fbpx
Mánudagur 07.júlí 2025
Fréttir

Erfið sambandsslit upphafið að nýju ævintýri

Kolbrún Karlsdóttir flúði frá Íslandi til Afríku –Þakklát fyrir hafa lent á þessum krossgötum í lífinu

Kristín Clausen
Sunnudaginn 29. janúar 2017 13:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það eru eflaust ekki margir sem áttu jafn viðburðaríkt ár 2016 og Kolbrún Karlsdóttir. Eftir erfið sambandsslit, sem reyndu gríðarlega á andlega heilsu hennar og fjárhag, tók Kolbrún meðvitaða ákvörðun um að láta drauma sína rætast í stað þess að sökkva niður í hyldýpi erfiðra tilfinninga og sjálfsvorkunnar. Í framhaldinu tók Kolbrún, sem er 48 ára og á uppkomin börn, skyndiákvörðun sem hefur umbreytt tilveru hennar og lífssýn.

Flúði frá Íslandi

Í dag er Kolbrún búsett í Mpigi í Úganda þar sem hún starfar ásamt hópi sjálfboðaliða á vegum samtakanna Non Violent Communication (NVC) sem á íslensku kallast Umhyggjurík samskipti. Kolbrún býr í samfélagi sjálfboðaliða sem hafa helgað sig því að bæta lífsskilyrði innfæddra, bæði með því að miðla þekkingu sinni áfram í umhyggjuríkum samskiptum sem og að aðstoða heimamenn við hin ýmsu verkefni og leysa úr misstórum vandamálum sem fylgja daglegu lífi þeirra.

Kolbrún er sátt við lífið í Afríku.
Alsæl í Úganda Kolbrún er sátt við lífið í Afríku.

Mynd: Úr einkasafni

Ástæða þess að Kolbrún tók ákvörðun um að stokka upp í lífinu á síðasta ári er sú að hún var í sambandi með manni sem endaði mjög illa. „Sambandið var orðið þannig að líkamleg nánd var engin og við töluðumst ekki við.“

Kolbrún lýsir ástandinu þannig að í marga mánuði, áður en hún loks tók af skarið og tókst að losna úr sambandinu fyrir fullt og allt, hafi henni liðið hörmulega á eigin heimili en sambýlismaðurinn neitaði að flytja út. Kolbrún kveðst enn eiga í málaferlum við manninn og í dag fara öll samskipti þeirra á milli fram í gegnum lögmenn.

„Að lokum var ástandið eiginlega þannig að mér fannst ég aðþrengd svo ég hreinlega flúði land. Eins ömurlegt og þetta hefur allt saman verið þá er ég í rauninni þakklát fyrir ævintýrið sem varð til í kjölfarið. Ég hefði aldrei komið til Afríku ef allt hefði verið í lagi heima.“

Ekki aftur snúið

Eftir nokkur styttri ferðalög fyrri hluta árs 2016 var Kolbrún stödd á námskeiði á vegum samtakanna NVC þegar henni bauðst að fara með einum leiðbeinandanum til Kenía. „Eftir það ferðalag varð ekki aftur snúið og ég byrjaði strax að leita að tækifæri til að komast aftur til Afríku.“

Nokkrum dögum síðar fékk Kolbrún boð um að koma til Úganda sem sjálfboðaliði og innleiða NVC-stefnuna. Hún þurfti ekki að hugsa sig tvisvar um áður en hún þáði boðið.

Í millitíðinni kom Kolbrún íbúðinni sem hún á á Íslandi í útleigu og búslóðinni í geymslu. „Afríka hafði alltaf togað í mig og núna var ég búin að fá tækifærið sem mig hafði alltaf dreymt um en aldrei látið verða af.“ Nokkrum vikum síðar, eða þann 16. nóvember, var hún komin til Nairobi í Úganda.

Hér býr Kolbrún.
Plastflöskuhúsið Hér býr Kolbrún.

Mynd: Úr einkasafni

Kolbrún hefur ferðast töluvert frá því að hún kom aftur til Afríku, til að mynda varði hún jólunum á eyjunni Zanzibar í Tansaníu.

Býr í plastflöskuhúsi

Kolbrún er öryrki og getur lifað ágætu lífi á örorkulífeyrinum í Afríku. Verðlagið er mjög frábrugðið því sem gengur og gerist á Íslandi og líkt og svo margir heimamenn býr Kolbrún í kofa sem er í grunninn búinn til úr tómum plastflöskum.

þess konar híbýli eru algeng í Úganda. Húsin eru umhverfisvæn þar sem endurvinnsla í landinu er lítil sem engin. Þá eru hús sem eru byggð með þessum hætti talin jafn sterkbyggð og múrsteinahús, sem eru eftirsóttasta byggingarefnið í landinu.

Nokkuð ólík því sem við þekkjum á Íslandi.
Eldhúsaðstaðan Nokkuð ólík því sem við þekkjum á Íslandi.

Mynd: Úr einkasafni

Vatn er af mjög skornum skammti. Þegar þurrkar eru í landinu þá er einfaldlega ekkert vatn.

„Þegar ég ætla í sturtu fer ég með fötu af vatni í sturtuaðstöðuna, sem er lítið afgirt svæði utandyra. Þetta er allt mjög heimilislegt,“ segir hún hlæjandi.

Matur og hefðir tengdar mat eru fábrotin á svæðinu þar sem Kolbrún býr þar sem mikil fátækt og hungur er stór hluti af lífi heimamanna. Á hverjum degi fer Kolbrún á markað og kaupir afrískt brauð sem er steikt yfir opnum eldi. Þá borðar hún mikið af ávöxtum á borð við banana, avakadó og ananas.

„Það er enginn skyndibiti og ekkert nammi hérna. Stundum finnst mér heimamenn aðeins of duglegir við að nota baunir í mat. Ég á erfitt með að borða þær.“

Vill hjálpa vændiskonum

Daglegt líf í samfélaginu þar sem Kolbrún býr byrjar á morgunfundi. Í framhaldinu er sjálfboðaliðunum skipt upp í hópa eftir því hvaða verkefni þeir eru að fást við.

„Verkefni sem mig langar að styðja við núna er að hjálpa vændiskonum að komast út úr þeim aðstæðum. Ég hef farið í nokkur fátækrahverfi upp á síðkastið og lífsskilyrðin sem fólk býr við eru hreint út sagt hörmuleg. Samt sem áður virðist fólk ánægt í daglegu lífi. Börn eru börn og fólk er fólk.“

Einfaldara getur það varla verið.
Baðherbergi Kolbrúnar Einfaldara getur það varla verið.

Mynd: Úr einkasafni

Hún bendir á að ein af myrku hliðum fátækrahverfanna sé vændið sem þar þrífst. Margar konur þurfa að selja líkama sinn til að eiga peninga fyrir mat handa börnunum sínum. Kolbrún er búin að koma sér í samband við konur hjá Stígamótum til að fá ráðleggingar um hvernig hægt sé að takast á við ofbeldið með þeim með því markmiði að konurnar verði ekki í verri stöðu en áður eftir að þær opna sig og segja frá reynslu sinni.

Ofbeldi fylgir daglegu lífi

„Ein hugmyndin er að byggja upp samfélag kvenna svo þær geti séð um sig sjálfar. Það er ótrúlegt hvað hægt er að gera mikið fyrir fólk hérna fyrir lítinn pening.“

Kolbrún bendir á að ofbeldi sé stór hluti af daglegu lífi Afríkubúa, bæði líkamlegt og andlegt. „Hér er gríðarlega mikil kúgun og rígur á milli ættbálka. Málin eru alltaf leyst með ofbeldi í hinum ýmsu myndum. Þess vegna er okkar starf (NVC) svo gríðarlega mikilvægt. Það sem við erum að kenna fólkinu er alveg nýtt fyrir flestum þeirra.“

Fjölmörg hús í Úganda eru í grunninn byggð úr pastflöskum.
Tapparnir standa út úr veggjunum Fjölmörg hús í Úganda eru í grunninn byggð úr pastflöskum.

Mynd: Úr einkasafni

Þá segir Kolbrún að mjög algengt sé að einn einstaklingur ráði og segi öðrum hvað þeir eiga að gera. Ef viðkomandi hlýðir ekki þá er hann einfaldlega beittur ofbeldi. „Þetta tíðkast mikið í okkar samfélagi en heimamenn óskuðu að fyrra bragði eftir stuðningi við að innleiða NVC í samfélaginu þar sem við búum núna.“

Mikil þörf fyrir sjálfboðaliða

Verkefnið sem Kolbrún og sjálfboðaliðarnir sem hún starfar með fást við er ærið. Hún viðurkennir að í fyrstu hafi illa gengið að ná til heimamanna og innfæddir hafi átt erfitt með að treysta þeim. Í dag er staðan allt önnur.

„Þegar við komum til baka eftir jólafrí var okkur fagnað eins og týnda syninum. Það segir mér að mikil þörf er fyrir sjálfboðaliða sem kenna umhyggjurík samskipti.“

Menningarmunurinn á Íslandi og Úganda hefur ekki farið framhjá Kolbrúnu sem segir að í Afríku þyki ekkert tiltökumál að leggja sig á vinnutíma ef lítið er að gera. „Ef enginn viðskiptavinur er á svæðinu eða lítið um að vera þá fer fólk einfaldlega bara að sofa. Heima myndi þetta aldrei líðast.“

Eitt það fyrsta sem Kolbrún tók eftir þegar hún kom til Afríku var hversu fólk er tilbúið að gefa með sér. „Þetta er fólk sem á ekkert. Ef því áskotnast matur eða peningar, hvað sem er, þá gefur það næsta manni með sér. Náungakærleikurinn er svo mikill.“

Ólíkir menningarheimar

Þá segir Kolbrún að hún sjái glögglega að við Vesturlandabúar eigum ekki að demba okkar hugmyndum á fólk sem er allt öðruvísi en við. Fólkið sé sátt og hafi allt sem það þarf.

Kolbrún segir þetta dæmigerðan götumarkað.
Iðandi götulíf Kolbrún segir þetta dæmigerðan götumarkað.

Mynd: Úr einkasafni

„Umhverfið og menningarheimarnir eru svo ólíkir. Við breytum því ekkert.“

Kolbrún getur ekkert sagt til um hversu lengi hún hefur hug á að dvelja við hjálparstörf í Afríku. Hún er þó ekki á leiðinni heim í bráð. Lífssýn hennar og viðhorfið sem hún hafði áður, til dæmis til peninga og munaðarvarnings, er gjörbreytt.

„Mér býður við þeirri ofboðslegu neysluhyggju sem er á Íslandi. Afríka breytir manni. Það er meiri tilgangur fyrir mig hér heldur en heima. Á meðan ég finn að svo er þá verð ég hérna.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ymur Art sakfelldur fyrir morð á móður sinni en honum ekki gerð refsing

Ymur Art sakfelldur fyrir morð á móður sinni en honum ekki gerð refsing
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Ísraelar fagna eftir lokaðan fund Eurovision – Íslendingum og Slóvenum tókst ekki að reka þá úr keppninni

Ísraelar fagna eftir lokaðan fund Eurovision – Íslendingum og Slóvenum tókst ekki að reka þá úr keppninni
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Harmleikurinn á Edition-hótelinu – Gæsluvarðhald framlengt um fjórar vikur

Harmleikurinn á Edition-hótelinu – Gæsluvarðhald framlengt um fjórar vikur
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Hart tekist á um Fannborgarreitinn í Kópavogi – Bílastæði séu einhliða tekin af íbúum

Hart tekist á um Fannborgarreitinn í Kópavogi – Bílastæði séu einhliða tekin af íbúum