og Vestfjörðum. Skúrir um vestanvert landið síðdegis á morgun og styttir upp austanlands annað kvöld. Hiti frá 8 stigum við norður- og austurströndina, upp í 18 stig á Suðvestur- og Vesturlandi.

Veðurhorfur á landinu næstu daga:

Á þriðjudag:
Austan og norðaustan 3-10 og skýjað, en bjart með köflum og stöku skúrir suðvestantil. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast vestanlands.

Á miðvikudag:
Norðaustan og austan 8-13 m/s. Rigning, einkum norðan- og austanlands en úrkomulítið norðvestantil. Hiti 10 til 16 stig.

Á fimmtudag:
Norðan 8-13 og rigning, en hægari og stöku skúrir sunnanlands. Hiti 10 til 18 stig, hlýjast á Suðurlandi.

Á föstudag:
Austlæg eða breytileg átt og rigning í flestum landhlutum. Hiti 8 til 15 stig, hlýjast sunnanlands.

Á laugardag:
Norðvestan og rigning með köflum, en þurrt suðvestanlands. Hiti 6 til 15 stig, hlýjast á Suðurlandi.

 

Sjá Veðurvef DV

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka
Fréttir
Í gær

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi