fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fréttir

Sigurður handtekinn í tengslum við skáksmyglsmálið

Björn Þorfinnsson
Laugardaginn 27. janúar 2018 10:26

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þriðji maðurinn var handtekinn í skáksmyglsmálinu í fyrradag. Maðurinn, sem heitir Sigurður Kristinsson, var handtekinn við komu sína frá Spáni. Þetta staðfestir Grímur Grímsson,yfirmaður miðlægrar rannsóknardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, í frétt Vísis nú í morgun.

Skáksmyglsmálið hófst þegar torkennilegur pakki var sendur til skrifstofu Skáksambands Íslands frá Spáni í byrjun árs. Reyndist pakkinn innihalda um 8 kg af fíkniefnum sem falin voru í skákvörum. Fljótlega voru tveir menn handteknir og settir í tveggja vikna gæsluvarðhald í tengslum við málið. Þar á meðal Hákon Örn Bergmann, líkt og DV greindi frá í vikunni. Annar mannanna var látinn laus úr gæsluvarðhaldi í vikunni.

Í vikunni greindi DV frá því að eiginkona Sigurðar, Sunna Elvíra Þorkelsdóttir, hefði fallið milli hæða á heimili þeirra í Malaga með þeim afleiðingum að hún þríhryggbrotnaði. Sigurður var upphaflega grunaður um að hafa átt þátt í slysinu og var handtekinn af lögreglu þar ytra og sat í gæsluvarðhaldi um tíma. Sigurður var þó fljótlega sleppt úr haldi og tjáði hann blaðamanni DV að rannsókn málsins væri lokið og hann hefði hvergi komið nærri.

„Það var ekkert brot heldur slys. Ég var ekki til staðar, því miður, þegar slysið varð en yfirvöld tóku sinn tíma í að staðfesta það,” segir Sigurður.

Sett var á fót söfnun fyrir sjúkraflugi Sunnu Elvíru til Íslands en kostnaðurinn við flugið var um 5,5 milljónir króna. Þeim fjármunum tókst að að safna hratt og vel og nú styttist í að Sunna Elvíra kæmist undir læknishendur hér á landi. Hún lamaðist frá brjósti við slysið og er óvíst um batahorfur hennar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka
Fréttir
Í gær

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki

dk hugbúnaður flytur í nýjar höfuðstöðvar og kynnir nýtt vörumerki
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi

Ljósmyndaði nakinn mann í búningsklefa – Braut gróflega gegn kynferðislegri friðhelgi