Snemma í morgun höfðu alls 18 fíkniefnamál komið upp á tónlistarhátíðinni Secret Solstice í Laugardalnum. Það fyrsta kom upp kl. 16 í gær en tilvikin bættust síðan jafnt og þétt við á meðan hátíðinni stóð í gærkvöld. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar og segir einnig að um hafi verið að ræða kannabisefni og örvandi efni.
Í dagbók lögreglunnar segir einnig um liðna nótt og gærkvöldið:
„Nokkur erill hefur verið hjá lögreglu í kvöld og nótt vegna skemmtanahalds en flest mál hafa þó verið leyst nokkuð farsællega og einungis sex gista í fangaklefa þegar þetta er ritað. Óvenju mikið var um minniháttar slagsmál og stympingar í miðbænum er líða fór á nóttina.
Sex ökumenn voru handteknir grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna og aðrir fimm voru handteknir fyrir ölvunarakstur.“