Fyrrverandi sambýliskona stofnanda Latabæjar vildi fá um 80% af eignum upp á hundruð milljóna


Hæstiréttur Íslands hefur staðfest niðurstöðu héraðsdóms Reykjavíkur um að skipta eigi búi Magnúsar Schevings, stofnanda Latabæjar, og Ragnheiðar Pétursdóttur Melsteð, fyrrverandi sambýliskonu hans, til helminga. Verðmæti eignanna sem um ræðir nemur hundruðum milljóna króna.
Ragnheiður kærði niðurstöðu héraðsdóms í nóvember síðastliðnum, eins og sagt var frá í DV, en hún fór fram á að fá um 80% af eignum búsins.
DV greindi frá dómsmálinu í febrúar á síðasta ári og kom þá fram að verjendum beggja aðila hefði greint á um hvort þeirra hefði átt að vera sóknar- og varnaraðili í málinu. Dómari komst að þeirri niðurstöðu að Magnús væri sóknaraðilinn. Sigurður G. Guðjónsson er lögmaður Ragnheiðar en Arnar Þór Stefánsson, hæstaréttarlögmaður hjá LEX, sér um málarekstur Magnúsar.
Þau Magnús og Ragnheiður voru í sambúð í 24 ár. DV birti viðtal við Magnús í apríl 2014 þar sem hann tjáði sig meðal annars um það hvernig hann og Ragnheiður hefðu í sameiningu stofnað Latabæ. Bandaríska fjölmiðlasamsteypan Turner keypti fyrirtækið árið 2011 og nam heildarfjárfesting vegna kaupanna tveimur og hálfum milljarði króna.
„Það sem flækir málið er að flestar eignir okkar eru skráðar af henni til hennar sjálfrar enda sá hún um fjármál okkar í ōll þessi ár. Ég tel að mér beri sannarlega réttur til helminga okkar eigna en það verður dómstóla að skera úr um. Vonandi kemst hann að sanngjarnri niðurstöðu fyrir okkur bæði,“ sagði Magnús í samtali við DV í febrúar árið 2015.