fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024

Einar snýr aftur frá Hollywood til að búa til bíó

Kristinn H. Guðnason
Þriðjudaginn 23. apríl 2019 17:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Einar Egilsson stefnir á innkomu í íslenska kvikmynda- og þáttagerð. Hann skrifaði, ásamt Elíasi K. Hansen, nýverið undir stóran samning við Pegasus um gerð sjónvarpsþátta en einnig sitja þeir við skriftir að bíómynd. Einar, sem áður starfaði í hljómsveitinni Steed Lord, ræddi við DV um þessi verkefni, æskuna, tónlistina og bílslysið sem breytti lífsviðhorfinu.

Ólst upp á RÚV settinu

Einar er Vesturbæingur að uppruna, alinn upp við Ægissíðuna. Segja má að Ægissíða 64 hafi verið hjarta stórfjölskyldunnar. Þar bjó Einar með bróður sínum, foreldrum, ömmu og afa til sex ára aldurs. Einar segir:

„Amma mín dó þegar ég var orðinn ungur maður og afi flutti úr húsinu. Þá flosnaði upp úr þessu og ég áttaði mig á hversu stór hluti þetta var af okkur. Allt í einu var þessi kafli búinn og þessi klettur sem við gátum alltaf leitað til á Ægissíðunni ekki lengur til staðar. Ég sakna þessa staðar mikið.

Ég hef alltaf haft mjög sterk tengsl við sjóinn. Það voru örfá skref niður í fjöru. Þar lékum við okkur og horfðum á trillukarlana koma að og hengja fiskinn upp til þurrkunar. Flest sumur ferðuðumst við til Bandaríkjanna og á Flórída vorum við mikið á ströndinni. Ég tók mín fyrstu skref þar.“

Faðir Einars er Egill Eðvarðsson, leikstjóri og dagskrárgerðarmaður til áratuga og hefur starfað við tónlist og myndlist svo eitthvað sé nefnt. Lengst af hefur Egill starfað hjá Ríkissjónvarpinu og má segja að Einar hafi alist upp þar innandyra.

„Ég var mikið „á setti“ eins og sagt er, hvort sem það var við upptökur hjá Hemma Gunn, gerð sjónvarpsmynda eða hvað það nú var. Ómeðvitað tók ég þetta allt saman inn. Mér var ekki kennt með beinum hætti, en ég sat og fylgdist með öllu sem fram fór. Seinna meir, þegar ég var farinn að leikstýra tónlistarmyndbönum og fleira, áttaði ég mig á því að ég bjó að þessari reynslu. Til dæmis við klippingar.“

Var menningunni haldið að þér?

„Já, ég ólst upp á menningarheimili. Margir af helstu listamönnum þjóðarinnar komu sem gestir. Þetta smitar auðvitað út frá sér, en við vorum samt ósköp venjuleg fjölskylda.“

Móðir Einars, Guðrún Valgerður Bjarnadóttir, starfaði sem flugfreyja og fjölskyldan ferðaðist mikið. Einar segist einnig búa að þeirri reynslu, sérstaklega í ferðunum til Bandaríkjanna.

 

Hugsaði ekki um að „meika það“

Einar hefur alla tíð haft mikinn áhuga á tónlist. Í fermingargjöf fékk hann hljómborð og fór strax að feta sig áfram í hipphoppi og raftónlist. Hann gekk í Kvennaskólann og var þar plötusnúður á skólaböllum og seinna, eftir skólagönguna, stofnaði hann hljómsveitina Steed Lord, með bræðrum sínum, Ella og Eðvarði, og unnustu sinni, Svölu Björgvinsdóttur, árið 2006.

Þið spiluðuð mikið erlendis?

„Já, aðallega. Þetta var á MySpace-tímabilinu. Þetta var svolítið sérstakur tími. Við vorum með hljómsveit og heimasíðu þar sem við vorum bókuð til að spila víðs vegar úti í heimi. Við vorum hluti af ákveðinni hreyfingu. Danstónlistin var þarna að koma til baka úr dvala.“

Meðlimir Steed Lord ferðuðust út um allan heim og spiluðu á klúbbum og tónlistarhátíðum. Einar segir að eftirminnilegast hafi verið að spila í Mexíkó og við Svartahafið. Að heyra fólk syngja með lögunum hafi alltaf verið ómetanleg, sama hvort það voru fimm manns eða fimm þúsund.

Var takmarkið að „meika það“?

„Nei, aldrei. Auðvitað var gaman að sjá að fólk vildi hlusta á það sem við vorum að skapa. En ég hef aldrei haft áhuga frægðinni sem slíkri eða „meika það“, ég veit ekki einu sinni hvað það þýðir í sjálfu sér. Ég held að þetta sé eitthvað gamaldags hugarfar í okkur Íslendingum þar sem við höfum verið lítil og einangruð svo lengi. Tónlist er aðeins starfsgrein eins og hver önnur.“

Var flókið að starfa með maka og bræðrum í hljómsveit?

„Já, mjög flókið,“ segir Einar. „En á sama tíma mjög gefandi. Auðvitað reynir það á að vera fjölskylda á tónleikaferðalagi. Aldrei samt þannig að okkur liði illa saman.“

 

Bílslysið jákvæð lífsreynsla

Í aprílmánuði árið 2008 lentu meðlimir Steed Lord og Egill, faðir bræðranna, í mjög alvarlegu bílslysi á Reykjanesbrautinni. Hljómsveitin var á leið í flug snemma morguns þegar bílstjóri fólksbíls úr gagnstæðri átt missti stjórnina og hafnaði framan á þeirra bíl. Einar man mjög vel hvernig þetta atvikaðist. Hált var á veginum og viðgerðir á Reykjanesbrautinni. Hann segir það mikla mildi að faðir þeirra hafi verið við stýrið því hann keyri jafnan frekar hægt.

„Þetta hefði getað farið svo mikið verr, ef við hefðum verið á meiri hraða,“ segir Einar. „Ég sá blátt flykki koma. Síðan heyrðist hræðsluöskur. Og maður tók höggið.“

Elli sat í framsætinu, Einar, Eðvarð og Svala aftur í.

„Eftir að höggið kom var eins og tíminn liði hægar. Það liðu átján mínútur þangað til sjúkrabíllinn kom, en mér fannst þetta líða eins og tveir klukkutímar. Það var mikil reykur, öskur og kuldi. Þetta var eins konar súrrealísk upplifun og mér fannst þetta vera eins og eitthvert djók. Þetta væri ekki að gerast,“ segir Einar og brosir út í annað.

„Síðan tók við skelfing og örvænting og ég fylltist af adrenalíni. Ég vissi ekki hvort það væri í lagi með fjölskyldu mína. Til að byrja með hélt ég að svo væri ekki. Ég var með fullri meðvitund og gat hreyft mig. Þegar ég losaði bílbeltið sá ég að það var aðeins grafið inn í mig. Ég fór strax að reyna að hjálpa, en svo kom í ljós að ég var sjálfur alvarlega slasaður.“

Einar var í tveggja punkta belti og hann fékk mikla áverka á kviðinn við höggið.

„Það sprakk allt inni í mér. Það voru göt úti um allt og miklar innvortis blæðingar. En ég fann ekkert fyrir því fyrr en adrenalínið var runnið úr mér og ég kominn upp á spítala. Ég sá alvarleikann í augunum á læknunum, gríma var sett á mig og svo slokknaði á mér.“

Einar og Eðvarð þurftu að fara samstundis í skurðaðgerð og fyrstu nóttina var tvísýnt hvort Einar hefði þetta af. Það næsta sem hann man var að hann vaknaði fjórum dögum seinna í öndunarvél.

Við tóku fjórir mánuðir af spítalavist. Einar þurfti að undirgangast fjölda aðgerða á kviðarholi og ekki heppnuðust allar sem skyldi. Sárin greru oft illa og sýkingar komu í þau. Einar segir að þetta hái honum enn í dag, ellefu árum eftir slysið. Bæði hvað varðar kviðinn og mikla bakverki eftir höggið.

„Þetta breytti mér. Ég verð að vera duglegur að hreyfa mig og lifa mjög heilbrigðum lífsstíl. Ég borða góðan og hollan mat því að ég má ekki gera annað, þá fer allt í steik. Ef ég sé vel um mig líður mér bærilega.“

Hvaða tilfinningar hefur þú gagnvart slysinu í dag?

„Þetta var mjög jákvæð lífsreynsla,“ segir Einar án þess að hika og kemur það nokkuð flatt upp á blaðamann að heyra.

„Hún varð það. Samheldnin í fjölskyldunni var mikil og ég fann fyrir miklum stuðningi frá bæði vinum og ókunnugu fólki. Ég fann fyrir fallegri orku á spítalanum og starfsfólkið stóð sig vel. Það hefði verið auðvelt að sökkva sér ofan í volæði yfir því að vera fastur þarna og að sumar aðgerðirnar hefðu ekki gengið sem skyldi. En ég fann einhverja innri ró í öllu þessu ferli og í dag finnst okkur öllum í fjölskyldunni vænna um lífið sjálft. Ég fékk aðra lífssýn og veraldlegir hlutir skipta mig ekki jafn miklu máli og áður. Þetta var harkaleg áminning um hversu dýrmætt lífið er og hversu litlu getur munað að illa fari.“

 

Með heimþrá í Los Angeles

Bílslysið átti sinn þátt í að hljómsveitarmeðlimir Steed Lord fluttu búferlum til Los Angeles í Kaliforníu. Vildu þau skipta um umhverfi og komast mitt í suðupott tónlistar- og kvikmyndabransans. Elli hætti þá í bandinu til að einbeita sér að eigin listsköpun.

„Við þekktum aðeins til áður en við fórum þarna út. Þetta er æðisleg borg og öðruvísi en margir halda. Hverfið sem við fluttum til, Silverlake, er til að mynda mjög evrópskt, ef svo má segja, og fólk alls staðar að úr heiminum saman komið. Maturinn er frábær og veðrið sömuleiðis. En Los Angeles er risastór borg og langt á milli staða. Fólk dvelur lengi í bílunum sínum og er nokkuð einangrað. Það er aðeins lítill hluti af borginni þar sem fólk er með andlitsstrekkingar, keyrandi um á Lamborghini. Svæði sem við sóttum ekkert í.“

Steed Lord hætti árið 2016 og árið 2018 skildu Einar og Svala. Í millitíðinni kom hún fram í Eurovision, árið 2017, með lagið Paper sem þau Einar sömdu ásamt Lester Mendez og Lily Elise. Einar býr enn þá í Los Angeles en hann finnur að Ísland togar í hann.

„Ég er með heimþrá í Ísland. Okkar menningu, okkar náttúru og fólkið auðvitað.“

 

Stór verkefni í bígerð

Einar situr nú við handritsgerð fyrir tvö stór verkefni. Annars vegar er það fyrir kvikmynd og hins vegar þáttaröð, í samstarfi við Elías K. Hansen sem Einar kynntist í Los Angeles.

„Íslensk kvikmyndagerð er á tímamótum núna og mig langar til þess að taka þátt,“ segir Einar. Hann hefur vakið talsverða athygli fyrir ljósmyndun og byggir handritsgerðina að hluta til á myndum.

„Afi minn, Eðvarð Sigurgeirsson, var atvinnuljósmyndari á Akureyri og ég var mikið í myrkraherberginu hjá honum. Pabbi var líka alltaf með myndavél á sér og ég stalst í hana, tólf eða þrettán ára. Ég hef aldrei stundað þetta sem atvinnugrein heldur frekar sem tæki til að hjálpa mér að fanga staði og stund. Líkt og minnisblöð til að festa hugmyndir niður.“

Einar hefur aldrei haldið sýningu á ljósmyndum sínum, en stefnir á þá fyrstu í sumar á Íslandi. Sumar myndirnar hans hafa þó ratað í tímarit. Einar einblínir frekar á staði og sögusvið frekar en fólk, og ljósið skiptir höfuðmáli.

„Ég keyri mikið um, með myndavélina með mér, og mynda ef ég sé eitthvað sem grípur mig. Ég fer ekki út til þess að leita uppi myndefni og er ekki að fylgja ákveðinni stefnu. Það er aftur á móti ákveðinn tónn eða stef í myndunum sem lifir í mér sjálfum. Eins og svo margir er ég líka haldinn mikilli nostalgíu og það sést í myndunum. Margt sem ég mynda er fljótt á litið mjög ómerkilegir hlutir, en ég sé eitthvað við þá sem gerir þá athyglisverða fyrir mig. Það gæti til dæmis verið hversdagslegt útvarpsmastur úti á landi, en fyrir mér er það bíómyndasena.“

Einar hefur setið við skriftir að leikinni dramamynd sem verður hans fyrsta í fullri lengd. Hann vill ekki gefa of mikið upp og segja frá söguþræðinum, en segir að hún sé mjög persónuleg.

„Þetta er rammíslensk mynd. Það var mjög krefjandi að takast á við handritsgerðina, en ég hef haft áhuga á þessu lengi. Þegar ég var yngri skrifaði ég smásögur. Að skrifa handrit er ekki ósvipað og að skrifa lag. Það er ákveðinn inngangur og síðan skipting á köflum, líkt og erindi og viðlag í tónlist.“

Hitt stóra verkefnið sem Einar og Elías eru að vinna að er þáttaröð. Átta leiknir þættir, hver tæpur klukkutími að lengd, og hafa þeir nýlega skrifað undir samning við Pegasus sem mun framleiða þættina. Einar mun einnig sjá um að leikstýra þáttunum sem verða dramatískir líkt og kvikmyndin.

„Við skrifuðum undir fyrir örfáum dögum, en það er ekki kominn nákvæmur tímarammi. Ég býst við að þetta taki um eitt til eitt og hálft ár áður en við förum í tökur. Þetta eru átta leiknir íslenskir sjónvarpsþættir, drama og við erum öll mjög spennt fyrir þessu metnaðarfulla verkefni.“

Ætlar þú að leggja þetta fyrir þig í framtíðinni?

„Já, algjörlega. Ég er búinn að vera lengi í tónlist en kvikmyndagerðin hefur lengi togað í mig. Þetta eru spennandi tímar og ég finn fyrir miklum áhuga á íslensku efni.“

Öfugt við marga þá ferð þú frá Hollywood til Íslands til að gera bíó?

„Já, þetta er svo persónulegt. Eins yndislegt það er að vera í Los Angeles og Hollywood, þá er það ekki mín saga. Ég er Íslendingur og vil segja íslenskar sögur.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 klukkutímum

Varpa sprengju inn í Gilgo-morðmálið – Er lögreglan að fela eitthvað ?

Varpa sprengju inn í Gilgo-morðmálið – Er lögreglan að fela eitthvað ?
433Sport
Fyrir 2 klukkutímum

Ivan Toney sagður gera kröfu um að þéna meira en Bruno

Ivan Toney sagður gera kröfu um að þéna meira en Bruno
433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Eiginkona Gundogan blandar sér í stríðið í klefanum hjá Barcelona

Eiginkona Gundogan blandar sér í stríðið í klefanum hjá Barcelona
Fréttir
Fyrir 3 klukkutímum

Búið að tryggja Úkraínumönnum 500 þúsund sprengjuskot – Íslendingar gáfu 300 milljónir króna

Búið að tryggja Úkraínumönnum 500 þúsund sprengjuskot – Íslendingar gáfu 300 milljónir króna
Fréttir
Fyrir 4 klukkutímum

Svíi dæmdur fyrir að skjóta Gabríel

Svíi dæmdur fyrir að skjóta Gabríel
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Var agndofa þegar Schweinsteiger lýsti framkomu Mourinho hjá United – „Mér var bara sparkað út úr klefanum“

Var agndofa þegar Schweinsteiger lýsti framkomu Mourinho hjá United – „Mér var bara sparkað út úr klefanum“