fbpx
Föstudagur 20.júní 2025
Fókus

Vill fá póstkort frá Íslandi

Safnar póstkortum þar sem hann getur ekki lengur ferðast

Kristín Clausen
Miðvikudaginn 7. september 2016 22:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Veröldin hrundi á því augnabliki þegar ég fékk þessar skelfilegu fréttir.“ Þetta segir Svein Ove Falkevik, sem greindist með illvígan sjúkdóm árið 2013. Síðan þá hefur líf hans kollvarpast en Svein, sem býr á hjúkrunarheimili, er alveg lamaður fyrir neðan háls og á erfitt með tal. Hann veit ekki hversu langt hann á eftir ólifað en segir að veikindin hafi gefið honum allt aðra sýn lífið.

Helstu áhugamál Svein í dag eru póstkort og fótboltatreyjur. Svein dreymir um að geta fyllt veggi herbergis síns af póstkortum frá öllum heimshornum og biðlar nú til Íslendinga um að senda sér kort á vegginn.

Viðtalið við Svein var tekið með aðstoð íslenskrar konu, Jónu Valdísar Indriðadóttur, sem starfar á hjúkrunarheimilinu Kulatoppen þar sem hann býr. Jóna Valdís segir Svein gull af manni og vonar að sem flestir taki vel í bónina.

Örlögin skrifuð eftir greininguna

Svein, sem er 58 ára, hafði alltaf verið orkumikill fjallgöngumaður og rak dótabúð í Måløy í Noregi í 34 ár og þangað til hann veiktist vorið 2013. Í fyrstu byrjaði Svein að finna fyrir óþægilegum einkennum sem hann fann engar skýringar á.

„Eitthvað gerðist í kroppnum. Ég varð slappur og átti erfitt með að anda. Tröppurnar í vinnunni urðu allt í einu erfiðar,“ segir Svein sem fór í framhaldinu til læknis sem sendi hann í frekari rannsóknir.

Greiningin kom svo 13. september 2013. Svein er með ALS sem er taugahrörnunarsjúkdómur sem hefur áhrif á hreyfitaugar, miðtaugakerfið og vöðva líkamans.

Þegar hreyfitaug deyr getur hún ekki sent skilaboð til vöðva sem veldur því að með tímanum rýrnar viðkomandi vöðvi og lamast. Engin lækning er til við hrörnuninni. Sveinn finnur ekki fyrir miklum sársauka en hann er lamaður fyrir neðan háls, á erfitt með öndun og tal.

Lífið umturnaðist

Svein segir að sjúkdómurinn hafi ágerst hratt eftir að hann fékk greininguna. „Frá því að vera mikill fjallgöngumaður var ég allt í einu kominn í hjólastól. Ári síðar var ég fluttur á hjúkrunarheimili þar sem ég var orðinn algjörlega bjargarlaus. Það sem skiptir mestu máli er að njóta tímans sem við höfum.“

Erfiðast þykir Svein að vita ekki hversu lengi hann á eftir að geta fylgst með börnunum sínum tveimur, Robert og Marte.

Svein er kvæntur og eiginkona hans heitir Randi. Svein heimsækir fjölskyldu sína eins oft og hann getur. „Þetta er erfitt fyrir fjölskylduna en við verðum að halda áfram með lífið. Ég reyni að vera jákvæður og hafa mikið fyrir stafni enda hef ég aldrei verið mikið fyrir rólegheit,“ segir Svein í samtali við DV.

Safnar póstkortum og fótboltatreyjum

Sem fyrr segir eru póstkort og fótboltatreyjur aðal áhugamál Sveins í dag. „Ég safna árituðum fótboltatreyjum og hengi þær upp í herbergi mínu hérna á hjúkrunarheimilinu. Ég safna líka póstkortum og set þau upp á veggina.“

Dreymir um að fylla veggina af póstkortum.
Herbergið hans Sveins á hjúkrunarheimilinu Dreymir um að fylla veggina af póstkortum.

Á dögunum var Facebook-leikur í gangi í Noregi en í verðlaun var árituð treyja frá landsliðsmarkmanninum Hannesi Þór Halldórssyni sem spilar með danska knattspyrnuliðinu Randers FC. Sá sem vann keppnina er kunningi Sveins. Hann hafði heyrt af áhuga Sveins á fótboltatreyjum og gaf honum því treyjuna og tárast Svein af gleði þegar hann segir frá þessari dýrmætu gjöf.

Svein dreymir þó um að bæta áritaðri landsliðstreyju frá Íslandi í safnið. „Ég fylgdist með íslensku strákunum á EM og hélt að sjálfsögðu með þeim og er ég svo ótrúlega stoltur af frammistöðu þeirra. Allt í sambandi við þátttöku Íslands á EM var til fyrirmyndar og það var frábært að fylgjast með þeim, bæði strákunum og þjóðinni allri.“

Svein segir að Ísland hafi alltaf átt sérstakan stað í hjarta hans. Þegar hann var ungur drengur, árið 1973, seldu hann og vinir hans hraunmola í fjáröflunarskyni fyrir fórnarlömb gossins í Vestmannaeyjum.

„Síðan þá hefur Ísland alltaf verið mér kært.“

Þakklátur

Líkt og áður hefur komið fram langar Svein að fá send póstkort frá öllum heimshornum þar sem hann er of veikur til að ferðast. „Þetta er mér svo kært þar sem ég hef ekki tök á því lengur að fara í ferðalög. Því þykir mér svo vænt um að fólk sendi mér heiminn. Þannig get ég notið hans þó svo að það sé innan minna fjögurra veggja.“

Svein kveðst jafnframt vera hrærður yfir þeim viðbrögðum sem hann hefur fengið og þakklátur fólki fyrir að gefa sér tíma til að gleðja hann með því að senda póstkort.

„Ísland hefur alltaf verið mér ofarlega í huga og mig hefur alltaf langað að heimsækja landið. En það verður því miður aldrei,“ segir Svein sem vill að lokum þakka hlýhug í sinn garð.

„Þið eigið mig öll sem vin hinum megin við hafið.“

Ef þig langar að senda póstkort eða dettur einhver í hug sem gæti haft áhuga á því, þá er fullt nafn og heimilisfang Sveins:

Svein Ove Falkevik

Kulatoppen, 6770 Måløy,

Norge

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Quarashi koma saman aftur á Lopapeysunni

Quarashi koma saman aftur á Lopapeysunni
Fókus
Fyrir 2 dögum

Feilspor Viðars hefur fengið 1,6 milljón áhorfa – „Ótrúleg tímasetning!“

Feilspor Viðars hefur fengið 1,6 milljón áhorfa – „Ótrúleg tímasetning!“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Ormhildarsaga glæný íslensk teiknimyndasería fyrir börn er tímamótaverk

Ormhildarsaga glæný íslensk teiknimyndasería fyrir börn er tímamótaverk
Fókus
Fyrir 4 dögum

Aukasýning á vinsælustu ABBA sýningu heims í Hörpu

Aukasýning á vinsælustu ABBA sýningu heims í Hörpu
Fókus
Fyrir 1 viku

Héraðsdómari selur glæsilegt einbýli í Breiðholti – Myndir

Héraðsdómari selur glæsilegt einbýli í Breiðholti – Myndir
Fókus
Fyrir 1 viku

Aðdáendur hneykslaðir á Sabrinu Carpenter – „Þú ert að niðurlægja þig“

Aðdáendur hneykslaðir á Sabrinu Carpenter – „Þú ert að niðurlægja þig“