fbpx
Laugardagur 14.júní 2025
Fréttir

Stefán Logi og Stefán Blackburn elda og stilla til friðar hjá Samhjálp

Dæmdir fyrir hrottalega glæpi – „Strákar sem hafa brugðist en vilja vera hluti af þjóðfélaginu“

Kristjón Kormákur Guðjónsson
Föstudaginn 29. júlí 2016 20:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stefán Logi Sívarsson og Stefán Blackburn hlutu þunga dóma í Stokkseyrarmálinu svokallaða í febrúar 2014. Voru þeir báðir dæmdir í sex ára fangelsi fyrir hrottalega líkamsárás og frelsissviptingu. Rúmum tveimur árum síðar eru þeir komnir á áfangaheimilið Vernd þar sem þeir afplána sinn dóm utan fangelsis. Þeir starfa nú hjá Samhjálp og hefur framkvæmdastjórinn þar mikla trú á þeim þrátt fyrir skelfilega afbrotasögu sem flestir landsmenn þekkja.

Lausir af hrauninu eftir rúm tvö ár

Ítarlega var fjallað um Stokkseyrarmálið svokallaða árið 2014 en í umfjöllun DV sagði að hinir dæmdu hefðu misþyrmt tveimur mönnum hrottalega.

Mynd: Sigtryggur Ari

Nafnarnir sátu inni á Litla-Hrauni vegna málsins í rúm tvö ár en eru nú komnir á Vernd sem er opið úrræði fyrir fanga. Vistmenn hafa heimild til að fara út klukkan sjö að morgni og eiga að skila sér heim klukkan 11 að kvöldi.

Ástæða þess að nafnarnir eru nú lausir af Litla-Hrauni, aðeins rúmum tveimur árum eftir að dómar voru kveðnir upp, er ný en nokkuð umdeild lagabreyting um fullnustu refsinga sem varð að lögum þann 23. mars síðastliðinn. Felur hún í sér að heimild fyrir rafrænu eftirliti fanga utan fangelsis er aukin. Fyrst var haldið fram fullum fetum að breytingin væri sérsniðin fyrir sakborninga í hrunsmálum en Helgi Hrafn Gunnarsson Pírati sagði það alrangt. Þingmenn gætu ekki hagað störfum sínum eftir neikvæðu áliti almennings á tilteknum föngum.

Vilja vera hluti af þjóðfélaginu

Stefán Blackburn hrærir í sósunni / Skjáskot af sjónvarpsþætti Hringbrautar
Stefán Blackburn hrærir í sósunni / Skjáskot af sjónvarpsþætti Hringbrautar

Þá mánuði sem Stefán Logi og Stefán Blackburn afplána utan múranna þurfa þeir að sinna samfélagsþjónustu. Næstu mánuði er það Samhjálp sem fær að njóta krafta þeirra, en þeir félagar eru aðstoðarmenn í eldhúsi fjóra tíma á dag. Vörður Leví Traustason, framkvæmdastjóri Samhjálpar, segir fjóra fanga starfa í eldhúsinu. Kaffistofan fær um 200 heimsóknir á dag. Stór hluti er erlendir verkamenn, flóttafólk, hælisleitendur og fólk sem á hvergi höfði sínu að að halla. Vörður segir þá nafna, Stefán Loga og Stefán Blackburn, standa sig vel.

„Þetta eru strákar sem hafa brugðist. Þeir vilja vera hluti af þjóðfélaginu og hafa fengið sinn dóm. Þeir er að standa sig gríðarlega vel.“

Vörður bætir við að þeir nafnar starfi í eldhúsinu fjóra tíma í senn fimm daga vikunnar en starfstitill þeirra er aðstoðarmaður í eldhúsi.

Sumum bregður

Vörður Leví Traustason, framkvæmdastjóri Samhjálpar, til hægri.
Vörður Leví Traustason, framkvæmdastjóri Samhjálpar, til hægri.

Stokkseyrarmálið vakti mikla athygli og lýsti annað fórnarlambið meðal annars fyrir dómi að kveikt hefði verið í kynfærum hans. Þá hefði verið slökkt í sígarettu á andlitinu á honum. Var maðurinn frelsissviptur og bundinn við stólpa í húsi á Stokkseyri þar sem hann var píndur. Vörður þekkir vel til málsins en segist ekkert hafa óttast þegar hann samþykkti að fá nafnana til starfa.

Hvernig verður gestum við að sjá þessa þekktu afbrotamenn að störfum á kaffistofunni?

Stefán Logi
Stefán Logi

„Sumum bregður í brún en þeir eru að standa sig gríðarlega vel. Þetta eru flottir strákar. Þetta gerir þeim gott enda bætir það engan að vera lokaður inni, það þekki ég úr starfi mínu sem fangavörður. Það er betra fyrir þá að komast í eðlilegt samfélag og vera treyst.“

Vörður bætir við að allir eigi skilið annað tækifæri, kærleika og umhyggju.

„Þetta eru góðir strákar. Góðir menn. Þeir voru það alltaf inn við beinið,“ segir Vörður og bætir við: „Við reynum svo að hjálpa þessum strákum áfram. Sumir hafa farið í kokkaskólann eftir að hafa starfað hér.“

Fangar stilla til friðar

Stefán Logi / Skjáskot af sjónvarpsþætti Hringbrautar.
Stefán Logi / Skjáskot af sjónvarpsþætti Hringbrautar.

Vörður upplýsir að stundum hafi slegið í brýnu á milli gesta á kaffistofunni og þá menn jafnvel dregið upp hnífa. Segir Vörður að þá hafi komið að góðum notum að eiga fangana að inni í eldhúsi sem hafi þá oft skakkað leikinn.

En hefur Vörður trú á því að þessir menn geti orðið gildir þjóðfélagsþegnar í ljósi afbrotasögu þeirra, sem er ekki fögur?

„Já. Þetta hefur gengið vel og það er mikilvægt þegar afplánun lýkur að þeim sé tekið eins og hverjum öðrum þjóðfélagsþegn þar til annað kemur í ljós. Ef haft er trú á þeim og þeim gefið tækifæri, geta þeir fengið trú á sjálfa sig.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 2 dögum

Gátu lítið hjálpað þolanda kynþáttaníðs á TikTok

Gátu lítið hjálpað þolanda kynþáttaníðs á TikTok
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Gunnar Smári bregst hart við: „Virðast stefna að því að eyðileggja þar allt sem hefur verið byggt upp“

Gunnar Smári bregst hart við: „Virðast stefna að því að eyðileggja þar allt sem hefur verið byggt upp“