fbpx
Föstudagur 20.júní 2025
Fókus

Björn: „Skyndibrúðkaup er eini möguleikinn“

Björn og Sangita gengu í hjónabandi fyrir tæpu ári – Hafa barist fyrir því í eitt ár að fá dóttur Sangitu til landsins

Björn Þorfinnsson
Laugardaginn 3. september 2016 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hjónin Björn Vigfússon og Sangita Baniya hafa búið sér notalegt heimili í Garðabæ. Þar búa þau í fallegu rauðu timburhúsi ásamt þremur hundum, tveimur köttum, sautján hænum og einum rígmontnum hana. Í októberlok eiga þau von á litlum dreng, sem verður fyrsta barn þeirra saman en bæði eiga þau dætur frá fyrra sambandi. Dóttir Björns er 25 ára gömul og stundar sálfræðinám af kappi í Háskóla Íslands en dóttir Sangitu, hin sex ára gamla Sharamsha, býr hjá móður Sangitu og stórfjölskyldu hennar í Katmandú í Nepal.

„Ég hef ekki séð dóttur mína í tæpt ár núna og ég óska þess á hverjum degi að fá hana til Íslands. Hún er ljósið í lífi mínu. Við tölum saman í gegnum samskiptamiðla og nýtum okkur myndasímtöl í gegnum netið. Netsamband í landinu mínu er hins vegar mjög óáreiðanlegt þannig að það gengur ekki alltaf,“ segir Sangita. Hjónin hafa lagt á sig mikla vinnu til þess að reyna að fá Sharamsha til landsins en hafa rekist á margs konar veggi í kerfinu. „Þetta kerfi er svo þungt í vöfum og seinfara að það er hreinlega ómanneskjulegt. Ég hef aðeins kynnst góðu fólki í þessu ferli sem er bara að vinna vinnuna sína í umhverfi þar sem er fjárskortur og mannekla,“ segir Björn.

Óttast um öryggi dótturinnar

Heimili fjölskyldu Sangitu í Nepal varð illa úti í jarðskjálftanum stóra í apríl 2015. Húsið er að hruni komið en eins og svo margir íbúar Katmandú þá hefur fjölskyldan hvorki fjárhagslega burði til að flytja eða endurbyggja húsið. Fjölskyldan og dóttir Sangitu búa því í húsinu sem hrynur að öllum líkindum í næsta skjálfta. „Ég óttast um öryggi Sharamsha og vil fá hana sem fyrst til mín til Íslands,“ segir Sangita. Faðir stúlkunnar býr í Malasíu og hefur engin afskipti af dóttur sinni.

Sangita þurfti að sanna forsjá sína yfir stúlkunni og núna vantar fæðingarvottorð litlu stúlkunnar til þess að pappírar eins og vegabréf og áritun til landsins geti farið í gegn. Slíkt vottorð er ekki gefið út í Nepal og venjulega þurfa báðir foreldrar að mæta til hins opinbera til þess að fá slíkt vottorð útbúið. „Eftir ársbaráttu liggur loks fyrir að slíkt vottorð þarf Sangita að nálgast í eigin persónu í Nepal. Hún getur ekki ferðast kasólétt alla leið til Nepals og því er þetta verkefni sem við förum í þegar fæðingin er afstaðin og fjölskyldan hefur jafnað sig. Sangita má aðeins vera utan Íslands í innan við þrjá mánuði, annars fellur dvalarleyfi hennar úr gildi og við höfum talsverðar áhyggjur af því að ferlið úti í Nepal muni taka lengri tíma en það,“ segir Björn. Ef svo færi þyrfti Sangita að fljúga í hvelli til Íslands og síðan aftur út til Nepal.

Hjúskaparmiðlun föðurins

Björn og Sangita kynntust fyrir tilviljun í gegnum Facebook. „Það vill svo til að faðir minn hafði komið mér í samband við konu frá Nepal sem vildi eignast íslenskan mann,“ segir Björn og hlær. Hann vingaðist við konuna en eftir að hafa spjallað við hana í einhvern tíma þá leist honum ekkert á hana og eyddi henni af vinalistanum. „Allt í einu hefur Sangita síðan samband við mig og við förum að spjalla saman. Eitthvað small strax og fljótlega fórum við að ræða það að hún kæmi í heimsókn til Íslands,“ segir Björn.

Það sem í hönd fór var ótrúlega flókið ferli við að uppfylla skilyrði íslenskra og danskra yfirvalda til þess að Sangita gæti heimsótt Björn. „Kerfið virðist vera algjörlega andsnúið því að Íslendingar eignist maka utan Schengen-svæðisins og að reyna slíkt útheimtir gríðarlegt erfiði,“ segir Björn.

Sendiráðið fer eftir dönskum reglum

Danska sendiráðið í Katmandú sér um málefni Íslands í Nepal og Björn ber þeim illa söguna. „Það var ótrúlegt hvað þeir gengu langt í að óska eftir upplýsingum um mig og þeir gengu mun lengra en þarf samkvæmt íslenskum lögum. Ég leitaði svara vegna þess hérlendis en niðurstaðan var einfaldlega sú að ég þyrfti að beygja mig undir þetta,“ segir Björn.

Alls tók ferlið fimm mánuði þar til þau ákváðu heimsókn Sangitu og þar til hún var á leið upp í flugvél. Auk allra almennra pappíra þurfti Björn að leggja fram yfirlýsingu frá bankanum sínum um fjárhagslega stöðu sína, staðfestingu frá vinnuveitanda um að hann væri í fullu starfi og sjúkratryggja gestinn. Þá þurfti hann að leggja út 1.000 dollara á reikning Sangitu til þess að hún gæti sýnt fram á að hún gæti framfleytt sér hérlendis. Miðað við að algeng mánaðarlaun í Nepal eru um 10 þúsund krónur þá hefði Sangita aldrei getað safnað sér upp í þá upphæð.

Var alveg að gefast upp

„Það sem ég þurfti að leggja fram var hátíð miðað við það sem Sangita þurfti að upplýsa um en í hennar tilviki var sífellt beðið um viðbótarskjöl og upplýsingar. Satt best að segja var ég alveg að gefast upp á þessu en ég verð að hrósa vinnuveitendum mínum hjá Malbikunarstöðinni Höfða fyrir að leyfa mér að skjótast reglulega frá vinnu til þess að uppfylla kröfur sendiráðsins. Einnig hvatti vinnufélagi minn, Jón Þór Ólafsson, fyrrverandi alþingismaður Pírata, mig áfram og leyfði mér ekki að gefast upp,“ segir Björn.

Í þessu húsi býr stórfjölskylda Sangitu, þar á meðal Sharamsha, dóttir hennar. Húsið varð illa úti í jarðskjálfta í apríl 2015 og ljóst er að það mun ekki standa af sér annan jarðskjálfta. Björn og Sangita óttast um öryggi fjölskyldunnar.
Heimilið í Katmandú Í þessu húsi býr stórfjölskylda Sangitu, þar á meðal Sharamsha, dóttir hennar. Húsið varð illa úti í jarðskjálfta í apríl 2015 og ljóst er að það mun ekki standa af sér annan jarðskjálfta. Björn og Sangita óttast um öryggi fjölskyldunnar.

Lokahnykkurinn var sá að Björn þurfti að hringa út í danska sendiráðið í Katmandú og veita sendiráðsmanni viðtal. „Það var líklega til þess að athuga hvort að ég væri hreinlega til og með öllum mjalla. Síðan þurfti ég að kaupa flugmiða fram og til baka fyrir hana og þá var þetta loks frágengið,“ segir Björn. Skömmu síðar kom vegabréfsáritun Sangitu og hún gat heimsótt landið. Útprentaður flugmiðinn vegna heimferðarinnar endaði samankrumpaður í ruslinu.

„Ég óttast um öryggi Sharamsha og vil fá hana sem fyrst til mín til Íslands.“

Skyndibrúðkaup eini möguleikinn

Að sögn beggja var strax við fyrstu kynni ljóst að þau vildu eyða meiri tíma saman og leyfa sambandinu að þróast. Sökum kerfisins voru þó góð ráð dýr. „Sangita fékk þriggja mánaða ferðamannaleyfi. Það er hægt að fá þriggja mánaða framlengingu en ég treysti því ferli ekki eftir allt vesenið sem fylgdi vegabréfsárituninni. Hvorki ég né Sangita vildum að hún færi úr landi því þá gæti liðið allt að hálft ár þar til hún gæti snúið aftur til landsins. Eini möguleikinn var því að við myndum gifta okkur,“ segir Björn.

Hann og Sangita fóru til sýslumanns og létu pússa sig saman. Svo héldu þau tvær veislur fyrir nánustu fjölskyldu og vini. „Ef Íslendingur á í sambandi við einstakling utan Schengen-svæðisins og þau vilja vera saman hér á landi þá er því fólki nauðugur einn kosturinn að giftast þegar í stað. Svo er talað illa innan kerfisins um skyndibrúðkaup en það er bara eini möguleikinn ef fólk vill verja meiri tíma saman,“ segir Björn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Feilspor Viðars hefur fengið 1,6 milljón áhorfa – „Ótrúleg tímasetning!“

Feilspor Viðars hefur fengið 1,6 milljón áhorfa – „Ótrúleg tímasetning!“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Stórleikarinn er sjötugur og barn átta á leiðinni

Stórleikarinn er sjötugur og barn átta á leiðinni
Fókus
Fyrir 3 dögum

Aukasýning á vinsælustu ABBA sýningu heims í Hörpu

Aukasýning á vinsælustu ABBA sýningu heims í Hörpu
Fókus
Fyrir 4 dögum

Dóttir Bruce Willis með tilfinningaþrungna færslu um ástand hans

Dóttir Bruce Willis með tilfinningaþrungna færslu um ástand hans
Fókus
Fyrir 1 viku

Aðdáendur hneykslaðir á Sabrinu Carpenter – „Þú ert að niðurlægja þig“

Aðdáendur hneykslaðir á Sabrinu Carpenter – „Þú ert að niðurlægja þig“
Fókus
Fyrir 1 viku

Una slær í gegn á TikTok – Hermir eftir 6 íslenskum söngkonum í einu lagi

Una slær í gegn á TikTok – Hermir eftir 6 íslenskum söngkonum í einu lagi