fbpx
Sunnudagur 19.maí 2024

Reyndi að kyssa fréttamann í beinni – Henni er hrósað út um allan heim fyrir þessi viðbrögð

Aníta Estíva Harðardóttir
Þriðjudaginn 26. júní 2018 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fótboltaaðdáandi sem gekk upp að fréttakonu í miðri útsendingu og reyndi að kyssa hana, fékk skammir að launum þegar hún stöðvaði manninn og sagði honum til syndanna. Hefur fréttamanninum verið hrósað víða fyrir viðbrögðin en maðurinn fengið skammir.

Julia Guimarães var í miðri útsendingu í Rússlandi á sunnudaginn síðasta þegar æstur fótboltaaðdáandi gekk upp að henni og reyndi að kyssa hana á kinnina.

Guimarães stöðvaði manninn áður en honum tókst ætlunarverk sitt og náðist það á upptöku þegar hún skammaði hann fyrir ósæmilega hegðun sína.

Ekki í fyrsta skiptið sem Guimarães lendir í þessu á HM

Guimarães: „Ekki gera þetta. Aldrei gera þetta aftur?“

Fótboltaaðdáandi: „Fyrirgefðu, fyrirgefðu.“

Guimarães: „Ég hefði aldrei leyft þér að gera þetta? Þetta er ekki kurteisi? Þetta er ekki rétt. Aldrei gera þetta. Aldrei gera þetta við konu aftur? Sýndu virðingu.“

Eftir atvikið greindi Guimarães frá því að þetta væri í annað skiptið sem aðdáandi hefði reynt að kyssa hana síðan hún kom til Rússlands. Segist hún ekki skilja hvers vegna menn telji sér trú um að þessi hegðun sé í lagi. Einnig greindi hún frá því að henni finndist hún hjálparvana í þessum aðstæðum.

Myndbandið má sjá hér að neðan:

https://youtu.be/VrhqRXPsYUw

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Sjáðu stórkostlegt mark Caicedo í dag – Skoraði frá miðju

Sjáðu stórkostlegt mark Caicedo í dag – Skoraði frá miðju
433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Reynsluboltarnir munu framlengja við Real Madrid

Reynsluboltarnir munu framlengja við Real Madrid
Eyjan
Fyrir 5 klukkutímum

Orðið á götunni: Sægreifar kosta framboð Katrínar

Orðið á götunni: Sægreifar kosta framboð Katrínar
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Guardiola hafði ekki hugmynd um hvaða markmaður var á leið til félagsins

Guardiola hafði ekki hugmynd um hvaða markmaður var á leið til félagsins
433FókusSport
Fyrir 8 klukkutímum

Liverpool, Arsenal eða United? – Þetta eru liðin sem forsetaframbjóðendurnir halda með í enska og íslenska boltanum

Liverpool, Arsenal eða United? – Þetta eru liðin sem forsetaframbjóðendurnir halda með í enska og íslenska boltanum
433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Lofsyngur Gylfa og nefnir sérstaklega þessa frammistöðu – „Ekki er hann að elta aurinn“

Lofsyngur Gylfa og nefnir sérstaklega þessa frammistöðu – „Ekki er hann að elta aurinn“

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.