fbpx
Laugardagur 04.maí 2024
Fréttir

Brim fjárfestir í nýjasta kælibúnaði frá KAPP

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 25. apríl 2024 10:26

Freyr Friðriksson og Guðmundur Kristjánsson undirrituðu samning í Barcelona í dag. Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, nýr sjávarútvegsráðherra var viðstödd.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Freyr Friðriksson, forstjóri KAPP ehf., og Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brim, undirrituðu í gær á sjávarútvegssýningunni í Barcelona samning þess efnis að Brim fái OptimICE krapavélar frá KAPP í skipin Akurey AK10 og Viðey RE50, eins og segir í tilkynningu.

,,Þetta er mikilvægt skref fyrir KAPP að hafa gert þennan samning við Brim og sýnir að sá búnaður sem KAPP framleiðir undir vörumerkinu OptimICE er að virka mjög vel þegar kemur að kælingu á hráefnum fyrir kröfuharðan sjávarútveg. Við erum í stöðugri sókn með okkar vörur og þjónustu, ásamt því að þróa nýjan búnað og lausnir fyrir sjávarútveginn. Við tökum þátt í þeirri vegferð sem íslenskur sjávarútvegur er á í umhverfis- og rekstrarmálum þegar kemur að kælingu aflans,“ segir Freyr.

OptimICE er hraðkælikerfi bæði til sjós og lands sem framleiðir ískrapa úr sjó. Fljótandi ísskrapinn umlykur fiskinn og kælir hann hratt niður fyrir 0°C og heldur hitastigi um -0,5°C. Einnig tryggir ískrapinn rakastig fisksins ásamt því að drena vel frá fiskinum sem viðheldur ferskleika fisksins.

,,Þetta er mjög jákvætt skref fyrir Brim að landa þessum samningi. Við erum að mörgu leyti í fararbroddi þegar kemur að nýjungum og lausnum í sjávarútvegi. Ég tala nú ekki um þegar kemur að umhverfis- og rekstarþættinum sem spilar stórt hlutverk við þessa ákvarðanatöku,“ segir Guðmundur.

Nýja vélin er fyrsta krapavélin með CO2 sem er fjöldaframleidd í heiminum. Hún er í boði fyrir allar OptimICE krapavélar. Öll hönnun, þróun og smíði á vélinni hefur verið hjá KAPP þar sem allar krapavélar eru framleiddar. Orkunýtni nýju vélarinnar er mun betri heldur en í eldri vélum.

Freyr segir að mikil áhersla hafi verið hjá útgerðum hjá Íslandi og í Evrópu að minnka kolefnisspor sitt og er nýja vélin því byltingakennd í þeim aðgerðum. ,,Með nýju krapavélinni næst enn einn áfangi í að lækka kolefnissportið hjá sjávarútvegsfyrirtækjum um allan heim. CO2 kælikerfið er 100% vistvænt og hannað til að halda kolefnissporinu í algeru lágmarki en á sama tíma minnka rekstrarkostnað.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Íbúi í Laugardal orðinn þreyttur á suði frá sendidrónum AHA – Eigandi segir engan truflandi hávaða af drónunum

Íbúi í Laugardal orðinn þreyttur á suði frá sendidrónum AHA – Eigandi segir engan truflandi hávaða af drónunum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Fordæma skemmdarverk á Útilegumanninum

Fordæma skemmdarverk á Útilegumanninum
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Karl Arnar hristir hausinn: „Snúið fyr­ir einka­fyr­ir­tæki að standa í sam­keppni við djúpa vasa rík­is­ins“

Karl Arnar hristir hausinn: „Snúið fyr­ir einka­fyr­ir­tæki að standa í sam­keppni við djúpa vasa rík­is­ins“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kjartan vill að stakir frídagar verði færðir að helgum: Slíta í sundur vinnuvikuna og valda margvíslegu ónæði

Kjartan vill að stakir frídagar verði færðir að helgum: Slíta í sundur vinnuvikuna og valda margvíslegu ónæði