fbpx
Föstudagur 06.mars 2026
Fréttir

Evrópuráðið óttast fangelsun barna á Íslandi

Kristinn H. Guðnason
Föstudaginn 27. febrúar 2026 16:30

Michael O´Flaherty yfirmaður mannréttindamála hjá Evrópuráðinu. Mynd/Wikipedia

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Evrópuráðið hefur sent íslenskum stjórnvöldum bréf þar sem varað er við því að börnum sé haldið í varðhaldi. Koma verði fram við börn eins og börn.

Þetta kemur fram í bréfi Michael O´Flaherty, yfirmanni mannréttindamála hjá Evrópuráðinu (ekki Evrópusambandinu), til íslenskra stjórnvalda. Tilefnið er frumvarp dómsmálaráðherra um brottfararstöð. Það er fyrir þá útlendinga sem ekki hafa leyfi til dvalar og sýna ekki samstarfsvilja til að fara úr landi.

„Í frumvarpinu eru kærkomin atriði svo sem betri aðstaða til vistunar fyrir brottvikningu í stað venjulegra fangelsa. Það eru einnig ýmsar öryggisráðstafanir og vísanir í hvað sé best best fyrir börn og bann við að börn verði vistuð séu þau ekki í fylgd fullorðinna,“ segir í bréfi O´Flaherty. „En ég hef áhyggjur af því að frumvarpið býður upp á að vista börn í fylgd fullorðinna í allt að níu daga.“

Bendir hann á að það hafi ítrekað komið fram hjá Mannréttindadómstólnum að börn sem fara á milli landa séu í viðkvæmri stöðu og að yfirvöld verði að taka tillit til hennar. Einnig að varðhald barna megi aðeins nota í ítrustu neyð, og að öll önnur úrræði hafi verið reynd áður. Í frumvarpinu sé engin krafa lögð á yfirvöld að sýna fram á að öll önnur úrræði hafi verið reynd áður en barn er sett í varðhald í allt að níu daga.

„Í Barnasáttmála sameinuðu þjóðanna segir einnig að yfirvöld verði að koma fram við börn eins og börn og verja réttindi þeirra án mismununar, óháð stöðu fjölskyldu þeirra,“ segir hann og hvetur þingnefndina til þess að laga frumvarpið að þessu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Langflestir láta blekkjast og telja gervigreindarmyndir og -myndbönd raunveruleg

Langflestir láta blekkjast og telja gervigreindarmyndir og -myndbönd raunveruleg
Fréttir
Í gær

Lilja segir Davíð ekki hafa notið sannmælis – „Þetta var honum ákaflega þungbært“

Lilja segir Davíð ekki hafa notið sannmælis – „Þetta var honum ákaflega þungbært“
Fréttir
Í gær

Pilturinn sem banaði Bryndísi Klöru orðinn 18 ára en fer ekki í almennt fangelsi – Með full afnot af síma og sækir ökutíma

Pilturinn sem banaði Bryndísi Klöru orðinn 18 ára en fer ekki í almennt fangelsi – Með full afnot af síma og sækir ökutíma
Fréttir
Í gær

Skýr merki um að fjölskyldur á Íslandi misnoti au pair-kerfið til að útvega sér ódýrt vinnuafl

Skýr merki um að fjölskyldur á Íslandi misnoti au pair-kerfið til að útvega sér ódýrt vinnuafl
Fréttir
Í gær

Samherjamálið – Lögmaður 252 starfsmanna krefur Baldvin um efndir

Samherjamálið – Lögmaður 252 starfsmanna krefur Baldvin um efndir
Fréttir
Í gær

Sema Erla og María Lilja með stöðu sakbornings í tvö ár – Bendir á „bitra kallinn“ í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins

Sema Erla og María Lilja með stöðu sakbornings í tvö ár – Bendir á „bitra kallinn“ í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins