UPPFÆRT: BÍLLINN ER FUNDINN!

Bílnum á myndinni, Opel Combo með bílnúmerið PK-292, var stolið af Héðinsgötu í Reykjavík um verslunarmannahelgina. Eins og sést á myndinni er þetta merktur fyrirtækisbíll og er í eigu K2 Loftstokkahreinsunar, en það er gróið fyrirtæki sem sérhæfir sig í hreinsun loftræstikerfa.
Skömmu eftir birtingu fréttarinnar fannst bíllinn eftir ábendingu borgara. Reyndist hann vera í þokkalegu ástandi. Verðmætum hafði verið stolið úr honum en tjónið var í heild minna en eigendur bílsins óttuðust. Ekki er vitað hver stal bílnum.