Tilnefningar til Grímuverðlaunanna 2016 kynntar
Njála, í leikgerð Þorleifs Arnar Arnarssonar, Mikaels Torfasonar og Ernu Ómarsdóttur sem sýnd var í Borgarleikhúsinu, hlýtur flestar tilnefningar til Grímuverðlaunanna 2016 eða ellefu talsins. Tilnefningar í tuttugu flokkum voru kunngjörðar í Þjóðleikhúskjallaranum í dag en Grímuverðlaunin verða veitt í Þjóðleikhúsinu þann 13. júní næstkomandi.
Sýningin ≈ [um það bil] hlýtur næstflestar tilnefningar, eða átta talsins, Mávurinn hlýtur sjö og Mamma Mia!, Í Hjarta Hróa Hattar og Illska sex tilnefningar hver. Verk sem sýnd eru í Borgarleikhúsinu hljóta samanlagt 41 tilnefningu til Grímuverðlaunanna í ár, verk sem sýnd eru í Þjóðleikhúsinu hljóta 27, Tjarnarbíó á þátt í sex tilnefningum, Íslenska Óperan fær þrjár tilnefningar og ein tilnefning fer til verks sem Menningarfélag Akureyrar kemur að.
Sýning ársins:
≈ [um það bil]
Flóð
Illska
Mávurinn
Njála
Leikrit ársins:
Flóð
Njála
Illska
Old Bessastaðir
Auglýsing ársins
Barnasýning ársins:
Í hjarta Hróa hattar
Óður og Flexa halda afmæli
Vera og vatnið
Leikstjóri ársins:
Una Þorleifsdóttir (≈ [um það bil])
Unnur Ösp Stefánsdóttir (Mamma Mia!)
Vignir Rafn Valþórsson (Illska)
Yana Ross (Mávurinn)
Þorleifur Örn Arnarson (Njála)
Leikkona ársins í aðalhlutverki:
Brynhildur Guðjónsdóttir (Njála)
Edda Björg Eyjólfsdóttir (4:48 Psychosis)
Halldóra Geirharðsdóttir (Mávurinn)
Margrét Vilhjálmsdóttir (Hver er hræddur við Virginíu Woolf?)
Nína Dögg Filippusdóttir (Sporvagninn Girnd)
Leikkona ársins í aukahlutverki:
Elma Stefanía Ágústsdóttir (Hver er hræddur við Virginíu Woolf?)
Katrín Halldóra Sigurðardóttir (Í hjarta Hróa hattar)
Katrín Halldóra Sigurðardóttir (≈ [um það bil])
Kristín Þóra Haraldsdóttir (Auglýsing ársins)
Lára Jóhanna Jónsdóttir (Sporvagninn Girnd)
Leikari ársins í aðalhlutverki:
Hilmir Snær Guðnason (Hver er hræddur við Virginíu Woolf?)
Ingvar E. Sigurðsson (Heimkoman)
Stefán Hallur Stefánsson (≈ [um það bil])
Sveinn Ólafur Gunnarsson (Illska)
Þröstur Leó Gunnarsson (≈ [um það bil])
Leikari ársins í aukahlutverki:
Björn Hlynur Haraldsson (Heimkoman)
Hannes Óli Ágústsson (Illska)
Hilmir Snær Guðnason (Mávurinn)
Hjörtur Jóhann Jónsson (Njála)
Oddur Júlíusson (≈ [um það bil])
Leikmynd ársins:
Börkur Jónsson (Í hjarta Hróa hatta)
Gretar Reynisson (Hver er hræddur við Virginíu Woolf?)
Halla Gunnarsdóttir (Hleyptu þeim rétta inn)
Ilmur Stefánsdóttir (Njála)
Zane Philström (Mávurinn)
Búningar ársins
Eva Signý Berger (Auglýsing ársins)
Filippía I. Elísdóttir (MAMMA MÍA!)
Filippía I. Elísdóttir (Mávurinn)
Hildur Yeoman (Kafli 2: Og himinninn kristallast)
Sunneva Ása Weisshappel (Njála)
Lýsing ársins:
Björn Bergsteinn Guðmundsson (Kafli 2: Og himinninn kristallast)
Björn Bergsteinn Guðmundsson (Mávurinn)
Björn Bergsteinn Guðmundsson (Njála)
Ólafur Ágúst Stefánsson (Hleyptu þeim rétta inn)
Þórður Orri Pétursson (MAMMA MÍA!)
Tónlist ársins
Árni Heiðar Karlsson og Valdimar Jóhannsson (Njála)
Baldur Ragnarsson og Gunnar Ben (Umhverfis jörðina á 80 dögum)
Einar Scheving (Heimkoman)
Kristján Kristjánsson – KK (Vegbúar)
Salka Sól Eyfeld, Aron Steinn Ásbjarnarson, Sigurður Ingi Einarsson, Tómas Jónsson og Örn Ýmir Arason (Í hjarta Hróa hattar)
Hljóðmynd ársins
Baldvin Þór Magnússon og Valdimar Jóhannsson (Njála)
Baldvin Þór Magnússon og Valdimar Jóhannsson (Kafli 2: Og himinninn kristallast)
Gísli Galdur Þorgeirsson og Kristinn Gauti Einarsson (≈ [um það bil])
Högni Egilsson og Elvar Geir Sævarsson (Hleyptu þeim rétta inn)
Kristinn Gauti Einarsson (Í hjarta Hróa hattar)
Söngvari ársins 2016
Elmar Gilbertsson (Don Giovanni)
Hallveig Rúnarsdóttir (Don Giovanni)
Jóhanna Vigdís Arnardóttir (MAMMA MÍA!)
Salka Sól Eyfeld (Í hjarta Hróa hattar)
Þóra Einarsdóttir (Don Giovanni)
Þórunn Arna Kristjánsdóttir (MAMMA MÍA!)
Dans- og sviðshreyfingar ársins
Birna Björnsdóttir og Selma Björnsdóttir (≈ [um það bil])
Brogan Davison (Illska)
Erna Ómarsdóttir (Njála)
Katrín Mist Haraldsdóttir (Píla Pína)
Lee Proud (MAMMA MÍA!)
Dansari ársins
Aðalheiður Halldórsdóttir (Persóna – What a feeling)
Inga Huld Hákonardóttir (The Valley)
Melkorka Sigríður Magnúsdóttir (Milkywhale)
Rósa Ómarsdóttir (The Valley)
Saga Sigurðardóttir (Macho man)
Danshöfundur ársins
Hannes Þór Egilsson og Þyrí Huld Árnadóttir í samvinnu við dansarana (Óður og Flexa halda afmæli)
Inga Huld Hákonardóttir og Rósa Ómarsdóttir (The Valley)
Katrín Gunnarsdóttir (Kvika)
Katrín Gunnarsdóttir (Macho man)
Melkorka Sigríður Magnúsdóttir (Milkywhale)
Útvarpsverk ársins
Fylgsnið eftir Hávar Sigurjónsson í leikstjórn Hilmars Jónssonar
SEK eftir Hrafnhildi Hagalín í leikstjórn Mörtu Nordal
Skuggablóm eftir Margréti Örnólfsdóttur í leikstjórn Ragnars Bragasonar
Sproti ársins:
Björn Leó Brynjarsson (fyrir Frama)
Hrafnhildur Hagalín og Björn Thors (fyrir Flóð)
Improv Ísland
Kriðpleir (fyrir Krísufund)
Ragnheiður Harpa Leifsdóttir (fyrir Söng Kranans)
Sómi þjóðar (fyrir Könnunarleiðangur til KOI)