fbpx
Miðvikudagur 09.júlí 2025
EyjanFastir pennar

Svarthöfði: Óhamingjusamur málþófsmaður í prívat hagsmunagæslu

Eyjan
Miðvikudaginn 2. júlí 2025 19:00

Er nú svo komið að Morgunblaðið gengur undir nafninu „Andrésblað“ meðal manna, eftir höfundi flestra greina um efnið í því.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Svarthöfði sér ekki betur en óhamingju stjórnarandstöðunnar á Alþingi verði allt að vopni um þessar mundir. Vikulangar ræður um veiðigjöld og fundarstjórn forseta duga til að saxa á fylgi stjórnarandstöðuflokkanna samkvæmt skoðanakönnunum og afflutningur staðreynda, svo sem um að veiðigjöld séu skattar, hjálpar svo til. Morgunblaðið leggst síðan á sveif með ólukkunni og kyndir bálið með bjöguðum fréttum og fullyrðingum sem í besta falli eru byggðar á misskilningi eða rangminni. Er nú svo komið að blaðið gengur undir nafninu „Andrésblað“ meðal manna, eftir höfundi flestra greina um efnið í því.

Við svo bætist að málþófsmenn í þinginu eiga verulegra og sérstakra hagsmuna að gæta í málinu eins og greint var frá á þessum miðli í gær, og þar á sjálfur varaformaður forystuflokks stjórnarandstöðunnar í hlut.  Sá telur það heilaga skyldu – svo notuð séu hans orð – að standa fyrir málþófi og sveipar sig með skikkju hetjunnar sem berst fyrir hagsmunum landsbyggðarinnar og fjölskyldnanna í landinu. Þegar það svo afhjúpast að hann er eingöngu að gæta hagsmuna barna sinna sem eru stórefnafólk.

Svarthöfði getur í þessu sambandi ekki varist því að hugsa til ömmu sinnar sem sagði þegar henni þótti fram af sér gengið: „sei sei“.

Svarthöfði er helst á því að ekki sé hægt að skálda svona atburðarás upp – svo lygileg er hún. Þótt að það kunni að vera klisja er Svarthöfði viss um að svona lagað liðist ekki í öðrum löndum, jafnvel þótt langt væri leitað.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Banaslys á Miklubraut
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Svarthöfði skrifar: Nytsamlegir sakleysingjar þjóna hagsmunum ríkustu fjölskyldna landsins og fá brauðmola að launum

Svarthöfði skrifar: Nytsamlegir sakleysingjar þjóna hagsmunum ríkustu fjölskyldna landsins og fá brauðmola að launum
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Málþóf og málþæfarar

Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Málþóf og málþæfarar
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Óttar Guðmundsson skrifar: Margur verður af aurum api

Óttar Guðmundsson skrifar: Margur verður af aurum api
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Nína Richter skrifar: Fólkið sem notar internetið í vinnunni

Nína Richter skrifar: Fólkið sem notar internetið í vinnunni
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum
Enn eru fornmenn á ferð
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Svarthöfði skrifar: Froðusnakkar, orð að sönnu – stjórnarandstaðan velur sér nafn

Svarthöfði skrifar: Froðusnakkar, orð að sönnu – stjórnarandstaðan velur sér nafn
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 vikum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Þáttaskil í Evrópuumræðu

Þorsteinn Pálsson skrifar: Þáttaskil í Evrópuumræðu
EyjanFastir pennar
07.06.2025

Óttar Guðmundsson skrifar: Þráin eftir Trump

Óttar Guðmundsson skrifar: Þráin eftir Trump
EyjanFastir pennar
06.06.2025

Svarthöfði skrifar: Skrítin skilaboð frá seðlabankastjóra á óvissutímum

Svarthöfði skrifar: Skrítin skilaboð frá seðlabankastjóra á óvissutímum