fbpx
Þriðjudagur 17.júní 2025

Hvað veldur augnþurrki?

doktor.is
Föstudaginn 17. febrúar 2017 08:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hver kannast ekki við það að fara út í mikið rok og allt í einu fara tár að hrynja niður kinnarnar? Sumir upplifa það að tárfella við að hreyfi smávind.  Þessir sömu einstaklingar vakna oft upp við að það sé eins og sandur í augunum og að þeir séu „lengi í gang á morgnana“, Fréttablaðið í þoku og erfitt að stilla augun fyrr en lengra er liðið á daginn. Þessir einstaklingar eru líklega með þurr augu. Það sem veldur því að tárin taka að hrynja niður vangana er sú að tvö tárakerfi eru í augunum:

  • Smurningskerfi
  • Vatnsúðakerfi

Annars vegar eins konar smurningskerfi, sem sér um að halda augunum smurðum og hins vegar einskonar vatnsúðakerfi, sem virka eins og vatnsúðastútar í loftum þegar eldur kemur upp.  Þetta kerfi fer í gang þegar við grátum eða þegar við finnum fyrir ertingu í augum.  Smurningskerfið er það kerfi sem getur þornað upp.  Við það finnum við frekar fyrir ertingu, t.d. eins og að fá vind í augun, og þröskuldurinn lækkar mjög fyrir að vatnsúðakerfið fari í gang.  Þau tár eru miklu vatnskenndari (hin eru seigari eða slímkenndari) og „trilla“ niður vangana en smyrja augun lítið sem ekkert.

Mynd/Getty

En hvað veldur?

Oft er ekki hægt að finna neinar sérstakar orsakir, en þetta er eitt af því sem verður algengara með aldrinum.  Þurr augu fylgja sumum sjúkdómum, eins og gigtarsjúkdómum og sjálfsofnæmissjúkdómum (rauðir úlfar, æðabólgusjúkdómar o.fl.).  Lúmskar orsakir geta verið lyf eins og sum magalyf, þunglyndislyf, lyf við bjúgsöfnun, háþrýstingslyf og ofnæmislyf.  Kvefpestir og flensur hafa einnig í för með sér minnkaða táraframleiðslu í smurningskerfi augnanna.  Svo má einnig geta þess að snertilinsur geta aukið mjög á augnþurrk.

Hvað er hægt að gera?

Gervitár eru augndropar sem líkja eftir tárum okkar.  Þau eru fáanleg í öllum apótekum og eru bæði til í dropaformi og gelformi.  Geldroparnir eru tilvaldir á kvöldin áður en farið er að sofa þar sem þeir virka lengur en hafa meiri áhrif á sjón, hún verður svolítið þokukennd í nokkrar mínútur eftir að þeir eru settir í.  Algeng spurning er þessi:

En verð ég ekki háður/háð gervitárum ef ég er alltaf að nota þau?

Nei og aftur nei. Þetta kerfi slakar ekki á þótt þú vinnir vinnuna fyrir það um tíma. Oft dugir að nota gervitár í stuttan tíma en í einstökum tilvikum getur viðkomandi þurft að nota þau árum saman. Líta má á þetta sömu augum og að bursta tennur, einskonar viðhald og forvarnir fyrir augun.

Annað sem hefur komið fram á undanförnum árum eru silikontappar, sem setja má í táragangaopin sem eru á augnlokum nálægt augnkrókunum.  Þessi op leiða ofan í göng, sem kölluð eru táragöng, en þau veita tárunum niður í nefkok.  Þessi göng eru nauðsynlegt frárennsli fyrir tárin þegar táraframleiðsla er í lagi.  Ef hún er ekki í lagi þá gera þau þurrkinn verri með því að veita burt dýrmætum tárum.  Með því að loka göngunum tímabundið eða um lengri tíma haldast tárin í augunum og þurrkur minnkar eða hverfur.  Rétt er að geta þess að silikontapparnir eru algjörlega hættulausir og alltaf hægt að kippa þeim úr ef þess gerist þörf

Þessi grein er fengin með góðfúslegu leyfi af heimasíðu Augljós þar sem aðrar fróðlegar greinar eru um augnmein.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

433Sport
Fyrir 1 klukkutíma
Southgate sækir um starf

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 3 klukkutímum

Ambika er á leið til Íslands – Leitar að Hafdísi og langar að þakka henni fyrir stuðning

Ambika er á leið til Íslands – Leitar að Hafdísi og langar að þakka henni fyrir stuðning
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

David Moyes reynir að fá enska landsliðsmanninn – Þarf að keppa við Mourinho

David Moyes reynir að fá enska landsliðsmanninn – Þarf að keppa við Mourinho
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Samtal United við Brentford enn í fullum gangi

Samtal United við Brentford enn í fullum gangi
Eyjan
Fyrir 13 klukkutímum

Guðmundur segir sig frá formennsku SFS – Tæpir 3 mánuðir frá kjöri

Guðmundur segir sig frá formennsku SFS – Tæpir 3 mánuðir frá kjöri
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Ásgeir Frank segir rætnar kjaftasögur um stöðu sína ekki réttar – Veikindi hafa herjað á hann

Ásgeir Frank segir rætnar kjaftasögur um stöðu sína ekki réttar – Veikindi hafa herjað á hann
433Sport
Fyrir 16 klukkutímum

Fastur í Ísrael eftir að hafa farið þangað til að gifta sig

Fastur í Ísrael eftir að hafa farið þangað til að gifta sig
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Kristján Óli jós úr skálum reiði sinnar í Úlfarsárdalnum – „Þeir áttu það skilið“

Kristján Óli jós úr skálum reiði sinnar í Úlfarsárdalnum – „Þeir áttu það skilið“
Pressan
Fyrir 18 klukkutímum

Þess vegna setja sumir sítrónu í uppþvottavélina

Þess vegna setja sumir sítrónu í uppþvottavélina

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.